28.05.1960
Efri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2610 í B-deild Alþingistíðinda. (989)

169. mál, Búnaðarbanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð vegna þeirra ummæla, sem hv.1. þm. Norðurl. e. (KK) hafði hér áðan og mér þóttu næsta einkennileg, af því að þau komu úr þeirri átt. Hann sagði, að það væri jafnan talið til fordæma, sem fyrst er gert, og taldi, að það væri eðlilegt, að það leiddi af sér síðar svipuð viðbrögð, ef einu sinni hefði verið gerð ákveðin ráðstöfun, og átti hann hér þá við það að fella niður umboð kjörinna eða skipaðra bankaráðsmanna. Ég held, að hv. 1. þm. Norðurl. e. sé áreiðanlega það minnisgóður maður, að hann viti það gerla, að þegar vinstri stjórnin breytti bankalöggjöfinni, enda þótt hún þá af einhverjum sérstökum ástæðum gleymdi Búnaðarbankanum, þá var fellt niður umboð allra bankaráðsmanna landsbankanefndar og allra þeirra aðila, sem þar áttu hlut að máli, hvernig svo sem þeir höfðu kjörnir verið, þannig að ef það er svo, eins og hann sagði, að það sé eðlilegt að líta á fordæmin og miða seinni verk við þau, þá vissulega hefur hans ágæti flokkur og þeir, sem þá studdu hann að því verki, gefið svo ótvírætt fordæmi í þessu efni, að það er naumast hægt fyrir hann að hneykslast yfir því, að hér skuli vera lagt til að fella úr gildi með breytingu þeirri, sem nú er lagt til að gera á lögum um Búnaðarbanka, umboð þeirra bankaráðsmanna, sem nú sitja þar. Mér sýnist því, miðað við það, sem hann taldi eðlilegt þá, að þá hljóti hann einnig að fallast á, að þetta sé eðlilegt, sem nú er gert, og í beinu framhaldi af því, sem þá var lögfest. Og af þeim sökum sýnist mér eðlilegt, með hliðsjón af því fordæmi, að það sé gerð sú breyting og umboð fellt niður, svo sem hér er lagt til, og skiptir í því efni að sjálfsögðu engu máli, hvort Alþ. hefur sjálft ákveðið á sínum tíma að tilnefna slíka menn eða ákveðið, að ráðherrar skuli tilnefna mennina. Í öllum tilfellum er það frá Alþingi komið, hvernig mennirnir eru í þetta starf settir. Og þar sem hér er ekki um nein embætti að ræða, heldur aðeins nefndir, sem talið er eðlilegt að kjósa á tilteknu árabili, mun ekki talið, a.m.k. miðað við það, sem áður hefur gerzt í þeim efnum, á neinn hátt óeðlilegt það, sem hér er um að ræða, og sýnist mér því ekki á neinn hátt eðlilegt, að sú brtt., sem hér er flutt, verði samþykkt.