04.12.1959
Neðri deild: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í B-deild Alþingistíðinda. (93)
16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960
Ágúst Þorvaldsson:
Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 4. þm. Norðurl. e. (GH) leyft mér að bera fram á þskj. 46 brtt. við frv. það um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði á árinu 1960, sem hér er til umræðu. En brtt. er þannig, að aftan við 1. gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi:
„Enn fremur er ríkisstj. heimilt að greiða þá 3.18% verðhækkun á afurðaverði landbúnaðarins frá 1. sept. s.l., er framleiðendum landbúnaðarvara bar samkvæmt útreikningi hagstofunnar.“
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að í sumar fóru fulltrúar neytenda úr verðlagsnefnd landbúnaðarvara og hafa síðan ekki fengizt til að tala við fulltrúa bændanna um verðlagsmál. Þegar ekki hefur orðið samkomulag í verðlagsnefndinni á undanförnum árum, hefur hagstofustjóri kveðið upp úrskurð um, hver verðlagsgrundvöllurinn ætti að vera. Bændurnir hafa þannig einir allra stétta í þessu landi búið við gerðardóm um sitt kaup. Engin önnur stétt hefur til þessa dags viljað sætta sig við slíkt. Þegar upp úr slitnaði á s.l. sumri viðræðum fulltrúa neytenda og fulltrúa bænda í verðlagsnefndinni, vegna þess að neytendafulltrúarnir hurfu frá þeim viðræðum, þá hefði ekkert verið eðlilegra en hagstofustjóri hefði kveðið upp úrskurð um, hvert verðið ætti að vera, og báðir aðilar hefðu sætt sig við þann úrskurð. En þetta vildi þáv. hæstv. ríkisstjórn ekki. Hún vildi ekki láta sér nægja, að bændur byggju við gerðardóm í kaupgjaldsmálum, heldur vildi hún skipa því með lögum, hvert kaup bænda skyldi vera, og þess vegna setti hún brbl. frægu, þar sem kveðið er svo á, að verðlagsgrundvöllurinn skuli óbreyttur vera til 15. des. n.k. Bændum einum allra stétta í landinu var þannig skipað að búa við sömu laun og áður, þrátt fyrir það þó að fyrir lægju útreikningar hagstofunnar um, að verðlagsgrundvöllurinn ætti að hækka um 3.18%.
Vinnuliðurinn í verðlagsgrundvellinum vegna kauphækkana hér í Reykjavík á s.l. ári hefði átt að hækka til samræmis í fyrra um 3.3%. En þegar efnahagslög fyrrv. stjórnar voru sett, var bændum neitað um þessa hækkun á kaupi sínu, og till. frá framsóknarmönnum á Alþingi um að taka þessi 3.3% inn í verðlagsgrundvöllinn var felld af stjórnarliðinu. Þessi 3.3% gera, miðað við ársframleiðslu meðalbús, 2200 kr. Til viðbótar því, að með þessu var bændum ekki unnað jafnréttis við aðrar stéttir, þá tel ég, að ólöglega hafi verið af þeim teknir 86 aurar af kjötkílói af framleiðslu ársins 1958, en það gerir á vísitölubú um 1500 kr., miðað við ársframleiðslu. Þarna sýnist mér þá að séu komnar um 3700 kr., sem ég tel, að rænt hafi verið af bændunum. Bændurnir eru taldir vera um 6000 í landinu, og við það mun vera miðað, þegar reiknáður er út verðgrundvöllurinn. Kemur þá í ljós, að þessi upphæð, sem þannig hefur verið af þeim tekin, er röskar 22 millj. kr.
Þá er eftir að líta á það, að stjórnin hefur mjög aukið niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum til þess að halda vísitölunni í skefjum. Hins vegar eru heimanotaðar vörur bænda ekki greiddar niður. Vegna hinna auknu niðurgreiðslna, sem munu nema á þessu ári talsvert á 2 hundrað millj. kr., er nú svo komið, að bændur leggja heimilum sínum til vörur, sem þeir sjálfir framleiða og eru af þeim ástæðum, sem ég nefndi, miklu dýrari en hinar niðurgreiddu vörur, sem neytandinn í borgum og bæjum þarf að greiða. Á þennan hátt er bóndinn ekki látinn sitja við sömu kjör og neytendur, og hljóta allir að sjá ranglætið, sem í slíku felst, þegar ein stétt er látin taka á sig miklu þyngri byrðar en aðrar.
Hvað þetta nemur miklu á meðalheimili, miðað við eitt ár, hef ég ekki gert tilraun til að reikna út, en ég hygg, að þar sé um stórfé að ræða, sem þannig er sparað til útgjalda fyrir ríkið, þannig að á þennan hátt séu bændur látnir taka á sig miklu stærri skatta en nokkrir aðrir vegna dýrtíðarinnar, og mun þar vera um nokkra milljónatugi að ræða.
Nú eru nokkrir dagar, þangað til brbl. falla úr gildi. Hvað þá tekur við, virðist eiga að vera leyndarmál þangað til. Hæstv. ríkisstjórn leggur á það áherzlu að losna við Alþ. til þess að þurfa ekkert tillit að taka til þess í þessu máli. Hún skirrist ekki við að brjóta þá hefðbundnu reglu að leggja brbl. fyrir þingið, en í staðinn skipar hún þingmönnum að fara heim og heimtar af þeim um leið, að þeir gefi henni heimild til fjárgreiðslna úr ríkissjóði.
Ég verð að segja, að mér finnst, að ekki megi nú minna vera en þingið heimili hæstv. ríkisstj. að borga til bænda úr ríkissjóði þau 3.18%, sem þeir eiga ótvíræðan rétt til að fá. Þess vegna er sú till. fram borin, sem ég er að mæla fyrir. Og ég vænti þess, að hún fái hér í þessari hv. d. góðar undirtektir og verði samþykkt. Mér fyndist, að það ætti að vera hæstv. ríkisstj. gleðiefni að finna það, að þingmenn vilja bændum vel. Þá getur ríkisstj., ef till. verður samþ. hér og hún fær greiðsluheimildina, sem till. fjallar um, sent bændum þessa greiðslu fyrir tímabilið frá 15. sept. til 15. des. núna fyrir jólin, og ég er viss um, að það mundi gleðja margt sveitaheimilið.
Stjórn Stéttarsambands bænda mótmælti brbl. kröftuglega og kallaði síðan saman aukafund Stéttarsambandsins. Þar var samþykkt ályktun, sem svo hljóðar, með leyfi hæstv. forseta:
„Aukafundur í Stéttarsambandi bænda, haldinn í Reykjavík 30. sept. 1959, mótmælir harðlega því gerræði gagnvart bændastéttinni að ákveða með bráðabirgðalögum verðlag landbúnaðarvara og svipta bændur á þann hátt lögvernduðum samningsrétti þeirra og málskotsrétti til yfirdóms varðandi kaup þeirra og kjör.
Fundurinn krefst þess, að ríkisstj. hlutist til um, að yfirnefnd sú, sem um ræðir í 5. gr. laga um framleiðsluráð landbúnaðarins, verði nú þegar gerð starfhæf, svo að fundinn verði nýr grundvöllur til að byggja verðlagningu á.
Fundurinn viðurkennir nauðsyn þess, að dregið sé úr verðþenslu, en neitar því, að það þurfi að leiða til aukinnar verðbólgu, þó að bændur fái þá verðhækkun, sem aðrar stéttir fengu fyrir ári. Þó getur hann eftir atvíkum fallizt á, að frestað verði til 15. des. n.k. að láta koma til framkvæmda þá hækkun á verði landbúnaðarafurða, sem bændum ber til samræmis við kauphækkun annarra stétta og vegna hækkaðs rekstrarkostnaðar, síðan verðlag var ákveðið 15. sept. 1958. Að sjálfsögðu krefst fundurinn þess, að bændur fái fullar bætur frá ríkissjóði vegna þess mismunar á verðinu, sem fram kann að koma við úrskurð yfirdóms þann tíma, sem frestun verðhækkunarinnar gildir.
Verði ekki framangreindum kröfum fundarins fullnægt, felur fundurinn stjórn Stéttarsambands bænda að undirbúa sölustöðvun á landbúnaðarvörum til að mótmæla þeirri réttarskerðingu, sem bændastéttin og félagssamtök hennar eru beitt með þessum aðgerðum, og freista þess að fá henni hrundið á þann hátt.
Allir fulltrúarnir samþykktu þessa ályktun. Þáv. hæstv. forsrh. svaraði samþykkt fundarins með bréfi 9. okt. Með leyfi hæstv. forseta — mun ég lesa seinni hluta bréfsins, en þar segir svo:
„Með brottför neytendafulltrúanna úr verðlagsnefndinni og neitun þeirra á því að tilnefna mann í yfirnefndina hefur skapazt ástand, sem ekki er gert ráð fyrir í lögunum um framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl. og nokkuð virðist geta orkað tvímælis um, hvernig við skuli bregðast. Ríkisstj. hefur talið, að eðlilegast sé að biða með endanlega afgreiðslu málsins, þangað til hið nýkjörna þing kemur saman, og láta það skera úr. Þetta er þeim mun eðlilegra, þar sem upplýst er, að þetta mundi ekki valda neinum töfum að ráði á greiðslu bóta, ef samþykktar verða, enda og á það fallizt af fundi Stéttarsambandsins að fresta framkvæmdum til 15. des. Ótímabærar ákvarðanir í þessu máli nú gætu einnig valdið óheppilegu kapphlaupi við launþegasamtökin, sem ríkisstj. telur höfuðnauðsyn að koma í veg fyrir. Að því hlýtur því að verða stefnt að leysa þessi mál öll með samkomulagi, þegar hið nýkjörna þing kemur saman, og einn þátturinn í því samkomulagi mun sjálfsagt verða að koma á þeirri skipan verðlagsmála landbúnaðarins, sem báðir aðilar, framleiðendur og neytendur, geta staðið saman að, eins og verið hefur. Virðist því eðlilegt að bíða aðgerða Alþingis.“
Þannig hljóðaði seinni partur bréfs forsrh. En mér sýnist nú, að hæstv. ríkisstjórn ætli ekki að gera mikið með það, sem í þessu bréfi stendur. Þess vegna er það, sem brtt. sú er flutt, sem hér hefur verið gerð grein fyrir. Með því að samþykkja hana fær Alþ. tækifæri til þess að taka fram fyrir hendur þeirrar hæstv. ríkisstj., sem nú situr og mér sýnist að hafi gert það að sínu fyrsta boðorði og takmarki að losa sig sem allra fyrst við hið nýkjörna Alþingi.
Í sumar héldu þessir sömu menn því fram, að hin nýja kjördæmaskipan mundi leiða til þess, að hér yrði mjög heilbrigt stjórnarfar.
Eins og hér hefur áður verið minnzt á í þessum umræðum, þá er það ískyggilegt tímanna tákn frá mínu sjónarmiði, að það skuli verða fyrsta verk hinnar nýju ríkisstj. að berjast fyrir því, að þingið fari heim, án þess að það fái nokkuð um það að vita, hvað hæstv. stjórn ætlar fyrir sér í efnahagsmálum.
Eftir nokkra daga falla úr gildi hin illræmdu bráðabirgðalög um kaupgjald bændanna. Hér hafa engin svör fengizt við því, hvað við taki, þegar þau eru úr gildi fallin.
Hæstv. fjmrh. sagði hér í umr. á Alþ., að stjórnin hefði í hyggju að setja hér nýtt efnahagskerfi í landinu. Hann lét ekkert uppi um það, hvers konar efnahagskerfi þetta ætti að vera. Í rauninni hefur þessi þjóð um langan aldur búið við efnahagskerfi, ef efnahagskerfi skyldi kalla, sem er eins konar hrærigrautur úr kapítalisma og sósialísma, og mætti margt um það segja, bæði gott og illt. En hvaða efnahagskerfi er það, sem nú á að koma hér? Er það hreint ríkisrekstrarkerfi samkv. kenningum jafnaðarmanna, sem þeir hafa alls staðar í heiminum boðað, að koma skyldi, ef þeir fengju völd? Eða er það hið kapítalíska samkeppnishagkerfi, eitthvað t.d. svipað því, sem Bandaríkin hafa og Sjálfstfl. hér oft telur hið æskilegasta fyrirkomulag og hið eftirsóknarverðasta? Hvor stjórnarflokkurinn er það, sem ræður stefnunni, og hvað verður ofan á? Það er hin stóra spurning, sem fólkið í þessu landi veltir nú fyrir sér.
Sé það meiningin að framkvæma hér eitthvert nýtt efnahagskerfi, þá er það einkennilegt af þeim flokkum, sem það ætla að gera, að hafa ekkert á það minnzt í nýafstöðnum kosningum. Hvers vegna var þetta nýja efnahagskerfi ekki útlistað fyrir hv. kjósendum í kosningunum nú í haust, svo að þeir gætu þá tekið afstöðu til þess? Þá var ekki á þetta minnzt, svo að ég yrði var við.
En eitt atriði gæti þó gefið bendingu um, hvert stefnt verður. Það eru brbl. hæstv. ríkisstjórnar. Með þeim lögum voru bændur landsins a.m.k. um stundarsakir gerðir að hálfgildings þrælum, þar sem þeim var fyrir vinnu sína skammtað kaup með lögum, sem engri annarri stétt hefur verið skammtað á þann hátt. Þeir hafa því verið hálfgerðir ríkisþrælar síðan, og á þeirra bök hafa verið lagðar þyngri byrðar en annarra þegna þjóðarinnar, eins og ég með dæmum hef hér sannað. Á hið nýja hagkerfi, sem nú á að koma hér á, að byggjast upp á slíkum og þvílíkum aðgerðum? Og er það til þess að koma slíku í framkvæmd á fljótvírkan og auðveldan hátt, sem þingið er sent heim eftir fárra daga setu? Slíkar eru nú spurningar bæði alþingismanna og annarra þegna í þessu þjóðfélagi.
Ég vil að lokum taka undir þá kröfu, sem hv. 1. þm. Austf. (EystJ) og fleiri hafa borið hér kröftuglega fram, að þessu þingi verði ekki frestað, fyrr en brbl. hafa fengið þinglega meðferð og tryggt hefur verið með lögum eða á annan hátt, að bændur njóti sama réttar um kaup og kjör og þeir hafa haft.