28.05.1960
Efri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (991)
169. mál, Búnaðarbanki Íslands
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Ég hef ekki tekið þátt í þessum umræðum, nema hvað ég gerði stuttlega grein fyrir afstöðu minni og flokks míns við 1. umr., og það stafar m.a. af því, að hér er verið að deila um atriði, sem snertir starf, sem ég gegni, þó að það skipti mig æði litlu máli, hvort það umboð, sem ég hef, er lagt niður fyrr eða síðar. En vegna þess að hér hefur verið vikið að því, að það hafa verið gefin fordæmi um þetta atriði af þeirri ríkisstj., sem ég veitti forstöðu, og það er gert hvað eftir annað, neyðist ég til að gera örstutta grein fyrir þeim mismun, sem er á þessu tvennu.
Ég býst við, að það séu fáir, ef það er nokkur, sem getur mótmælt því, að það sé erfitt fyrir ríkisstj„ meira að segja útilokað fyrir ríkisstj. að stjórna peningamálum þjóðar, sem eru þó fyrst og fremst eitt af því, sem stjórna þarf, ef aðalstjórnarandstöðuflokkurinn ræður yfir aðalbanka þjóðarinnar, þjóðbankanum, seðlabankanum, og til viðbótar öðrum aðalbanka, bæði að því er snertir bankaráð og bankastjóra og afhendingu gjaldeyris. Og ég geri ráð fyrir því, að það verði fáir, sem halda því fram, að það hafi ekki verið af óumflýjanlegri nauðsyn, sem þær ráðstafanir voru gerðar. Það er þetta, sem ég gerði grein fyrir við 1. umr. Það gegnir því nokkuð öðru máli en um banka, sem er sérbanki og stjórnin, ef hún á líf fyrir höndum, sem ég geri ráð fyrir að hún a.m.k. ætli sér, fær umráð yfir eftir örstuttan tíma.
Þetta er meginmunurinn á því fordæmi, sem gefið er með þeim ráðstöfunum, sem sú stjórn, sem ég veitti forstöðu, gerði, og þeim ráðstöfunum, sem nú eru gerðar. Hér er seilzt svo langt, eins og hefur verið margendurtekið og ég vil enn í lok þessara umræðna vekja athygli á, að það er talið, að það verði að gera það að reglu, eins og kom fram hér í ræðu hæstv. landbrh. og fleiri þm. af sama flokki, að meiri hluti bankaráðs, meiri hluti í stjórn hvers einasta banka í landinu, — því að það er talið, að það þurfi að gera breytingar á hinum í haust, — verði að vera í samræmi við þann meiri hluta, sem fer með stjórn landsins hverju sinni, ekki aðeins meiri hluta, sem kosinn er við hverjar kosningar, heldur meiri hlutann, sem stendur að baki hverri stjórn. Það er ekki nóg að breyta til eftir hverjar kosningar hér eftir samkv. reglunni, heldur þarf að breyta til, ef það verða stjórnarskipti og aðrir flokkar fara með völd. Þetta er gert að meginreglu og slegið ófrávíkjanlega föstu með þessari reglu, þar sem seilzt er svo langt, að ekki er hægt að bíða í nokkra mánuði eftir því að breyta til um sérbanka, banka einnar stéttar.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál. Þessi brtt. skiptir náttúrlega litlu máli til eða frá, nema til þess, eins og flm. sagði, að fá atkvgr. um hana til að undirstrika enn á ný, að hér sé föst regla upp tekin, sem er þess verð, að henni sé veitt athygli.