07.02.1961
Efri deild: 54. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (1054)
124. mál, ríkisábyrgðir
Frsm. 2. minni hl. (Björn Jónsson):
Herra forseti. Eins og fram hefur komið, hefur fjhn. ekki orðið sammála um afstöðu til þessa frv. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. án teljandi breyt., en ég og hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK) teljum hins vegar, eins og sá fyrrnefndi hefur gert grein fyrir í sinni framsöguræðu, að frv. þurfi mikilla breyt. við, til þess að við getum léð því fylgi, og höfum við flutt brtt. í samræmi við það mat okkar á frv. Þess ber þó að geta, að brtt. hv. meiri hl. fjhn. eru flestar eða allar komnar vegna athugasemda okkar í minni hl. og koma til móts við okkar sjónarmið, það sem þær ná. En þær ná ekki til höfuðatriða málsins og geta því að sjálfsögðu ekki ráðið úrslitum um afstöðu til þess.
Ég tel, að þetta frv. og hugsanlegar afleiðingar af samþykkt þess verði ekki rétt metnar, nema vel sé íhugað, hvaða áhrif og þýðingu ríkisábyrgðir hafa á undanförnum árum og áratugum haft fyrir almennar framfarir, framkvæmdir og atvinnuuppbyggingu í landinu, og þá um leið, hvort nokkrar þær grundvallarbreyt. hafa orðið í þjóðfélaginu, sem geri það fært að gerbreyta um stefnu varðandi þessar ábyrgðir á þann hátt að gera gagnsemi þeirra stórfellt minni en áður og jafnvel enga í mörgum tilfellum, — ýta undir, að ekki sé meira sagt, og heimila varðandi þessar ábyrgðir allar harkalegustu innheimtuaðferðir, sem lög heimila í almennum fjármálaviðskiptum, og jafnvel bæta nýjum við, og að auki að gera þröng bankasjónarmið allsráðandi um þá aðstoð, sem eftir stendur í þessu formi, að þeirri skerðingu á þeim lokinni, sem í þessu frv. felst.
Svarið við því, hverja þýðingu ríkisábyrgðirnar hafa haft fyrir þjóðfélagið, felst að nokkru leyti í því að upplýsa, til hvaða framkvæmda þær hafa fyrst og fremst verið veittar, og að hinu leytinu í þeirri staðreynd, að flestar þær framkvæmdir hefðu verið óhugsandi án aðstoðar ríkisins í þessu formi. Þegar sleppt er ábyrgðarflokkum, þar sem ábyrgðirnar eru í raun réttri aðeins formsatriði, en ekki áhættuábyrgðir í venjulegum skilningi, þá sést, að stærstu ábyrgðarflokkarnir, sem nú eru í gildi, eru þessir: Það er ábyrgðir vegna hafnargerða 84 millj., vegna togaraútgerðar 198.2 millj., vegna fiskiðjuvera og hraðfrystihúsa 221 millj., vegna síldar- og fiskimjölsverksmiðja 471/2 millj., vegna rafveitna 288.9 millj., vegna byggingarsamvinnufélaga 207 millj. og vegna veðdeildar Landsbankans, þ.e.a.s. húsnæðismálastofnunarinnar, 2811/2 millj. Það er rétt, að ábyrgðir gagnvart hafnarframkvæmdum hafa bakað ríkissjóði útgjöld, sem nema 26.9 millj. kr., en er þó engan veginn tapað fé, nema þá að einhverju leyti. En hitt er þá líka jafnvíst, að án ríkisábyrgðanna og þá um leið þeirrar áhættu, sem tekin hefur verið með þeim, væru fjölmörg hafnarmannvirki víðs vegar um landið, sem nú veita jafnvel þúsundum manna frumskilyrði til athafnalífs og þjóðhagslega nauðsynlegrar framleiðslu verðmæta, ógerð enn í dag, og þá um leið landauðn í viðkomandi byggðarlögum. Þetta er auðvitað svo ljóst, að allir vita, og þá um leið, að áhætta, þó að nokkur hafi verið, er lítilfjörleg, ef hún er borin saman við ávinninginn, sem þjóðfélagið allt hefur haft af henni, óg auðsætt, að hún hefur skilað sér margfaldlega aftur í bættum lífsskilyrðum.
Ríkisábyrgðir vegna togaraútgerðarinnar nema 198.2 millj. kr., og áfallnar greiðslur ríkissjóðs vegna slíkra ábyrgða nema 30.6 millj. Það er langhæsta upphæðin, sem ríkissjóður hefur greitt vegna sinna ábyrgða. Nú skal ég alls ekki fullyrða, að gætt hafi verið eðlilegs aðhalds gagnvart öllum þeim, sem ríkisábyrgða hafa notið til togarakaupa eða vegna útgerðar togara. Þvert á móti tel ég líklegt, að svo hafi ekki verið í einstökum tilfellum og þó alveg sérstaklega nú síðustu tvö árin. Samt sem áður eru útgjöld ríkissjóðs enn sem komið er vegna togaraútgerðarinnar ekki orðin jöfn andvirði eins togara, eins og það nú er.
Nú er það alkunnugt, að kaup allra þeirra togara, sem nú eru gerðir út á Íslandi, hafa því aðeins verið möguleg, að veittar hafa verið til þeirra hæstu ríkisábyrgðir, sem nokkrum atvinnutækjum hafa verið veittar, eða allt að 90% af kaupverði. En hvað hefur þá komið á móti þessari áhættu og reikningslegum töpum ríkissjóðs? Sum árin allt fram að 1958 nam aflinn, sem togaraflotinn bar að landi, meira en helmingi af öllum fiskafla landsmanna. M.ö.o.: þessi útgerð hefur verið ein af höfuðstoðunum í atvinnulífinu og í gjaldeyrisöfluninni.
Ríkisábyrgðir vegna fiskiðjuvera og hraðfrystihúsa nema 221 millj. kr. og áfallin útgjöld vegna þeirra ábyrgða um 10 millj. kr. eða sem svarar andvirði góðs fiskibáts. Þegar þess er nú gætt, að fiskvinnslustöðvarnar skila frá sér meiri hlutanum af öllum útflutningsvörum landsmanna og að allt atvinnulíf í meiri hlutanum af sjávarbyggðum landsins byggist á rekstri þeirra og eðlilegri þróun þeirra hvað snertir tækni og nýbyggingar og endurbætur, þá geta mönnum varla vaxið í augum 10 millj. kr. útgjöld ríkissjóðs vegna aðstoðar við þessa eina allra mikilvægustu atvinnugrein í landinu.
Hlutfallslega, miðað við ábyrgðarupphæðir, hafa útgjöld ríkissjóðs orðið mest vegna síldar- og fiskimjölsverksmiðja, en þar er ábyrgðarupphæðin nú 47 millj. rúmar, en áfallnar ábyrgðir ríkissjóðs um 29 millj. Hér er að langmestu leyti eða a.m.k. að miklu leyti um að ræða raunveruleg rekstrartöp á ríkisfyrirtækjum, þ.e.a.s. síldarverksmiðjum ríkisins, en ekki ábyrgðartöp í venjulegum skilningi. En þessi töp síldarverksmiðja ríkisins stafa, eins og kunnugt er, af hálfs annars áratugs aflabresti á síldveiðum og eiga þess vegna raunverulega ekki eða lítið skylt við þetta mál.
Samanlagt nema töp ríkissjóðs vegna þessara ábyrgðarflokka, sem ég nú hef nefnt, 96.7 millj. kr. eða sem næst 3/4 hlutum af öllum ábyrgðartöpum, sem nú eru útistandandi. Þegar á heildina er litið hvað þessa ábyrgðaflokka snertir, þá fæ ég ekki séð annað en hér hafi verið um að ræða alveg óhjákvæmilega aðstoð ríkisins við grundvallaratvinnugreinar þjóðarinnar, sem réttlæti fullkomlega þá áhættu, sem tekin hefur verið. Svipað er raunverulega að segja um aðra stærri ábyrgðaflokkana, sem hafa ekki reynzt hafa neina teljandi áhættu í för með sér, þ.e.a.s. sérstaklega ábyrgðir vegna rafveitna, byggingarsamvinnufélaga og vegna veðdeildar Landsbankans, en þessir ábyrgðaflokkar nema nú samtals 777 millj. kr., en hafa ekki haft í för með sér útgjöld ríkissjóðs nema upp á 10.7 millj. kr. Þarna er einnig um að ræða viðfangsefni, sem þjóðarátaka hefur þurft við, til þess að við þau yrði ráðið.
Í heild má segja, að ríkisábyrgðirnar hafi verið eitt af helztu úrræðum fámennrar og fjármagnslítillar þjóðar til þess að sigrast á þeim erfiðleikum, sem óhjákvæmilega hefur þurft að yfirstíga til þess að gera mögulegar mjög margar af þeim framkvæmdum, sem allri þjóðinni og öllum stéttum hennar hafa verið jafnnauðsynlegar.
Við hliðina á ríkiseign og ríkisframkvæmdum á mörgum þeim sviðum, þar sem einkaauðmagn hefur verið ráðandi og jafnvel allsráðandi í öðrum og stærri auðvaldslöndum, þá hefur aðstoð ríkisins í þessu formi skapað okkar þjóðfélagi nokkra sérstöðu meðal annarra auðvaldslanda, — þá sérstöðu, að ríkisrekstur er hér á ýmsum stærstu atvinnufyrirtækjum og þjónustufyrirtækjum almennings, — þá sérstöðu, að gróðavonin ein hefur ekki ævinlega verið allsráðandi um atvinnuuppbyggingu og framkvæmdir, heldur alloft mat löggjafarvaldsins á gagnsemi framkvæmdanna fyrir þjóðarheildina, — þá sérstöðu, að bæjarfélögum og félitlum framkvæmdamönnum hefur verið gert kleift að byggja upp atvinnurekstur, sem einkaauðmagni hefði aldrei verið hætt í, en hefur oft ráðið úrslitum um það, að jafnvel heil byggðarlög og heilar atvinnugreinar hafa getað þrifizt og dafnað. Þessi sérstaða íslenzks þjóðfélags er þeim, sem nú ráða stefnunni hér á hv. Alþ. og hjá hæstv. ríkisstj., hinn mesti þyrnir í augum. Maður hefur bæði oft hér á hv. Alþ. og utan þings heyrt talað af þessum aðilum með megnustu fyrirlitningu um t.d. ríkisauðvald, ríkissósíalisma, ríkisábyrgðarstefnu o.s.frv. Það hefur verið heimtað, að mörg, ef ekki flest af fyrirtækjum ríkisins væru afhent einkafjármagninu, að dregið yrði stórkostlega úr öllum opinberum atvinnurekstri og allri ríkisaðstoð við atvinnuuppbyggingu í landinu, en í staðinn fyrir hinn opinbera rekstur á að efla einkafjármagníð með því að heimila því meiri gróða en áður hefur verið lögleyfður á Íslandi, m.a. með gerbreyttu skattakerfi og með því að beita ríkisvaldinu án miskunnar til þess að halda hlut launastéttanna, þ.e.a.s. kaupgjaldinu, niðri.
Með þessum hætti og einnig með því að heimila, að því er manni virðist fyrirhugað, erlendum auðfélögum olnbogarými í atvinnurekstri hér á landi, á að gera Ísland, ef svo mætti segja, samkvæmishæft meðal auðvaldsþjóðfélaga Vesturlanda og skapa einkafjármagni, erlendu og innlendu, þá drottnunaraðstöðu, sem það hefur lengi þráð, en skort máttinn hingað til til þess að höndla.
Ég vil álíta, að þetta frv. sé einn anginn af þessari grundvallarstefnu Sjálfstfl., en Alþfl. með sína atómpólitík gerir auðvitað ekki annað en fylgjast með í dansinum. En þó að þetta frv. sé aðeins einn angi stjórnarstefnunnar, er hann þó engan veginn svo hættulaus, að ekki sé full ástæða til að gera sér fulla grein fyrir því, hvert stefnt er. Hér er áreiðanlega um annað og meira að ræða en það, að ráðdeildarsamir stjórnarsinnar, eins og hv. 6. þm. Norðurl. e., sem beitt hefur verið fyrir í þessu máli, séu að forða ríkissjóði frá óþörfum útgjöldum vegna vanskilaþrjóta, sem vilja hafa af honum fé að þarflausu. Hér er miklu fremur um það að tefla, hvort skerða á stórkostlega þá auðveldustu aðstoð, sem ríkisvaldið getur látið í té við almennar framkvæmdir í atvinnu- og framfaramálum þjóðarinnar, og ég ætla, að víða um byggðir landsins verði þröngt fyrir dyrum, ef þetta frv. verður samþ. og ef ákvæði þess verða notfærð af því tillitsleysi, sem hæstv. ríkisstj. er vel trúandi til, ef hún þorir og getur.
Í 2. gr. frv. felst mjög veigamikil breyt. á ríkisábyrgðum frá þeirri framkvæmd, sem fylgt hefur verið fram til þessa. Þar er svo fyrir mælt, að ríkissjóður megi ekki ganga í sjálfskuldarábyrgð, nema slíkt sé sérstaklega ákveðið í lögum þeim, sem ábyrgð heimila, Það er augljóst, að með þessu ákvæði er stefnt að því, að framvegis verði það hin almenna regla, að lánardrottnum verði jafnan skylt að þrautreyna með aðför að lántakanda innheimtu skuldar, áður en til kasta ríkisábyrgðarinnar kemur. Verði þessi háttur upp tekinn undantekningarlítið, eins og ætla má eftir ákvæðum og anda greinarinnar, þá hlýtur það að leiða til þess, að ábyrgð ríkissjóðs, þó að fengin væri, tryggði stórum verr en hún hefur áður gert, að sá, sem ábyrgð fær eða gæti fengið, sé nokkru nær um að fá lánsfé. Og einnig þá ber þess að gæta, að venjuleg ábyrgð gagnvart erlendum lánardrottnum yrði oftast nær haldlaus með öllu. Þessi regla yrði alveg sérstaklega bagaleg fyrir bæjarfélögin og fyrir sveitarfélögin yfirleitt, þar sem svo er ástatt með framkvæmdir þeirra yfirleitt og jafnvel oft,ast nær, að þær eru þess eðlis, að þær hafa lítið sölugildi og eru þess vegna lítt hæfar sem veð. Gagnvart lánum til slíkra framkvæmda hljóta lánardrottnar því samkvæmt öllu eðli málsins að leggja áherzlu á sjálfskuldarábyrgðarformið. Það er þess vegna auðséð, að ef þeirri almennu reglu, sem 2. gr. frv. á að innleiða, yrði fylgt gagnvart ábyrgðum fyrir sveitarfélög og aðra aðila, sem geta ekki boðið auðseljanleg veð, þá yrðu þeir hinir sömu mjög illa úti á hinum almenna lánamarkaði og framkvæmdargeta þeirra mundi skerðast stórkostlega.
Svo virðist sem ákvæði þessarar greinar eigi, eins og hv. frsm. 1. mínni hl. skýrði hér áðan, að taka til allra þeirra fjölmörgu heimilda, sem nú eru í lögum til handa ráðherra til þess að veita ríkisábyrgðir, en hafa hingað til undantekningarlaust að kalla verið veittar sem sjálfskuldarábyrgðir. Þetta ákvæði þýðir því í rauninni, að verið er að gerbreyta inntaki allra þessara heimilda með einu pennastriki og gera þær stórum lítilvægari til að lyfta undir þær framkvæmdir, sem þeim hefur verið ætlað að hrinda áleiðis. Ég vil þó taka það fram, að þessi skilningur á efni greinarinnar varðandi gildandi ábyrgðir er ekki alveg óvefengjanlegur eftir orðanna hljóðan í frv. En hann er í samræmi við þær skýringar, sem ráðuneytisstjórinn í fjmrn. hefur gefið fjhn., og ætti sá maður gerst að vita um það, hvaða þýðingu þessi grein hefur og hvernig fyrirhugað er að framkvæma hana. En óneitanlega væri það til nokkurrar upplýsingar og fróðleiks að fá álit hæstv. fjmrh. á þessu., því að hjá hv. meirihlutamönnum í fjhn, hefur það verið nokkuð á reiki, hvaða skilning bæri að leggja í það.
Í samræmi við það, sem ég hef nú sagt um ákvæði 2. gr. frv., flyt ég brtt. við gr. á þá lund, að þær ábyrgðir, sem ríkið veitir, skuli teljast sjálfskuldarábyrgðir, nema annað sé sérstaklega fram tekið í þeim lögum, sem ábyrgðir heimila. Með þeirri breytingu væri tryggt, að allar núgildandi ábyrgðir héldu gildi sínu óröskuðu, en eftirleiðis yrði það svo metið hverju sinni, um leið og lagaheimild yrði veitt, hvor tegund ábyrgðarinnar yrði gildandi. En það er einmitt sú skýring, sem gefin hefur verið á ákvæðum þessarar greinar. Hins vegar hefur verið látið alveg hjá líða, t.d. af hv. frsm. meiri hlutans, að gefa ótvíræða skýringu á því, hvaða gildi þetta ákvæði hefur gagnvart þeim ábyrgðum, sem nú eru í gildi.
Í 3. gr. frv. er svo kveðið á, að ekki megi veita neinum þeim aðila, sem skuldar ábyrgðargreiðslur eða er í vanskilum með ríkisábyrgðarlán, ábyrgð, nema um slíkar greiðslur hafi verið samið. Nú verður hins vegar ekki betur séð af síðari ákvæðum frv., t.d. ákvæðum 6. gr., en að samningar um vanskil séu algerlega útilokaðir, en hins vegar að aðför vegna vanskila eigi að vera hin almenna regla, en í hæsta lagi sé unnt að veita frest á slíkri aðför. Ég kann þá ekki mál að skilja, ef þetta er ekki þannig. Ákvæði 3. gr. þýða því í rauninni, að ekki megi undir neinum kringumstæðum veita aðila, sem stendur ekki í fullum skilum, nýjar ábyrgðir. Þetta merkir því m.a., að bæjarfélag, sem getur ekki staðið í fullum skilum, t.d. vegna togarakaupa eða byggingar á hraðfrystihúsi, yrði með öllu útilokað frá lögheimilaðri aðstoð í formi ríkisábyrgðar við hverjar aðrar framkvæmdir, hversu þýðingarmiklar og mikilvægar eða óumflýjanlegar sem þær annars kynnu að vera, bæði fyrir fjárhag þess hins sama bæjarfélags og jafnvel frá sjónarmiði almenningsþarfa. Ég held, að slíkt tillitsleysi gæti tæpast orðið neinum til hagsbóta, hvorki ríkissjóði né öðrum. Mér virðist, að eðlilegra og farsælla mundi vera að meta hverju sinni orsakir vanskilanna og haga aðgerðum í samræmi við slíkt mat, og brtt. mín við þessa gr. gengur í þá átt. Ég tel hins vegar ekki ólíklegt, að unnt sé að breyta slíku ákvæði, eins og þarna er fyrirhugað, en ég tel jafnhættulegt, að það sé gert eins vélrænt og undantekningarlaust og þarna er ákveðið.
Með 4. gr. frv. var fyrirhugað að leggja sérstakan skatt á alla þá, sem ríkisábyrgða njóta. Samkvæmt frv., eins og það liggur nú fyrir, á þessi ábyrgðarskattur að nema 1% af ábyrgðarupphæð við veitingu ábyrgðar og að auki 1/2 % árlega af ábyrgðarupphæð, þegar um sjálfskuldarábyrgð er að ræða. Hv. meiri hl. fjhn. hefur nú hopað frá þessari fyrirætlun að nokkru, og ber að sjálfsögðu að meta það. En þó að brtt. hans við gr. verði samþykkt, stendur samt eftir 11/2% skattur á sjálfskuldarábyrgðarupphæðinni, að vísu í eitt skipti fyrir öll. Þó að þetta ákvæði hafi þannig verið lagfært nokkuð, er þó hér enn um að ræða vaxtahækkun í nýju formi, og ég tel, að slíkri byrði, þótt ekki sé meiri, sé ekki bætandi ofan á það vaxtaokur, sem hæstv. ríkisstj. hefur komið á, allra sízt þegar í hlut eiga framkvæmdir, sem eru sérstaklega mikilvægar fyrir almenning, eins og raunverulega liggur í hlutarins eðli að þær framkvæmdir eru, sem sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs er veitt fyrir. Ég legg þess vegna til í 3. brtt. mínni á þskj. 337, að öll ákvæði þessarar greinar um nýja skattheimtu verði felld niður.
5. gr. frv. kveður svo á, að fjmrn. sé heimilt að halda eftir hvers konar greiðslum, sem aðili á að fá frá ríkissjóði, til greiðslu á ábyrgðarupphæðum, sem fallið hafa á ríkissjóð, enda þótt almennar reglur um skuldajöfnuð séu ekki fyrir hendi. Þegar þess er gætt, að slík heimild til skuldajöfnunar er nú þegar fyrir hendi hvað snertir allar greiðslur úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga og þ. á m. varðandi hluta bæjarfélaganna af söluskatti, en þær greiðslur mundu í mjög mörgum, kannske í flestum tilfellum, nægja til þess að tryggja ríkissjóð fyrir áföllum vegna ábyrgða, þá má vera ljóst, þegar á þetta er litið, að hér er lengra gengið en hóflegt getur talizt. Þetta ákvæði gæti þýtt það, að sveitarfélög yrðu svipt greiðslum til óhjákvæmilegustu þarfa, t.d. til skólamála eða heilbrigðismála, undir þeim kringumstæðum, að þau kæmust í fjárþröng gagnvart greiðslum lána til t.d. vatnsveitu eða annars þvílíks, og væri slíkt auðvitað fráleitt, ekki sízt eftir að búið væri að hrifsa allt framlagið úr jöfnunarsjóði til viðkomandi sveitarfélags. Ég legg aftur á móti til, að þingkjörin nefnd fjalli um allar aðgerðir vegna vanskila á ábyrgðargreiðslum og að samþykki hennar þurfi jafnan til þeirra ráðstafana, sem nauðsynlegt þykir að grípa til hverju sinni.
Með ákvæðum 7. gr. er fyrirhugað að fela ótilgreindum ríkisbanka að vera ráðuneytinu til aðstoðar við alla afgreiðslu ríkisábyrgða. Skal þessi banki jafnframt hafa eftirlit með öllum fjárreiðum ábyrgðaraðila og gera till. um, hversu snúast beri við öllum ábyrgðarbeiðnum. Þessi ákvæði eru í fullu samræmi við allan anda frv. og stefna svo augljóslega sem verða má að því að gera hrein bankasjónarmið allsráðandi við veitingu ábyrgða, og þetta er raunverulega eitt grundvallaratriðið í frv. Sá, sem getur gefið fullar tryggingar, á að fá ábyrgð. Sá, sem getur ekki greitt á nákvæmlega tilskildum gjalddögum, á engrar miskunnar að vænta, án tillits til afleiðinga.
Ég held, að ein af meginástæðunum fyrir því, að farið hefur verið út á þá braut að veita ríkisábyrgðir, hafi verið sú, að til þess að gera ýmsar þjóðnauðsynlegar framkvæmdir mögulegar varð með einhverjum hætti að komast fram hjá bankastjórnum. Það varð að gera fátækum bæjarfélögum, sem litlar tryggingar gátu gefið lánardrottnum sínum og þ. á m. bönkunum fyrir framkvæmdalánum, fært að ráðast í margs konar atvinnuuppbyggingu og framkvæmdir, og það varð að gefa félitlum framkvæmdamönnum tækifæri til athafna, sem til almenningsheilla horfðu, án þess að algert öryggi væri fyrir því, að engin áhætta væri því samfara. Þessi þörf er áreiðanlega fyrir hendi enn þá, og þess vegna er ekki fært að gerbreyta svo um stefnu sem hér er fyrirhugað, án þess að það leiði til hættulegs samdráttar um framkvæmdir og þá um leið til versnandi afkomu þjóðarinnar í heild. En alveg sérstaklega mundi slík stefnubreyting reynast hættuleg þeim byggðarlögum í landinu, þar sem fjárhagsmyndun er lítil, en þörfin jafnframt brýnust fyrir þá aðstoð, sem ríkisvaldinu er hægt að veita og það verður að veita, án þess að gulltryggt sé í hverju einstöku tilfelli, að því sé engin áhætta samfara.
Þetta frv. hefur verið rökstutt með því og því einu, að ábyrgðir ríkissjóðs væru nú orðnar óhæfilega miklar, vanskil vaxi ár frá ári og muni reynast óviðráðanleg áður en varir. Ég skal engan veginn synja fyrir það, að hér sé um nokkurt vandamál að ræða og að þörf sé á meiri aðgát í þessum efnum en stundum hefur verið gert áður. Ég hygg, að það hafi vafalaust reynzt varhugavert í ýmsum tilfellum að gefa einum ráðh. svo óskorað vald varðandi ríkisábyrgðir sem gert hefur verið og að pólitískar freistingar hafi stundum reynzt meiri við ákvarðanir heldur en viðkomandi hefur þolað. Það er því sjálfsagt ekki neitt vandaverk að leita uppi dæmi um pólitíska misnotkun á ábyrgðarheimildum frá Alþ. og jafnvel óverjandi linkind gagnvart skjólstæðingum, sem lent hafa í vanskilum. Og það er einmitt af þessari ástæðu, sem ég legg til, að þingkjörin nefnd, sem væri það fjölmenn, að allir flokkar þingsins ættu þar fulltrúa, fjalli um veitingu allra ríkisábyrgða og eins um það, hvernig snúast beri við vanskilum, þannig að allt það mikla vandaverk, sem þessu er samfara, hvíli ekki á ráðh. Ég held, að slík nefnd, sem væri skipuð þingfulltrúum allra þingflokka, mundi geta veitt nauðsynlegt aðhald, bæði varðandi veitingu ábyrgða og eins um innheimtu vanskila, og gæti þetta án þess, að gripið væri til svo harkalegra aðgerða eins og þetta frv. gefur hugmynd um að séu fyrirhugaðar. Á hinn bóginn tel ég, að mjög sé ofmælt í rökstuðningi hv. stjórnarsinna um það, að hér sé um geigvænlegar og jafnvel óviðráðanlegar hættur að ræða, enda þótt það sé staðreynd, að vanskil hafa farið vaxandi og þá alveg sérstaklega í tíð núverandi ríkisstj., sem varla er hrein tilviljun. En ef athugaðar eru vanskilagreiðslur, þá sést, að meira en helmingur af öllum áföllnum greiðslum ríkisins hefur orðið til frá því, að stjórnarsamstarf byrjaði með Alþfl. og Sjálfstfl.
Samkvæmt upplýsingum fjmrn. eru ábyrgðarupphæðir alls núna, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um, 2400 millj. og áfallin vanskil um 132 millj. eða um 5% af ábyrgðarupphæðinni, eins og hún nú er, en auðvitað miklu minni hlutfallslega, ef allar veittar ríkisábyrgðir væru teknar, en um það, hvað þær eru miklar orðnar alls, hefur fjhn. ekki fengið upplýsingar. Við fljóta yfirsýn kann mönnum að vaxa þessi heildarupphæð í augum og telja hana augljósa staðfestingu á hrollvekjandi fullyrðingum hv. stjórnarsinna. En ef nánar er að gætt, sést fljótlega, að ábyrgðarflokkar, sem samtals nema 1250 millj. kr. eða meira en helmingi allra ábyrgðarupphæðanna, hafa fram á þennan dag reynzt algerlega áhættulausir, enda mikið af þeim nánast formsatriði eitt, eins og t.d. ábyrgðir á erlendum lánum Framkvæmdabankans, sem nema um 870 millj. kr., og reyndar fjölmargir aðrir. Þar að auki koma svo til auk þessara flokkar, sem enga eyrisáhættu hafa haft í för með sér, stórir ábyrgðarflokkar, eins og t.d. vegna byggingarsamvinnufélaga, sem er upp á 207 millj. kr., þar sem mjög óveruleg vanskil hafa orðið, og eru reyndar þess eðlis, að þau eru nánast útilokuð, þar sem um algerlega fullnægjandi og seljanleg veð er að ræða á móti ábyrgðunum. Svo koma, eins og ég áður gat um, ríkisfyrirtæki, þar sem áfallnar greiðslur eru raunverulega alls ekki vegna ábyrgða, heldur vegna rekstrar ríkisins, eins og skuldir síldarverksmiðjanna, sem ég áðan gat einnig um, o.fl. Og enn koma svo hafnargerðirnar, sem viðurkennt er að hafi algera sérstöðu, þannig að hinar raunverulegu áhættuábyrgðir nema áreiðanlega ekki þriðjungi af heildarupphæðinni. En einnig þar, sem um nokkra áhættu hefur verið að ræða, þá er augljóst, að mjög mikil verðmæti standa fyrir ábyrgðunum, þannig að það er ólíklegt, að til kasta ríkisins komi nema í fæstum tilvikum, þ.e.a.s., ef ekki skellur yfir í landinu eitthvert allsherjar kreppuástand, því að auðvitað fer það ekki á milli mála, að hið almenna ástand í efnahagsmálum ræður miklu um greiðslugetu þeirra, sem ríkisábyrgðir fá. En það er kannske sá ótti, sem lætur á sér kræla í sambandi við allar þessar ráðstafanir, sem nú er fyrirhugað að gera, að stjórnarstefnan leiði til slíkra hluta.
Ég læt nú ekki þessi orð vera fleiri að sinni a.m.k. Ég hef gert hér í stuttu máli grein fyrir afstöðu minni til þessa frv. og þeim brtt., sem ég flyt við það. Eins og auðsætt er, varða brtt. mínar meginatriði málsins, og afstaða mín til þess í heild hlýtur því að markast af því, hvaða undirtektir þær og aðrar brtt., sem eru fluttar af hv. 1. mínni hl. nefndarinnar og ganga f svipaða átt, fá hér í hv. þingdeild.