24.05.1960
Efri deild: 83. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2582 í B-deild Alþingistíðinda. (976)
169. mál, Búnaðarbanki Íslands
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er nú ekki ástæða til í sjálfu sér að bæta miklu við það, sem ég sagði áðan, sízt eftir þessa ræðu, sem hv. 2. þm. Vestf. (HermJ) hefur flutt hér, vegna þess að hann kom ekki í rauninni með neitt fram í sinni ræðu, sem færir stoðir undir skoðanir hans í þessu máli.
Hv. þm. heldur því ákveðið fram, að það sé engin þörf á að breyta lögum um Búnaðarbanka og þá eftir því, sem síðar kom fram í ræðu hans, einungis vegna þess, að Framsfl. hefur meiri hl. í bankaráðinu. Það er þess vegna, sem er ekki þörf á því.
Hv. þm. minntist á það, að bankalöggjöfinni hafi verið breytt í tíð vinstri stjórnarinnar, það hafi ekki þótt ástæða til þess þá að breyta l. um Búnaðarbanka, heldur Útvegsbanka og Landsbanka, vegna þess að einn ákveðinn flokkur átti þar óeðlilega mikil ítök, hafði þar óeðlilega mikil völd. Eins og hv. þm. orðaði það, voru þetta tveir aðalbankar landsins, Landsbankinn og Útvegsbankinn. Ég vil alls ekki taka undir það, að Útvegsbankinn, svo að ég bara nefni hann, sé nokkuð frekar höfuðbanki en Búnaðarbankinn. Ég vil alls ekki skrifa undir það, að Búnaðarbankinn gegni minna hlutverki í þjóðfélaginu en Útvegsbankinn. Og það vita allir, hvers vegna lögum um Búnaðarbankann var ekki breytt í vinstri stjórninni, það var engu hreyft þar. Það var vegna þess, að Framsfl. hafði þá þau ráð í ríkisstj., að hann gat hindrað það. Framsfl. hafði þá eins og nú meiri hluta í bankaráðinu, og þá var ekkert að því að spyrja, að þetta var bezt svona. Og hv. þm. skilur það ekki, að við sjálfstæðismenn skulum leggja áherzlu á að breyta bankaráði Búnaðarbankans, þar sem við fáum, eins og hann orðaði það, tækifæri eftir hálft ár að skipa formann bankaráðsins og þá þannig meiri hlutann í bankaráðinu. Það er eðlilegt sjónarmið hv. þm., að hann líti svona á þetta. En við sjálfstæðismenn gerum það ekki. Við teljum, að enda þótt við eigum möguleika á því að fá meiri hlutann í bankaráðinu, breytist löggjöf bankans ekki til batnaðar við það. Hér er um það að ræða að breyta lögum um bankann, en ekki að kjósa þennan eða hinn í bankaráðið. Meiningin með þessu frv. er það að koma þeim stoðum undir stofnunina, að hún geti starfað með vaxandi orðstír og gegnt sínu hlutverki öllu betur en áður, enda þótt ég sé ekki að vanþakka það, sem áunnizt hefur í þessari stofnun, og eins og ég tók fram áðan, þá tel ég, að bankanum hafi verið vel stjórnað af hendi bankastjórans, að svo miklu leyti sem hann gaf sig að því. Hinu verður ekki neitað, að bankinn er nú í mjög slæmri aðstöðu, vegna þess að það er rétt, sem stjórn bankans hefur látið frá sér fara, að fjárfestingarsjóðir bankans hafa verið að éta síg upp að undanförnu. Það verður að breyta þarna um og tryggja það, að sjóðirnir geti starfað með eðlilegum hætti og gert það gagn landbúnaðinum, sem þeir hafa undanfarið að mörgu leyti gert og þeim er vitanlega ætlað að gera áfram. Ég fullyrði, að til þess að þetta geti tekizt, er nauðsynlegt, að litið sé á bankann eins og aðra bankastofnun, sem sé stjórnað og rekin með lýðræðislegum og eðlilegum hætti. Það er hreinn misskilningur, að það sé verið með þessari breyt. á l. að slíta bankann úr tengslum við bændur, því að þótt landbn. hafi að undanförnu kosið bankaráðið, þýðir ekki að halda því fram, að þeir einir, sem sæti hafa átt í landbn., hafi ráðið því, hverjir hafi verið kosnir í bankaráð. Það eru vitanlega þingflokkarnir, sem ákváðu, hverjir skyldu kosnir, en ekki aðeins þeir menn, sem sæti áttu í nefndunum.
Hinu get ég svo ekki að gert, þótt hv. 2. þm. Vestf. hafi það álit á sjálfum sér, að hann telji, að bankanum sé bezt borgið með því, að hann sé formaður bankaráðsins og framsóknarmenn hafi meiri hluta í bankaráðinu, og það er alveg ástæðulaust út af fyrir sig að metast um það. Það er líka eðlilegt, að þess sé minnzt, að Búnaðarbankinn hefur viðtækari starfsemi en að lána úr fjárfestingarsjóðunum. Búnaðarbankinn hefur stóra sparifjárdeild. Ég gæti næstum því trúað, að sparisjóðsdeild Búnaðarbankans væri litlu minni, kannske alveg eins stór og t.d. sparisjóðsdeild Útvegsbankans. Og þegar hv. þm. var hér áðan að tala um hliðstæður, að Búnaðarbankinn væri hliðstæða við Verzlunarbankann, sem er verið að stofna, og Iðnaðarbankann, en ekki Útvegsbankann og Landsbankann, þá er það alveg sérstakt, að maður, sem er svo kunnugur í okkar banka- og atvinnumálum, skuli bera þetta á borð. Ef við eigum að tala um hliðstæður, þá eru það Útvegsbankinn og Búnaðarbankinn. Útvegsbankinn er með ýmsa sjóði fyrir útveginn, t.d. fiskveiðasjóð og ýmsa fleiri sjóði, um leið og hann hefur sparisjóðsdeild. Eigi að síður, þótt Útvegsbankanum væri upphaflega ætlað að vera fyrst og fremst banki fyrir sjávarútveginn og hafi starfað þannig ásamt sparisjóðsdeildinni, fannst hv. 2. þm. Vestf. eðlilegt, að bankaráð Útvegsbankans væri kosið af Sþ., en ekki af sjávarútvegsnefndum Alþingis. Og það hefur engin krafa komið upp um það frá útvegsmönnum, að sjútvn. Alþingis kysu bankaráð Útvegsbankans, vegna þess að það hefur verið viðurkennt, að þar sem Útvegsbankinn er ríkisbanki, starfar með ríkisábyrgð og hefur oft fengið fyrirgreiðslu frá ríkinu, þótti eðlilegt, að bankaráðið væri kosið af Alþ. Og vegna þess að Búnaðarbankinn þarf á því að halda nú fremur en nokkru sinni fyrr að fá aðstoð frá ríkisstj, og Alþ. til þess að geta innt hlutverk sitt af hendi, til þess að unnt verði að koma þeim stoðum undir fjárfestingarsjóðina, sem nauðsynlegt er, er nauðsynlegt, að látið sé á þessa stofnun sem ríkisstofnun, sem Alþ. og ríkisstj, hefur fullkomnar skyldur við. Það er nauðsynlegt að útiloka þá hugmynd eða hugsun, sem kynni að skjóta upp hjá einstaka mönnum, að Búnaðarbankinn væri að vissu leyti rekinn sem einkafyrirtæki. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að svo hafi verið, og alls ekki á meðan núv. bankastjóri ræður þar ríkjum. En hitt hefur komið fram átakanlega, að bankastjóri Búnaðarbankans og bankaráðsmaður, sem er ekki framsóknarmaður, hafa verið bornir ofurliði, og það hefur verið samþykkt með 2 atkv. framsóknarmanna gegn atkv. bankastjóra og þriðja bankaráðsmannsins að gera hluti, sem a.m.k. mátti telja vafasama. Og þetta leiðir ekki til þess að auðvelda að útvega sjóðum Búnaðarbankans það fé, sem þeir þurfa. Það gerir ekki auðveldara að koma þessum sjóðum á starfshæfan grundvöll, eins og gera ber og gera verður. Það verður auðveldast með því, að stjórn þessara banka verði kosin á sama hátt og annarra ríkisbanka, og hlutur bændastéttarinnar mun verða bezt tryggður með því, vegna þess að stofnunin þarf að fá stuðning frá fleirum en þeim, sem kosnir eru af bændum, og auk þess hefur það stundum komið fram, að það er ekki nóg, þótt einn þm. og annar séu kosnir af bændum, þeir geta jafnvel gleymt að vera á verði fyrir því. Og þegar hv. 2. þm. Vestf. talar um hliðstæðurnar í Iðnaðarbankanum og Verzlunarbankanum við Búnaðarbankann, er það náttúrlega hrein fjarstæða að tala um það sem hliðstæðu, vegna þess að báðir þessir bankar, eins og hv. þm. sagði, starfa án ríkisábyrgðar og án þeirrar fyrirgreiðslu frá Alþ. og ríkisstjórn, sem þeir vitanlega óska eftir, og hafa ekki fengið neina sambærilega fyrirgreiðslu og Búnaðarbankinn hefur fengið og þarf að fá, ríkisábyrgð. Ef þessir bankar, Iðnaðarbankinn og Verzlunarbankinn, fá ríkisábyrgð og fara að fá opinberan stuðning í sambandi við fjárframlög, eins og Búnaðarbankinn hefur fengið og þarf að fá, þá vitanlega kæmi sú krafa upp, að Alþ. kysi bankaráðið, en ekki fulltrúar iðnaðarmanna og verzlunarmanna. En ég tel það svo mikils virði fyrir Búnaðarbankann að styrkja aðstöðu sína þannig á breiðum grundvelli, eins og hér er lagt til í þessu frv., að það sé illt verk gagnvart bændum og bankanum að spyrna þar í gegn og að þeir menn, sem það gera, stjórnist of mikið af þröngsýni og eiginhagsmunum, vegna þess að atvikin hafa hagað því svo, að þeir hafa verið í bankaráði bankans og stjórnað þar um skeið.
Ég held, að ég hafi nú drepið á flest, sem hv. 2. þm. Vestf, minntist á hér áðan, og eins og ég sagði í upphafi, var það svo veigalítið, að það gefur ekki tilefni til þess að fara mörgum orðum þar um, og sízt af öllu til þess að vera að munnhöggvast í því sambandi. Að sjálfsögðu má skoða þetta frv. í n., og ef komið væri með brtt. við frv., sem sýnilega væri til bóta, er vitanlega sjálfsagt að taka slíka tillögu til athugunar. En veigamesta atriðið hjá hv. þm. var það, og hann reyndar boðaði brtt. um það að halda bankanum áfram í tengslum við bændur. Það vildi ég vitanlega gera líka, að halda honum í tengslum við bændur. Og ég tel, að við getum á einn hátt haldið Búnaðarbankanum í tengslum við bændur, með því að sameinast um það að koma lánasjóðum bankans á starfshæfan grundvöll, gera ráðstafanir til þess að greiða lausaskuldir sjóðanna, óreiðuskuldirnar, gera ráðstafanir til þess að afla fjárfestingarsjóðum Búnaðarbankans þess fjár, sem þeir þurfa til þess að geta haldið áfram að lána bændum, og að þessi lán megi, að svo miklu leyti sem mögulegt er, miðast við það að fullnægja sem mest þörfinni, þörf bændanna fyrir lánsfé, en hún er vitanlega vaxandi með vaxandi dýrtíð. Byggingarefni hefur hækkað, og vélar hafa hækkað. Bankann vantar ekki heimildir til að lána. Ræktunarsjóður hefur heimild til að lána út á vélar, en hefur ekki getað það undanfarin ár, vegna þess að það hefur skort fé. Bankinn hefur heimild til þess að lána hærri hundraðshluta út á peningshús og út á ræktun, en það hefur orðið að takmarka það vegna fjárskorts. Og bankinn hefur heimild til þess að lána nærri 75 þús. kr. út á íbúðarhús í sveitum. Hann hefur heimild til þess að lána allt að 75% af kostnaðinum, en hefur vegna fjárskorts undanfarið orðið að skera þetta niður í 20–30%. Og veðdeildin hefur heimild til þess að lána meira en 35 þús. kr. út á býlin, en lánið hefur verið miðað við það, vegna þess að það hefur ekki verið fjármagn til þess að lána einu sinni 35 þús. kr. Þetta er ekki sagt í ásökunartón á þá, sem hafa stjórnað bankanum, þetta er aðeins sagt vegna þess, að þetta er staðreynd. Og við þetta tækifæri, þegar sagt er, að það sé engin nauðsyn að breyta lögum um bankann, þá vil ég segja: Það er nauðsynlegt að fá breiðari og sterkari grundvöll undir bankann en verið hefur, til þess að bankinn geti verið í sem nánustum tengslum við bændur og lánað þeim fé í sem mestu samræmi við fjárþörfina. Og það er þetta, sem ég vil undirstrika, það er þetta, sem ég legg áherzlu á, að bankinn geti verið í sem nánustum tengslum við bændur og þjónað því hlutverki, sem honum var ætlað frá því fyrsta.