04.12.1959
Neðri deild: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (89)
16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960
Þórarinn Þórarinsson:
Hæstv. forseti. Í þeim umræðum, sem urðu hér á þingi í gær, fékk forseti allþungar ávítur í sambandi við þann niðurskurð á umr., sem þá átti sér stað. Ég ætla ekki að fara að endurtaka þær vítur hér og ekki heldur draga neitt úr þeim. En ég tel rétt að láta jafnframt koma fram viðurkenningu á því, sem ég tel að rétt sé gert í þessum efnum, og þess vegna vil ég láta það koma fram, að ég álít, að hæstv. forseti hafi farið rétt að, þegar hann tók þá ákvörðun að fresta fundi og taka mál af dagskrá vegna þess, að sá ráðh. var ekki viðstaddur, sem um það mál átti að fjalla. Ég álít, að það sé skylda forseta að láta ráðh. hafa nokkurt aðhald um það, að þeir séu viðstaddir þau mál, sem undir þá heyra, svo framarlega sem þeir hafa ekki fullgildar ástæður fyrir því að vera fjarstaddir. Og alveg sérstaklega er þörf á því, að þetta sé gert, ef værugjarnir eða veizluglaðir ráðh. eiga hlut að máli. Ég vil þess vegna enn á ný endurtaka það, að ég álít, að það hafi verið rétt af forseta að fresta umr. hér í nótt, eins og á stóð, og vænti, að það geti orðið ráðherrum til eftirbreytni, þegar svipað stendur á og þá.
Ég held, að það verði ekki hjá því komizt í sambandi við umræður um þessi mál og það frv., sem hér liggur fyrir, að minnast nokkrum orðum á þau einstæðu vinnubrögð hér á Alþ., sem hafa átt sér stað í sambandi við það. Á fjölmargan hátt hafa þær eðlilegu og sjálfsögðu reglur, sem gilt hafa um þingstörf að undanförnu og bundnar eru í lögum, verið þverbrotnar, og ég skal aðeins nefna hér nokkur dæmi þess.
Í fyrsta lagi hefur það gerzt, að næstum því strax eftir að nýkosið þing er komið saman, þá kemur till. frá ríkisstj. um að senda það heim aftur, eftir að það hefur ekki setið að störfum nema í 10 daga og þar af eina 3 frídaga. Ég held, að það sé ekki hægt að finna þess dæmi í íslenzkri þingsögu né í þingsögu annarra lýðræðisríkja og þingræðisríkja, að svipað hafi átt sér stað og það, sem hér er um rætt. Hitt er hins vegar vitanlegt, að í þeim ríkjum, þar sem einræðisstjórnir hafa verið að brjótast til valda, hefur slíku atferli verið beitt. Og ég man ekki betur en það gerðist nokkuð svipaður atburður og þessi í Þýzkalandi á sínum tíma, þ.e.a.s. þegar Hitler kom til valda, að þá var það eitt hans fyrsta verk að senda þingið heim. Hér er vissulega um mjög varhugavert fordæmi að ræða, sem er ástæða til þess að mótmæla á hinn eindregnasta hátt.
Annað, sem hér hefur gerzt og er ekki síður alvarlegt, er það, að vanrækt hefur verið að framfylgja beinum fyrirmælum stjskr. um, að brbl. skuli lögð fram á Alþingi. Alþingi hefur nú setið rúmlega hálfan mánuð að störfum, án þess að búið sé að leggja fram þau brbl., sem út voru gefin á s.l. hausti og mest hefur verið rætt um, og það bólar ekki á því enn, að þau verði lögð fram. Hér er líka um einstæð og óverjandi vinnubrögð að ræða.
Þriðja atriðið, sem ástæða er til að nefna í þessu sambandi, er það, að sú venja hefur verið brotin og því hefur verið lýst yfir, að það eigi að brjóta hana, að fjárlagaræða sé haldin í upphafi þings. Með því að neita að halda fjár]agaræðuna hefur hæstv. núv. fjmrh. gengið inn á nýjar og einstæðar og óverjandi brautir í þessu málí. Það er frumskylda við þingið, sem bein lagafyrirmæli eru um, að fjmrh. eigi í upphafi þings að leggja fjárlögin fram og láta 1. umr. fara fram og við það tækifæri gefa þingi og þjóð glöggar upplýsingar um það, hvernig afkoma ríkissjóðs stendur og hvernig útlitið er í rekstri þjóðarbúskaparins. Með því að bregðast þessari skyldu sinni hefur núv. fjmrh. farið inn á alveg óafsakanlega braut.
Fjórða atriðið, sem ég tel rétt að nefna í þessu sambandi og líka er algert einsdæmi, er það, að hér hefur verið farið inn á þá leið að slengja mörgum frv., sem búið var að leggja fyrir Alþingi, saman í eitt frv. Með því að fara inn á þessa braut er opnuð leið til þess að gerbreyta alveg störfum Alþingis og draga stórkostlega úr því málfrelsi, sem þm. hafa, og aðstöðu þeirra til þess að athuga og íhuga þau mál, sem fyrir þingið eru lögð. Það sjá allir, að vinnubrögðin eru allt önnur, þegar málin eru lögð fram í lagaflokkum eftir efni þeirra, eins og gert hefur verið hingað til, í staðinn fyrir það, að slengt sé saman hinum óskyldustu málaflokkum í eitt frv., eins og hér hefur átt sér stað. Hér er þess vegna um vinnubrögð að ræða, sem eru algerlega fordæmanleg og hættuleg fyrir störf þingsins og þingræðið í framtíðinni, ef ekki tekst að stöðva þau.
Í fimmta lagi vil ég svo nefna það, að s.l. nótt var hér farið inn á þá braut, sem líka er algert einsdæmi í upphafi þings, að umræður voru skornar niður og það með þeim hætti að rangtúlka ákvæði þingskapa um þau mál. Í þingsköpum segir beinum orðum, að ekki eigi að grípa til slíkra aðgerða, nema því aðeins að umr. hafi dregizt úr hófi fram. Sú umr., sem hér er um að ræða, hafði ekki staðið yfir nema 6½ klst., þegar til þessa ráðs var gripið, og það vita allir þm., að það er algengt, mjög algengt, að einstakar umr. taki miklu lengri tíma en 6½ tíma. Þessi ákvæði þingskapanna geta aðeins átt við það, að umræður séu komnar langt fram úr því, sem teljast má eðlilegt meðallag, en slíku var alls ekki til að dreifa í þessu sambandi, eins og ég hef hér sýnt fram á. Þess vegna var hér um hreinan ofbeldisverknað að ræða, sem getur verið mjög háskalegur fyrir störf og áhrif Alþingis í framtíðinni, ef frekar verður farið inn á þessa leið.
Þá má í sjötta lagi nefna það, sem líka er einsdæmi, að einn af hæstv. ráðh. krefst þess, að mál, sem hann stendur að, sé tekið á dagskrá, það sé haldinn um það næturfundur, og svo, þegar sá fundur er haldinn, þá lætur sá ráðh. ekki sjá sig og kemur ekkí þrátt fyrir hina ítrekuðustu viðleitni forseta til þess að fá hann til að mæta. Og það hafa ekki enn komið fram af hálfu hæstv. viðkomandi ráðh. eða flokksmanna hans hér á þingi neinar réttlætanlegar afsakanir fyrir þessari fjarveru hans. Hér er um að ræða alveg einstæða móðgun við Alþingi og fyrirlitningu viðkomandi ráðh. á störfum þess og jafnvei á þeim málum líka, sem hann leggur fyrir og sýnir ekki þann sóma að vera viðstaddur, þegar þau eru til umræðu. Ef til vill er þessi móðgun, sem hæstv. fjmrh. hefur sýnt með þessu athæfi sínu, eitt það alvarlegasta, sem gerzt hefur hér á Alþingi, af öllu því alvarlega, sem gerzt hefur undanfarið. Þess vegna vil ég enn á ný endurtaka það, sem ég sagði um forseta áðan, að ég tel, að hann hafi farið rétt að, þegar hann frestaði fundi í refsingarskyni við þessa framkomu ráðherrans.
Þau einstæðu vinnubrögð í sambandi við þinghaldið, sem ég hef nú minnzt lauslega á, en vil ekki gera það ýtarlega, vegna þess að mér er það ekkert kappsmál að teygja hér umr. úr hófi fram, — þessi einstæðu vinnubrögð reynir hæstv. ríkisstj. einkum að afsaka á tvennan hátt. Annars vegar með því, að henni sé nauðsynlegt að senda þingið heim, vegna þess að hún þurfi að afla sér ýmissa upplýsinga, sem hún hafi ekki fyrir hendi, og þurfi að fá vinnufrið. Og svo í öðru lagi vegna þess, að hún eigi eftir að koma sér saman um mál.
Ég skal nú víkja lauslega að þessum atriðum og sýna fram á, að þetta getur ekki haft við rök að styðjast.
Þeir flokkar, sem standa að núv. ríkisstj., hafa haft alveg nægan undirbúning til þess að ganga frá málum og leggja þau fyrir þingið. Þessir flokkar eru búnir að standa saman að stjórn landsins í nærri því ár og hafa allan þann tíma haft aðgang að öllum þeim upplýsingum, sem þarf að hafa í þessu sambandi, og hafa haft menn í þjónustu sinni til þess að vinna að þeim. Ef um sæmileg vinnubrögð er að ræða í þessum efnum, þá eiga hæstv. stjórnarflokkar að hafa greiðan aðgang að öllum upplýsingum um þessi efni og þurfa ekki að fresta störfum sínum neitt vegna þess.
Ég kem þá að hinu atriðinu, að þessir flokkar þurfi að fresta störfum þingsins vegna þess, að stj. eigi eftir að koma sér saman um mál. Ég tel, að þetta hljóti að vera ákaflega ólíklegt. Ef menn bera saman þær stefnuskrár, sem þessir flokkar höfðu í seinustu þingkosningum, þá er það mjög ólíklegt, að það sé um eitthvert ósamkomulag hjá þeim að ræða um efnahagsmálin, því að ég held, að allir sanngjarnir menn, sem lesa þessar stefnuskrár, hljóti að komast að þeirri niðurstöðu, að þær eru svo að segja nákvæmlega eins, og þar virðist því ekki vera um neinn ágreining að ræða. Ef þess vegna þessir flokkar standa við það, sem þeir lýstu yfir fyrir seinustu þingkosningar, þá getur ekki verið, að það sé um neinn alvarlegan ágreining að ræða þeirra á milli, svo að það þurfi að fresta þingstörfum vegna þess, að þeir þurfi að koma sér saman.
En jafnvel þó að þessar röksemdir ríkisstj. væru réttar, að ríkisstj. skorti upplýsingar og ríkisstj. ætti eftir að koma sér saman um víss mál, þá væri það ekki nein réttlæting á því að fresta störfum Alþingis. Það er ekki eina verkefni Alþingis að fjalla um efnahagsmál eða till., sem ríkisstj. kann fram að leggja í því sambandi. Alþingi á að fjalla um fjöldamörg mál önnur, og þegar hafa verið lögð fram mörg mál hér á Alþingi, sem Alþingi á að fjalla um. Þess vegna hefur Alþingi alveg nægilegt verkefni og nóg að gera, þó að till. stj. í ákveðnum málum liggi ekki fyrir, og því engin röksemd að fresta störfum þess og senda það heim vegna þess, að stj. eigi eftir að undirbúa einhverjar tillögur. Það er fullkominn misskilningur á verksviði Alþingis, sem hér kemur fram hjá hæstv. stj., þegar hún heldur fram röksemdum eins og þessum, sem getur ekki stafað af öðru en því, að stjórnin hefur orðið einhvern nýjan skilning á því, hvert verkefni Alþingis eigi að vera. Það kemur fram í þessu sá skilningur hjá ríkisstj., að verkefni Alþingis eigi í raun og veru ekki að vera annað en það að koma saman til fundar, þegar ríkisstj. er búin að koma sér saman um einhverjar tillögur, og ríkisstj. ag Alþingi eigi svo að segja já og amen við þessum tillögum. Þetta virðist vera það verksvið, sem hæstv. núverandi ríkisstj. ætlar Alþingi, og sjá allir þann hugsunarhátt, sem þar býr á bak við.
Þeirri röksemd hefur stundum verið hreyft af hálfu stjórnarsinna, að það sé réttmæt ráðstöfun að senda Alþingi heim, vegna þess að það muni fylgja því verulegur sparnaður. Satt að segja bjóst maður ekki við því, að ríkisstj., sem byrjar á því að fjölga ráðherrum og ráðuneytum og hefur nýlega staðið að því að fjölga þm., hafi einhverja sérstaka sparnaðarvíðleitni í huga, enda sýnir það sig líka, þegar farið er að athuga þetta mál til hlítar um þingfrestunina, að það mun ekki neinn sparnaður af því hljótast, af þeirri einföldu ástæðu, að lögum samkv. munu þingmenn halda kaupi sinu þann tíma, sem þingfrestunin stendur yfir, og það væri með öllu rangt og er ótrúlegt, að stjórnin hafi í hyggju að segja starfsfólki Alþingis upp, á meðan þingfrestunin stendur yfir. Þegar þetta tvennt er athugað, þá sést, að það getur ekki hlotizt neinn sparnaður af þingfrestuninni. Hins vegar er þó hætta í sambandi við þingfrestunina, að störf þingsins, þegar það kemur saman aftur, dragist lengra fram á veturinn eða vorið og þess vegna verði niðurstaðan sú, að af þessu hljótist aukinn kostnaður, en ekki sparnaður.
Nú munu menn svo spyrja: Hvað er það þá, sem raunverulega veldur því, að ríkisstj. hefur farið inn á þessa braut? Er það vegna þess, að hún á í einhverjum erfiðleikum í sambandi við brbl. eða í erfiðleikum í sambandi við önnur mál? Það kann e.t.v. að vera, að slíku sé til að dreifa. Þó hygg ég, að sá ágreiningur sé ekki neitt verulegur, af þeim ástæðum, sem ég hef minnzt á hér áðan, ef marka má kosningastefnuskrár þessara flokka. Það, sem ég held að vaki fyrst og fremst fyrir hæstv, ríkisstj. með þessum fyrirætlunum sínum í sambandi við þingið, er að skapa fordæmi, skapa fordæmi fyrir því að setja Alþingi meira og meira til hliðar, draga vald þess meira og meira í sinar hendur og skapa hér vísi að hálfgerðu einræðisstjórnarfari. Ég get ekki séð annað við að athuga þessi mál eins hlutdrægnislaust og hægt er frá öllum hliðum en það sé einmitt þetta, sem fyrir hæstv. ríkisstj. vakir, þ.e. að koma þingræðinu á kné og auka vald ríkisstj., en slíkt er vitanlega ekkert annað en leiðin til einræðis. Og það er kannske ekki neitt undarlegt, þó að þetta sé stefna hæstv. ríkisstj., ef það er athugað, hvaða öfl það eru, sem standa að henni. Það er vitanlegt, að á þeim árum, sem Hitler mátti sín mest í Þýzkalandi og stjarna nazismans var hæst á lofti, áttí nazisminn sterk ítök í Sjálfstfl. og einkum hjá þeim ungu mönnum, sem þá voru að vaxa upp. Ég minnist þess t.d. frá þeim tíma, að hæstv. núverandi fjmrh. skrifaði þá tímaritsgrein, þar sem var sagt, að Íslendingar þyrftu að haga stjórnarháttum sínum með hliðsjón af stjórnarfari þeirra þjóða, sem þeir hefðu mest viðskipti við, en einmitt það ríki, sem Ísland hafði einna mest verzlunarviðskipti við á þeim tíma, var Þýzkaland Hitlers. Það er öllum kunnugt, í hvers konar dálæti hæstv. dómsmrh. var hjá þeim mönnum, sem þá réðu í Þýzkalandi. Ég held, að hann hafi sjálfur sagt frá því, að hann hafi verið í svo miklum metum hjá þeim mönnum, að þeir hafi hvorki meira né minna en boðið honum að vera við aftöku, sem var alveg sérstök hátíðaathöfn að þeirra dómi.
Það er þessi hugsunarháttur, sem er að skjóta upp kollinum aftur hjá Sjálfstfl., enda eru þeir menn nú að koma í forustu flokksins meira og meira, sem voru að vaxa upp á þessum tíma og mótuðust af þeim skoðunum, sem nazistarnir héldu fram.
Það hefði mátt halda, að það kynni að vera einhver andstaða af hálfu Alþfl. gegn slíku atferli, vegna þess að hvað sem menn vilja um Alþfl. segja, þá verður það ekki af honum haft, að hann hefur yfirleitt fylgt lýðræðissinnaðri stefnu. En nú virðast þau ósköp vera komin yfir forustumenn Alþfl., að þeir þurfi í sem allra flestum málum að hafa sömu stefnuna og Sjálfstfl., og að því leyti sem þeir hafa ekki sömu stefnuna og Sjálfstfl., þurfi þeir helzt að vera hægra megin við hann. Meðan Alþfl. er í slíkum álögum og þessum, þá er ekki hægt að vænta mikillar mótspyrnu frá honum gegn þeim einræðistilraunum, sem hér kunna að vera hafðar í frammi.
Ég skal svo ekki ræða öllu frekar um þá einstæðu atburði í sambandi við þinghaldið, sem hér hafa átt sér stað og ég hef vikið nokkrum orðum að.
Mér finnst þá rétt að víkja að því, hvað það sé, sem sérstaklega valdi því, að slíkt frv. er fram komið eins og það, sem hér liggur fyrir, að það þarf nú að grípa til þess ráðs að setja bráðabirgðafjárlög, í stað þess að ganga frá fjárlögum fyrir áramót, eins og oftast hefur verið gert og ætlun stjórnarskrárinnar er. Það valda þessu að sjálfsögðu ýmsar ástæður. En ég hygg, að tvær ástæður séu þó veigamestar og valdi mestu um það, hvernig komið er okkar efnahagsmálum, sem er orsök þess, að inn á þessa leið þarf að fara.
Ég held, að önnur veigamesta ástæðan sé verkfallsbaráttan, sem Sjálfstfl. hélt uppi í tíð vinstri stjórnarinnar. Á þeim tíma, þegar vinstri stjórnin sat hér að völdum, var ekki verið að tala um það eins og nú, að þjóðin lifði um efni fram, að launastéttir, verkamenn og bændur, byggju við of góð kjör og þyrfti að skera þau niður. Þvert á móti var haldið fram hinu gagnstæða, að kjör þessara aðila væru allt of léleg og það væri alveg nauðsynlegt fyrir þá að gripa nú til verkfallsvopnsins og reyna á þann hátt að tryggja sér betri kjör og aðstöðu í þjóðfélaginu en þeir byggju við. Morgunblaðið, sem þá var undir stjórn hæstv. núv. dómsmrh., rak þennan áróður af miklum krafti og var á þeim tíma miklu kröftugra kaupkröfu- og verkfallsblað en Þjóðviljinn hefur nokkru sinni verið. Þetta bar líka þann árangur, að Sjálfstæðisflokknum með sínum undirróðri í málgögnum sinum, á fundum og innan verkalýðsfélaganna tókst að knýja fram mjög verulegar kauphækkanir. Og það átti síðan sinn þátt í því, að þær efnahagsráðstafanir, sem vinstri stjórnin gerði, náðu ekki tilætluðum árangri og stjórnin fór frá vegna ágreinings um þau mál. En þó að önnur ríkisstj, tæki þá við og gerði nokkrar ráðstafanir til þess að taka það aftur, sem Sjálfstfl. hafði verið búinn að knýja fram og þakka sér fyrir, þá hefur það ekki nægt, og þetta á sinn verulega stóra þátt í þeim efnahagserfiðleikum, sem nú er glímt við. Þetta álit ég, að sé önnur meginorsök þeirra.
Hin ástæðan til þess, hvernig nú er komið í efnahagsmálum þjóðarinnar, eru þeir stjórnarhættir í efnahagsmálum, sem hefur verið haldið uppi af fyrri samstjórn Sjálfstfl. og Alþfl., en svo kalla ég stjórn Emils Jónssonar. Þessi fyrri samstjórn Sjálfstfl. og Alþfl. hagaði stjórn efnahagsmálanna á þann veg, að hún gat ekki annað en skilið stórt flag eftir sig, þegar hún fór frá völdum. Þessi stjórn fór inn á þá braut að auka uppbætur og niðurgreiðslur um 250–300 millj. kr., og það hlaut náttúrlega einhvern tíma að því að koma, að ríkið og þegnarnir þyrftu að borga þennan reikning, þó að hægt væri að fleyta þessu áfram um nokkra stund. Þessi stjórn fór líka inn á þá braut að eyða öllum þeim sjóðum og öllu því handbæru fé, sem tiltækt var, og skildi hvergi lausan eyri eftir. Hún fleygði öllum tekjuafgangi ríkisins frá síðasta ári í verðbólguhítina, ag hún hefur meira að segja gengið svo langt til þess að innheimta tollskuldir hjá Sogsvirkjuninni að láta Seðlabankann gefa út sérstök skuldabréf til þess að reyna að greiða ríkissjóði þetta fé og fleygja því svo í verðbólguhítina. Hún fór jafnframt inn á þá braut að hrúga sem mestu inn í landið af alls konar miður þörfum lúxusvarningi til þess að afla sér tekna á þann hátt, með þeim afleiðingum m.a., að gjaldeyrisástandið í landinu er nú verra en það hefur verið um langt skeið, sennilega verra en það hefur nokkru sinni verið, síðan nýsköpunarstjórnin fór frá völdum og þurfti að grípa til hinnar illræmdu skömmtunar.
Þessu til viðbótar, er það fyrirsjáanlegt, að þessi ríkisstj. hlýtur að skilja einhverja skuldasöfnun eftir sig. Það er vitanlegt, að með slíkum hætti var ekki hægt að stjórna áfram. Og nú er komið að skuldadögunum. Nú er komið að því að greiða þann óreiðureikning, sem hin fyrri samstjórn Sjálfstfl. og Alþfl. lét eftir, og það er önnur aðalorsök þess vanda, sem nú er glimt við í efnahagsmálunum.
Ég skal svo ekki ræða þessi mál öllu meira nú að sinni. Mér fannst rétt að láta þetta, sem ég hef nú sagt, koma hér fram: í fyrsta lagi þau furðulegu vinnubrögð, sem nú er uppi haldið í sambandi við þinghaldið, og svo í öðru lagi að rekja þær orsakir, sem valda því, að slíkt frv., eins og það, sem hér er um fjallað, liggur nú fyrir.
Áður en ég lýk máli mínu, vildi ég beina nokkrum fyrirspurnum til hæstv. fjmrh. Ég hefði haft ástæðu til þess að hafa þær nokkru fleiri, en vegna þess að hv. frsm. 1. minni hl. kom hér með nokkrar fsp., sem ég ætlaði að leggja fram, get ég haft þær færri en ella, því að ég vænti, að hæstv. fjmrh, svari þeim.
Það, sem ég vildi þá spyrja hæstv. ráðh. um og að vísu að nokkru leyti er komið fram í fyrirspurnum hv. frsm. 1. minni hl. fjhn., er það, hverjar séu horfurnar með afkomu ríkissjóðs í ár. Telur ráðh., að það séu sæmilegar horfur á því, eins og haldið hefur verið fram af fyrirrennara hans, að það muni enginn greiðsluhalli verða hjá ríkissjóði á þessu ári og að skuldir ríkisins muni alls ekki aukast neitt á árinu? Á sama hátt vildi ég spyrja ráðherrann um álit hans varðandi afkomu útflutningssjóðs, hvort það sé rétt, að afkoma útflutningssjóðs sé nú í bezta lagi eða með bezta móti, eins og haldið hefur verið fram af fulltrúum fyrrv. ríkisstj., og ef svo sé, að útkoman sé svona góð bæði hjá ríkissjóði og útflutningssjóði á þessu ári, hvernig megi það þá eiga sér stað, að það séu horfur á því, að það verði um 200–300 millj. kr. halli á útflutningssjóði á næsta ári að óbreyttu ástandi. Það væri mjög fróðlegt að fá að heyra skýringar hæstv. fjmrh, á því. Að síðustu vil ég aðeins endurtaka það, sem kom hér fram hjá hv. frsm. 1, minni hl. í hans fyrirspurn: Hvert er þetta nýja efnahagskerfi, sem ráðh. var að boða hér fyrir nokkrum dögum í þinginu? Getur hann sagt þinginu eitthvað frá því núna eða gefið einhverjar vísbendingar um, hvernig það muni vera, svo að þingið fái þá nokkra vitneskju um það, sem í vændum kunni að vera af hálfu hæstv. ríkisstj. í þessum efnum?