10.05.1960
Neðri deild: 79. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í B-deild Alþingistíðinda. (873)
150. mál, Verslunarbanki Íslands h.f.
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Í þessu frv. er lagt til, að heimilað verði að stofna hlutafélag, sem heiti Verzlunarbanki Íslands h/f, og skuli hlutverk félagsins vera að starfrækja banka, er hafi það sérstaklega að markmiði að styðja verzlun landsmanna. Á síðustu áratugum hefur hver bankinn á fætur öðrum verið stofnaður til þess að styðja tilteknar atvinnugreinar. Búnaðarbanki Íslands var stofnaður með l. nr. 31 1929, Útvegsbanki Íslands hf. með l. nr. 7 1930 og Iðnaðarbanki Íslands h/f með l. nr. 13 1951. Hins vegar hefur verzlunarstéttin til skamms tíma ekki haft við neina sérstaka lánastofnun að styðjast annarri fremur. Þess vegna var það í maí 1955, að Samband smásöluverzlana og Verzlunarráð Íslands komu að frumkvæði hins fyrrnefnda upp nefnd til þess að kanna möguleika á stofnun sparisjóðs, er skyldi vinna sérstaklega í þágu verzlunarstéttarinnar. Í október þess árs, 1955, var síðan leitað til félaga í þessum tveimur félagasamtökum og sömuleiðis til félaga í Félagi íslenzkra stórkaupmanna með ósk um, að þeir gerðust einnig stofnendur verzlunarsparisjóðs og inntu af hendi fjárframlög í því skyni. Undirtektir reyndust mjög góðar, og gerðust rösklega 300 aðilar stofnendur og ábyrgðarmenn sparisjóðsins. Stofnfundur hans var síðan haldinn 4. febr. 1956, og hinn 28. sept. það ár hóf sparisjóðurinn síðan starfsemi sína.
Þessi sparisjóður hefur nú starfað í rúmlega
31/2 ár, og hefur gengi hans á þeim tíma orðið svo mikið, að hann er nú orðinn stærsti sparisjóður landsins. Í árslok 1956 nam sparifjárinnstæða Verzlunarsparisjóðsins 16.9 millj. kr., en í lok s.l. árs nam sparifjárinnstæðan 113.6 millj. kr. Innlög á hlaupareikningi voru í lok fyrsta starfsársins 6.4 millj., en voru í lok s.l. árs orðin 39.9 millj. kr., þannig að innstæður í Verzlunarsparisjóðnum hafa vaxið úr 23.3 millj. í lok fyrsta starfsársins í 153.5 millj, í lok s.l. árs.
Það var tilgangur með stofnun Verzlunarsparisjóðsins í upphafi, enda tekið fram af forgöngumönnum hans, að stofnun sparisjóðsins skyldi vera fyrsti vísirinn að stofnun verzlunarbanka. Sú hugmynd hefur hvað eftir annað verið rædd á aðalfundum sparisjóðsins, og hinn 26. febr. s.l. ritaði stjórn Verzlunarsparisjóðsins viðskmrn. bréf, þar sem þess var óskað, að ríkisstj. flytti frv. til laga þess efnis, að sparisjóðnum væri breytt í banka. Þar sem starfsemi sparisjóðsins er orðin mjög umfangsmikil og svipaðs eðlis og bankanna, taldi ríkisstj. rétt að verða við þessum tilmælum. Fóru síðan fram viðræður milli forráðamanna sparisjóðsins og viðskmrn. um efni frv., og hafa forráðamenn sparisjóðsins lýst sig samþykka frv. í heild og einstökum atriðum, eins og það er nú flutt hér í hv. Nd., en ákvæðin eru í öllum aðalatriðum hliðstæð þeim ákvæðum, sem gilda um Iðnaðarbanka Íslands.
Rökin, sem liggja til þess að setja lög, sem heimila breytingu Verzlunarsparisjóðsins í verzlunarbanka, eru þau fyrst og fremst, að stofnunin er þegar orðin svo stór og rekstur hennar svo umfangsmikill, að sparisjóðsformið hentar starfseminni ekki lengur í ýmsum greinum. Sparisjóðslögin eru ekki við það miðuð að taka til stofnana með jafnumfangsmikinn rekstur og þess konar rekstur eins og Verzlunarsparisjóðurinn hefur með höndum, þó að rekstur hans sé að sjálfsögðu algerlega í samræmi við sparisjóðslögin. Því eru í reynd nokkur takmörk sett, hversu mikið ábyrgðarfé getur myndazt hjá sparisjóðum samkvæmt sparisjóðslögunum. Hins vegar er hagur lánastofnunar, sem rekin er í hlutafélagsformi, að því leyti tryggilegri, að hægara er að safna hlutafé í hlutafélagi, sem rekur banka, en ábyrgðarfé í sparisjóði, og skiptir þetta miklu máli fyrir lánastofnun eins og þá, sem hér er um að ræða. Hlutaféð yrði, ef hlutafélag ræki væntanlega lánastofnun, raunverulegt ábyrgðarfé lánastofnunarinnar, og við það mundi öryggi viðskiptamanna hennar vaxa, þeirra viðskiptamanna, sem þar eiga innstæður. Ef þetta frv. nær fram að ganga, verður hlutafé væntanlegs hlutafélags miklu hærra en ábyrgðarfé sparisjóðsins nú er, en gert er ráð fyrir í frv., að hlutaféð verði eigi minna en 10 millj. kr. Stofnfé Verzlunarsparisjóðsins er nú 1 millj. 550 þús. og varasjóður hans rúmlega 760 þús. kr. Ef Verzlunarsparisjóðnum verður breytt í banka, nál þetta frv. fram að ganga, mun hann hljóta nokkur hlunnindi umfram það, sem sparisjóður nýtur, og hliðstæð þeim hlunnindum, sem aðrir bankar njóta, svo sem skattfrelsis og heimildar til þess að reka útibú og þar fram eftir götunum.
Í 2. gr. frv. er, eins og ég gat um áðan, gert ráð fyrir því, að hlutaféð nemi eigi minna en 10 millj. kr., og er gert ráð fyrir því, að Verzlunarráð Íslands og Félag íslenzkra stórkaupmanna safni innan sinna vébanda og leggi fram sem hlutafé 5 millj, kr., en Kaupmannasamtök Íslands skuli safna innan sinna vébanda og leggja fram með sama hætti 5 millj. kr. sem hlutafé, en ábyrgðarmenn Verzlunarsparisjóðsins skulu hafa forgangsrétt til að skrifa sig fyrir hlutum í félaginu, að tiltölu við núverandi hlut þeirra í heildarábyrgðarfé Verzlunarsparisjóðsins.
Gert er ráð fyrir, að Verzlunarbankinn h/f taki við öllum eignum, skuldum og ábyrgðum Verzlunarsparisjóðsins og starfsemi hans komi að öllu leyti í hans stað, enda gert ráð fyrir því, að meiri hluti ábyrgðarmanna Verzlunarsparisjóðsins samþykki eignayfirfærsluna. Ef breytingin úr verzlunarsparisjóði í verzlunarbanka yrði gerð án löggjafar, án þess að tilstilli löggjafar kæmi til, þyrfti að leggja Verzlunarsparisjóðinn niður samkvæmt ákvæðum sparisjóðslaganna og stofna síðan annað hlutafélag til þess að hefja lánastarfsemi í framhaldi af hinum niðurlagða sparisjóði, en í íslenzkum lögum er ekkert, sem er því til fyrirstöðu, að stofna megi hlutafélag til þess að hafa með höndum lánastarfsemi. Ákvæði sparisjóðslaganna um slit sparisjóðs eru hins vegar þannig að ýmsu leyti, að til mikils trafala væri að þurfa að beita þeim, og þess vegna er það mikið hagræði fyrir viðskiptamenn sparisjóðsins og ábyrgðarmenn hans, að breytingin úr sparisjóði í banka sé lögheimiluð, eins og gert er ráð fyrir að eigi sér stað með þessu frv.
Ég sé ekki ástæðu til að vekja sérstaka athygli eða skýra einstök ákvæði frv. umfram það, sem ég nú hef gert. Þó er rétt að vekja sérstaka athygli á ákvæði 8. gr. um, að arð af hlutafé megi því aðeins greiða, að innborgað hlutafé ásamt varasjóði nemi samtals 5% af samanlögðu innlánsfé í bankanum, bæði í hlaupareikningi og sparisjóði. Þegar því marki sé náð, skal þó eigi heimilt að greiða hærri arð en sem nemur almennum innlánsvöxtum af sparifé, unz innborgað hlutafé ásamt varasjóði nemi 10% af innlánsfénu. Það þykir eðlilegt að leggja þessa kvöð á væntanlegan verzlunarbanka, í stað þeirrar fyrirgreiðslu, sem í lagasetningunni felst Verzlunarsparisjóðnum til handa.
Önnur ákvæði frv. eru hliðstæð þeim ákvæðum, sem gilda um hina viðskiptabankana, sem starfa í landinu, þ.e. ákvæði 9. gr. um tilgang bankans og ákvæði 10. gr. um tryggingar á innlánsfé.
Það er rétt að vekja athygli á því, að þótt frv, þetta nái fram að ganga, hefur það ekki í för með sér nein fjárútlát fyrir hið opinbera, fyrir ríkissjóð. Það er ekki gert ráð fyrir því, að ríkið verði neinn aðili að þeim rekstri, sem hér er um að ræða, heldur verði hér um að ræða algert einkafyrirtæki, sem fyrst og fremst kemur í stað fyrirtækis, sem nú starfar og er einnig einkafyrirtæki, en auk þess er gert ráð fyrir, að til komi allmikið nýtt fé, sem geri hinni nýju stofnun auðveldara að starfa og dafna og gegna því mikilvæga hlutverki, sem hún getur gegnt og er ætlað að gegna í þágu íslenzks viðskiptalífs. Það er enginn efi á því, að það mundi verða heilbrigðum viðskiptum á Íslandi til framdráttar og eflingar að hafa aðgang að öflugri og sjálfstæðri lánastofnun, og þess vegna hefur ríkisstj. talið rétt að leggja þetta frv. fram í trausti þess og í von um, að það nái fram að ganga og að sú stofnun, sem þá væntanlega risi á grundvelli þess, geti orðið íslenzkum viðskiptum og íslenzku efnahagslífi til gagns og blessunar.
Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.