27.05.1960
Efri deild: 85. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2592 í B-deild Alþingistíðinda. (982)

169. mál, Búnaðarbanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur ekki orðið sammála um afstöðu til þessa frv. Fjórir nm. standa að nál. því, sem birt er á þskj. 527, en einn nm., hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK), hefur lýst sig andvígan frv. og lagt fram sérstakt nál.

Það er skoðun þeirra nm., sem að áliti meiri hl. standa, að sú breyt., sem gerð er á lögum um Búnaðarbanka Íslands með stjórnarfrv. þessu, sé eðlileg og til þess fallin að styrkja aðstöðu bankans og koma eðlilegri skipan en nú er á stjórn hans.

Við 1. umr. þessa máls rakti hæstv. landbrh. málsástæður þær, sem fyrir því liggja, að ríkisstj. hefur flutt frv. þetta, og sé ég ekki ástæðu til þess að endurtaka þær röksemdir.

Það sýnist augljóst mál, að eðlilegt sé, að bankaráð Búnaðarbankans sé skipað svo sem bankaráð annarra ríkisbanka, þannig, að það sé allt kosið af Alþingi með hlutfallskosningu.

Með þessu frv. er auk þessarar skipulagsbreytingar á yfirstjórn bankans lagt til að veita heimild til að fjölga bankastjórum. Það er till. n., að þessi heimild til fjölgunar bankastjóra sé takmörkuð við tvo, og telja þrír nm., sem að meirihlutaálitinu standa, að sú breyting sé eðlileg. Hins vegar telur einn af nm., hv. 5. þm. Norðurl. e. (BjörnJ), ekki eðlilegt, að bankastjórum sé fjölgað, og hefur hann skrifað undir nál. með þeim fyrirvara, svo sem um getur í nál.

Það var skýrt af hæstv. landbrh, við 1. umr. málsins, að það væri skoðun ríkisstj., að eðlilegt væri að heimila slíka fjölgun bankastjóra sem hér er um að ræða, og getur það naumast talizt óeðlilegt. Miðað við þá bankastjóratölu, sem er í öðrum ríkisbönkum, og miðað við þá umfangsmiklu starfsemi, sem Búnaðarbankinn hefur með höndum, virðist eðlilegt, að þessi heimild sé fyrir hendi, og kemur þar svo að sjálfsögðu til kasta hins nýkjörna bankaráðs og þess ráðherra, sem fer með yfirstjórn bankans, að ákveða um það, hvort slík heimild verður notuð eða ekki, og verður það þá að sjálfsögðu metið eftir því, sem þessir aðilar telja að bankanum henti.

Ég sé ekki ástæðu til á þessu stigi málsins að orðlengja frekar um málið, en það er till. umrædds meiri hl. fjhn., að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem birt er í nál., en sú breyt. er þess eðlis efnislega, að í stað þess, að fjölgun bankastjóra var ekki bundin í frvgr., eins og hún liggur fyrir, er lagt til, að þau takmörk verði á sett, að bankastjórar megi ekki vera fleiri en tveir.

Þá hefur n. enn fremur þótt eðlilegt að gera þá breyt. á niðurlagi 1. gr., sem er um eftirlaun, að um það gildi sömu reglur og eftirlaun bankastjóra við Landsbankann, þar eð laun bankastjóra eru miðuð við laun bankastjóra Landsbankans, og er því eðlilegt, að um eftirlaun gildi sama regla, enda eru þau eftirlaunaákvæði, sem í frumvarpsgreininni felast upphaflega, úrelt og því eðlilegra, að þessi háttur sé á hafður.

Það er því, herra forseti, till. meiri hl. n., að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem birt er í nál. meiri hl. á þskj. 527.