10.05.1960
Neðri deild: 79. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2517 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
150. mál, Verslunarbanki Íslands h.f.
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Hæstv. viðskmrh. hefur nú fylgt úr hlaði þessu frv. til laga um Verzlunarbanka Íslands, og sökum þess að það er lagt til, að málið fari til þeirrar n., sem ég á sæti í, vildi ég gjarnan bera fram fyrirspurn til hans í sambandi við þetta, sem hann máske gæti annaðhvort svarað nú eða við ella gætum rætt í fjhn.
Hér er sem sé till. nú að nýju um að fá hreinan einkabanka starfandi á Íslandi, sem hefur ekki verið síðan Íslandsbanki raunverulega var, og hér eru að vísu engin lög hjá okkur, sem hamla gegn því, að starfrækja megi einkabanka, ríkið hefur engan lagalegan einkarétt á bankarekstri. Það eina, sem raunverulega hefur staðið í vegi fyrir rekstri einkabanka hér, eru skattarnir og útsvörin, sem hafa verið allmikill hemill á prívatkapítalisma á Íslandi, svo sem oft hefur verið um rætt, og það, sem þess vegna hefur raunverulega innihald í þessu frv., eru þau sérréttindi, að þetta fyrirtæki skuli hafa skatt- og útsvarsfrelsi, og í sambandi við það vildi ég beina tveimur fsp. til hæstv. viðskmrh.
Ef við nú tökum upp þann hátt, sem ég vil alls ekki segja, að ég sé að neinu leyti á móti, — það er sjálfsagt fyrir okkur að athuga jafnt einkarekstur á sviði bankamála og á öðrum sviðum, meðan við höldum því þjóðfélagsskipulagi, sem við lifum við, — ef við gefum þessum aðilum rétt og þessi sérréttindi að vera lausir við skatta, mundi ég álfta það siðferðilega skyldu Alþingis að gefa sama rétt öðrum aðilum, sem færu fram á bankarekstur og væru álíka sterkir, skulum við segja, eða gætu lagt fram fé að sínu leyti eins og þessir aðilar. Ég álít, að við þurfum að fá úr því skorið, hvort þingflokkarnir, ef þéir á annað borð verða með þessu máli, eru þá ekki sammála um, að afleiðingin af því að gefa einum einkabanka eða banka, sem er ekki banki ríkisins, slík sérréttindi hljóti að vera sú að gefa þau einnig öðrum aðilum, við skulum segja t.d., af því að hér er um Verzlunarsparisjóðinn að ræða, hér er starfandi við skulum segja Samvinnusparisjóður, stundum hefur verið talað af hálfu verkalýðshreyfingarinnar um að koma hér upp verkalýðsbanka, svipað og er á Norðurlöndum víða, — ef við nú förum inn á að slá því föstu, að svona bankar skuli fá svona sérréttindi, þá álít ég, að það sé rétt af okkur að ganga úr skugga um það, að við séum ekki að skapa neinum einstökum aðilum sérréttindi þar með, og ég gæti trúað, að einmitt þeir aðilar, sem þarna standa á bak við, væru alls ekki að fara fram á neitt slíkt, vegna þess að það eru aðilar, sem halda því sjálfir fram, að samkeppni sé mjög heilbrigt fyrirkomulag. Ég býst þess vegna ekki við, að það væri meiningin að neinu leyti að fara fram á nein sérstök sérréttindi. En ég held, að það væri rétt af okkur að ganga alveg úr skugga um þetta, hvort hæstv. viðskmrh., ef hæstv. ríkisstj. hefur rætt þetta nú þegar, vill gefa yfirlýsingar um það nú eða athuga það með okkur í fjhn. og gefa þær við 2. umr. þessa máls.
Þá er annað atriði, sem líka er prinsipatriði í sambandi við svona mál. Við skulum segja, að með þessum lögum sé þessu fyrirtæki og síðar meir yrðu kannske öðrum af sama tagi gefin þau sérréttindi, sem felast í 11. gr. og ríkisbankarnir einir nú hafa eða þeir, sem eru að meira eða minna leyti eins og þeir. Ef við gefum nú þessum fyrirtækjum skatt- og útsvarsfrelsi og þau eru stofnuð í trausti þessa, og svo skulum við segja, að ríkið tæki upp þann hátt seinna meir, ef það þætti gott að leggja í svona fyrirtæki hér á Íslandi og það væru margir, sem vildu fara brautina þarna á eftir, og við værum búnir að fá allmikið af slíkum fyrirtækjum og ýmsir borgarar þjóðfélagsins væru að kvarta undan þungum sköttum, eins og þeim hættir stundum við, þeir segðu: Hví eiga þessar stórgróðastofnanir að vera alveg skattfrjálsar? — ef ríkið tæki upp á því að leggja skatta á banka, jafnt á einkabanka, ríkisbanka og aðra slíka, breytti þess vegna þessum lögum, en léti auðvitað eitt ganga yfir alla banka, — og mér satt að segja hefur oft fundizt, að það sé engin sérstök ástæða til þess, að ríkisbankarnir sleppi við það að borga skatt, a.m.k. ekki með þeirri fjármálapólitík, sem þeir hafa rekið, — mundi þá vera álitið, að ríkið á nokkurn hátt bakaði sér nokkra skaðabótaskyldu eða slíkt? Ég meina: þau sérréttindi, sem eitt fyrirtæki fær með því að fá í lögum heimilað skattfrelsi, það hljóti aðeins að vera sérréttindi, sem það nýtur eins lengi og þau lög standa, en þó að þær lagagreinar yrðu seinna meir afnumdar og þessi fyrirtæki jafnt og önnur yrðu skattlögð, ættu eigendur eða forráðamennslíkra fyrirtækja ekki neinn kröfurétt á skaðabótum út frá því, að það breytti þeirra aðstöðu.
Þetta held ég að væri nauðsynlegt fyrir okkur líka að ganga úr skugga um, annaðhvort við þessa umr. eða þá við 2. umr. Þetta eru mál, sem fléttast nefnilega inn í þær ráðstafanir, sem ríkið kann að gera með lögum, það þarf að athuga vel, eins og við höfum ákaflega greinilega séð í sambandi við áburðarverksmiðjuna og þau fyrirmæli, sem þar voru sett.
Og svo er eitt atriði enn þá, sem ég vildi líka skjóta inn til athugunar. Það er í sambandi við 4. gr., þar sem er ákveðið, að Verzlunarbanki Íslands h/f skuli taka við öllum eignum, skuldum og ábyrgðum Verzlunarsparisjóðsins og starfsemi hans og koma að öllu leyti í hans stað, enda samþykki meiri hluti ábyrgðarmanna Verzlunarsparisjóðsins eignayfirfærsluna. Það er líka aðeins út frá prinsipinu í þessu, sem ég vildi spyrja eða beina athygli ríkisstj. að þessu. Þarna stendur, að meiri hluti ábyrgðarmanna Verzlunarsparisjóðsins skuli samþykkja eignayfirfærsluna. Það þýðir m.ö.o., að ef minni hl., — ég er ekki svo kunnugur því, ég hef ekki hugmynd um, hvernig aðstaðan er, ég hugsa þetta aðeins sem lagalegt fordæmi, — ef minni hl. í einum sparisjóði, sem með lögum yrði gerður að banka, er á móti því að gera þetta og eignir viðkomandi sparisjóðs eru yfirfærðar til þessa nýja fyrirtækis, er þetta að öllu leyti löglegt hjá okkur? Alþ. getur náttúrlega gert allt löglegt, sem það samþykkir yfirleitt. En er það rétt, sem við í þessu tilfelli værum að gera? Við skulum segja, að það sé einhver hluti af þeim. sem væru í Verzlunarsparisjóðnum eða hvaða öðrum sparisjóði. sem seinna meir kann að koma þarna til, við getum eins hugsað okkur þetta seinna meir í sambandi við sparisjóð norður á Akureyri, sem væri með lögum gerður að banka, ef minni hl. þar væri á móti því, væri þá eðlilegt að beita svona aðferð og væri það sanngjarnt? Nú get ég bezt trúað, að allir aðilar, sem þarna eiga hlut að, séu á því máli, en það kemur raunverulega ekki þessu við. Spurningin er því aðeins um hitt, hvað sé rétt og hvað sé sanngjarnt. Stundum er það í sambandi við þessa sparisjóði úti um land, að það eru þar ýmsir menn, sem lengi eru búnir að vera í þessu, sem gjarnan vilja halda þessu við, bara út frá gamaldags íhaldssemi, þó að kannske fari að fara lítið fyrir henni nú víða í þjóðfélaginu, og mundu alls ekki vilja breyta sínum sparisjóði í banka, heldur vilja halda einhverju gömlu formi. Væri þá rétt að beita þessu valdi? Ég sé nefnilega ekki betur en það væri mjög handhægt að stofna engu að síður Verzlunarbanka Íslands h/f með lögum, jafnvel þó að slíkum ákvæðum væri ekki beitt. Þetta er ekki neitt stórt atriði beint í sambandi við þetta mál, en þetta er atriði, sem er rétt að við athugum við meðferðina á þessu máli í hv. deild.