20.03.1961
Neðri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í B-deild Alþingistíðinda. (1017)
209. mál, meðferð opinberra mála
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti, Ég ætla ekki að eyða löngum tíma hv. d. í að ræða þetta mál, en áður en það fer út úr d., vil ég þó segja skoðun mína á því og meðferð málsins.
Í fyrsta lagi er ég ekki sannfærður um það, að sú breyting, sem hér er lagt til að gera, að skipa saksóknara, sé spor í rétta átt. Mín skoðun er, að það sé ekki minni hætta á því, að saksóknari kynni að misnota sitt vald, heldur en pólitískur ráðherra. Ég held, að þeir menn, sem við stjórnmál fást, fái oft og tíðum meiri víðsýni um almenn mál heldur en aðrir og það sé mínni hætta á því, að þeir misnoti sitt vald, m.a. vegna þess að þeir eru undir strangari gagnrýni en aðrir í sambandi við meðferð sína á opinberum málum. Ég þykist hafa orðið var við það m.a. í sambandi við umsagnir ýmissa stofnana um mál hér á hv. Alþ., að þær eru meira og minna litaðar af stjórnmálaskoðunum þeirra, sem fyrir stofnununum eru. Þess vegna tel ég, að pólitísk áhrif geti ekki orðið þarna neitt minni, nema síður sé, heldur en hjá pólitískum ráðherra, ef misjafnlega tækist til um val í slíkt embætti, sem hér er gert ráð fyrir að stofna. En um það atriði vil ég þó ekki segja fleiri orð.
Hitt, sem er aðalerindi mitt i ræðustólinn í dag, er að vekja athygli á því, að þetta mál er hér fram komið á síðustu dögum þingsins. Þetta mál, ef að lögum yrði, kemur til með að hafa í för með sér verulega útgjaldaaukningu hjá ríkissjóði. Ég vil vekja athygli á því, að á síðustu dögum þingsins í fyrra var verið að afgreiða hér frv. til laga um breytingar á prófessorsembættum við háskólann. Það var mjög gagnrýnt þá, að slíku máli skyldi vera varpað inn í Alþingi á síðustu dögum þingsins, það væri óeðlilegt, að slíkt mál væri ekki fyrr á ferðinni, svo að þingið hefði tíma til þess að átta sig á því og það fengi eðlilega meðferð. Því var að vísu haldið fram við umr. um það mál, að það mundi ekki hafa útgjaldaaukningu í för með sér. En ég tek eftir því, að í aths. við fjárlagafrv. fyrir árið 1961 er tekið fram, að vegna þessara laga hækki útgjöld til Háskóla Íslands um nokkur hundruð þúsund. Ég tel, að það sé mjög óeðlilegt og í alla staði óverjandi, að hæstv. ríkisstj., hvort sem það er þessi ríkisstj. eða önnur, hagi þannig vinnubrögðum, að á síðustu dögum þingsins séu á ferðinni mál, sem hafa verulega útgjaldaaukningu í för með sér síðar meir. Og til þess að fá þetta mál afgreitt hér á hv. Alþ. nú, verður að hafa aðra vinnuaðferð við afgreiðslu þess en venja er til um afgreiðslu á þingmálum. Þar sem hér er stórmál á ferðinni, er þetta í alla staði óheppilegt, og ég tel, að hæstv. ríkisstj,, hver sem hún er, eigi að leggja niður þann ósið að varpa inn í Alþingi síðustu dagana málum eins og þessu, sem koma til með að hafa veruleg áhrif bæði á útgjöld ríkissjóðs og einnig á framkvæmdaatriði, eins og þetta mál kemur til með að gera. Þess vegna tel ég, að það hefði verið eðlilegt, að þetta mál hefði ekki fengið afgreiðslu á hv. Alþingi nú, og það eigi ekki að gilda sú regla, að það sé hægt á síðustu dögum Alþingis að koma með mál frá hæstv. ríkisstj., sem er í sniðunum eins og þetta mál.