02.06.1960
Neðri deild: 93. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2573 í B-deild Alþingistíðinda. (967)
135. mál, ríkisreikningurinn 1957
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður, yfirendurskoðandi ríkisreikninganna, minntist hér í ræðu sinni á vanskilaskuldir hjá Áfengisverzlun ríkisins, og þá vil ég upplýsa það að gefnu tilefni, að það, sem hann átti við og kom í raun og veru nokkuð fram í ræðu hans, það var, að byggingarsjóður Áfengisverzlunar ríkisins er nú að upphæð 11 millj. kr., hann hefur myndazt smátt og smátt, aðallega af vöxtum og lítillega af framlagi ríkissjóðs, og hann er svo hár sem þetta vegna þess, að eigi hefur enn verið heimilað að hefja byggingu fyrir þetta fyrirtæki, sem þó verður að telja nauðsynlegt. Vanskilaskuldir, sem hv. endurskoðandi var að minnast á, eru hjá þeim fyrirtækjum, sem hafa fengið lánað hjá sjóðnum með ríkisábyrgð, en ég tel, að ríkissjóður hefði að sjálfsögðu verið búinn að standa við sína ábyrgð, ef úr framkvæmdum hefði orðið hjá fyrirtækinu. Án þess að ég þurfi nokkuð að vera að bera í bætifláka fyrir fjmrn., hefur undir umr. alltaf það sjónarmið komið fram hjá rn., að með því að sjóðurinn hefur ekki þurft á peningunum að halda til framkvæmda, þá hefur ekki umrædd skuld verið greidd af ábyrgðaraðila.
Þau lán, sem hafa verið veitt úr þessum sjóði, eru öll veitt gegn öruggum tryggingum og til þess eins að afla sjóðnum frekari tekna en fengjust af innlánsbókum. Og ég get upplýst það hér á hinu háa Alþ., að þau útlán, sem hafa átt sér þarna stað, siðan þessi sjóður var stofnaður, eru örugglega trygg og mundu að sjálfsögðu verða greidd, þegar fyrirtækið fær heimild til að byggja.