10.10.1960
Sameinað þing: 1. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Alfreð Gíslason, 8. landsk. þm.

2. Alfreð Gíslason, 9. þm. Reykv.

3. Auður Auðuns, 2. þm. Reykv.

4. Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Sunnl.

5. Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl.

6. Birgir Finnsson, 5. þm. Vestf.

7. Birgir Kjaran, 6. landsk. þm.

8. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Reykv.

9. Bjartmar Guðmundsson, 10. landsk. þm.

10. Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl.

11. Björn Pálsson, 5. þm. Norðurl. v.

12. Eðvarð Sigurðsson, 2. landsk. þm.

13. Eggert G. Þorsteinsson, 10. þm. Reykv.

14. Einar Ingimundarson, 4. þm. Norðurl. v.

15. Einar Olgeirsson, 3. þm. Reykv.

16. Emil Jónsson, 2. þm. Reykn.

17. Eysteinn Jónsson, 1. þm. Austf.

18. Finnbogi R. Valdimarsson, 5. þm. Reykn. 19. Friðjón Skarphéðinsson, 5. landsk. þm.

20. Garðar Halldórsson, 4. þm. Norðurl. e.

21. Geir Gunnarsson, 7. landsk. þm.

22. Gísli Guðmundsson, 3. þm. Norðurl. e.

23. Gísli Jónsson, 1. þm. Vestf.

24. Guðlaugur Gíslason, 3. þm. Sunnl.

25. Guðm. I. Guðmundsson, 3. landsk. þm.

26. Gunnar Gíslason, 2. þm. Norðurl. v.

27. Gunnar Jóhannsson, 11. landsk. þm.

28. Gunnar Thoroddsen, 6, þm. Reykv.

29. Gylfi Þ. Gíslason, 4. þm. Reykv.

30. Halldór Ásgrímsson, 2. þm. Austf.

31. Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl.

32. Hermann Jónasson, 2. þm. Vestf.

33. Ingólfur Jónsson, 1. þm. Sunnl.

34. Jóhann Hafstein, 5. þm. Reykv.

35. Jón Árnason, 4. þm. Vesturl.

36. Jón Skaftason, 4. þm. Reykn.

37. Jón Þorsteinsson, 9. landsk. þm.

38. Jónas G. Rafnar, 2. þm. Norðurl. e.

39. Karl Guðjónsson, 6. þm. Sunnl.

40. Karl Kristjánsson, 1. þm. Norðurl. e.

41. Kjartan J Jóhannsson, 3. þm. Vestf.

42. Lúðvík Jósefsson, 4. þm. Austf.

43. Magnús Jónsson, 6. þm. Norðurl. e.

44. Matthías Á. Mathiesen, 3. þm. Reykn.

45. Ólafur Björnsson, 11. þm. Reykv.

46. Ólafur Jóhannesson, 3. þm. Norðurl. v.

47. Ólafur Thors, 1. þm. Reykn.

48. Páll Þorsteinsson, 5. þm. Austf.

49. Pétur Sigurðsson, 12. þm. Reykv.

50. Sigurður Ágústsson, 2. þm. Vesturl.

51. Sigurður Ingimundarson; 1. landsk. þm.

52. Sigurður Ó. Ólafsson; 5. þm. Sunnl.

53. Sigurvin Einarsson, 4. þm. Vestf.

Framantaldir þingmenn voru allir á fundi. Ókomnir til þings voru:

1. Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl.

2. Björn Jónsson, 5. þm. Norðurl. e.

3. Hannibal Valdimarsson, 4. landsk. þm.

4. Jónas Pétursson, 3. þm. Austf.

5. Ragnhildur Helgadóttir; 8. þm. Reykv.

6. Skúli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. v.

7. Þórarinn Þórarinsson, 7. þm. Reykv.

Forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, kom forseti Íslands, Ásgeir Ásgeirsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls.

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson): Hinn 27. september 1960 var gefið út svo hljóðandi bréf handhafa forsetavaldsins:

„Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar, gera kunnugt:

Vér höfum ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi 1960 skuli koma saman til fundar mánudaginn 10. október 1960.

Um leið og vér birtum þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst klukkan 13,30.

Gert í Reykjavík og á Akureyri

27. september 1960.

Ólafur Thors. Gizur Bergsteinsson.

Friðjón Skarphéðinsson.

Ólafur Thors.

Bréf handhafa forsetavalds um, að reglulegt Alþingi skuli koma saman til fundar mánudaginn 10. október 1960.“

Samkvæmt bréfi því, sem ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett. Ég árna Alþingi allra heilla í störfum, að þau megi verða landi og þjóð til trausts og halds, gæfu og gengis.

Að svo mæltu bið ég alþingismenn að minnast ættjarðarinnar með því að rísa úr sætum. [Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Ólafur Thors, mælti : „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þar til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram. Ég bið því aldursforseta, Gísla Jónsson, 1. þm. Vestfjarðakjördæmis, að ganga til forsetastóls.

Forseti Íslands tók sér sæti í þingsalnum, en aldursforseti, Gísli Jónsson, 1. þm. Vestf., gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.