10.03.1961
Neðri deild: 73. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)

207. mál, lögreglumenn

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta litla frv. hefur enga efnisbreytingu í sér fólgna frá gildandi lögum, en þörf var á að setja það vegna setningar nýrra sveitarstjórnarlaga, þar sem tilsvarandi ákvæði er ekki tekið upp, vegna þess að það þótti betur fara að hafa það í lögunum um lögreglumenn, svo að hér er eingöngu um formsbreytingu að ræða, en breytingu, sem þó er nauðsynlegt að fá samþ. — Ég leyfi mér að leggja til, að málið gangi til 2. umr. og hv. allshn.