07.02.1961
Efri deild: 54. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)
124. mál, ríkisábyrgðir
Frsm. 1. minni hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Af ræðu hv. 6. þm. Norðurl. e., frsm. meiri hl., mátti glöggt ráða, að skoðanamunur er ekki stórkostlegur að því er snertir þörf fyrir þessa starfsemi ríkisins, ríkisábyrgðastarfsemina, og nauðsyn þess að gæta þar hófsemdar og hafa þar á svo góða skipan sem verið getur. Mér finnst þess vegna vera vert að vekja athygli á því, að af ræðu hans er réttmætt að álykta, að við brtt., sem hann hefur heldur mælt á móti og ég hef flutt, hafa athugasemdir hans verið þannig, að ætla má, að hann hafi ekki viljað láta hrófla smíði sínu, þar sem er frv., frekar en að hann telji ekki, að sú hugsun og stefna, sem býr í till. mínum til umbóta á frv., sé réttmæt.
En það var ekki til að segja þetta, sem ég tók til máls, heldur til að minnast á það, sem hv. frsm. sagði, að það kæmi ekki til mála að láta ríkisábyrgðir falla á ríkissjóðinn, heldur veita aðstoð í öðru formi, t.d. þegar sveitarfélög eiga í hlut. Ég er hræddur um, að framkvæmd þessarar skoðunar og þessara mála verði afar erfið. Ég held, að það sé minna við það að athuga, þó að ríkið verði að greiða eitthvað vegna áhættu af þeim framkvæmdum, sem ráðizt hefur verið í alveg í samráði við ríkið, með því að það hefur ábyrgzt, heldur en að fara að gera upp sveitarfélag og veita því styrk í öðru formi. Mér finnst til þess að gera eðlilegt, að ábyrgð falli á ábyrgan beint, ef þannig er frá málinu gengið, að ekki verður hjá því komizt, og mér finnst ríkið sem ábyrgur aðili hafa þar enga sérstöðu. Meginatriði, þegar um ríkisábyrgðirnar er að ræða, virðist mér það, að þær séu aðeins veittar , til þeirra framkvæmda, sem telja má vera til þjóðþrifa, og að þess sé gætt, að rekstur í sambandi við þær framkvæmdir sé svo skynsamlegur sem tök eru á. Og í till. mínum felst ekkert um það að vera á móti því, að það sé metið í hvert sinn, sem ábyrgðir eru veittar. Ég álít það vera skyldu Alþingis að meta, hvort þar er um að ræða framkvæmdir eða fyrirtæki, sem gagnlegt er þjóðarinnar vegna að geti farið af stað. Og þegar um það er að ræða, hvort eigi að gefa eftir ábyrgðarskuldir, þá hef ég engar tillögur um það gert, að það sé ekki gaumgæfilega athugað. Ég hef ekki gert neinar till. um það, að sú grein frv., 6. gr., sem þar mælir fyrir um, sé felld niður eða henni verði breytt á annan hátt en þann, sem meiri hl. hefur gengið inn á eftir viðræður í n. sjálfri.
Nei, ég held eftir ræðu hv. frsm. meiri hl., að það hefði verið rétt að gera það samkomulag milli meiri hl. og minni hl. — og þá um leið í veigamiklum atriðum að því er snertir annan minni hl. — að fella inn í frv. breytingarnar, sem bornar hafa verið fram af mér og að sumu leyti af hv. 5. þm. Norðurl. e.
Ég verð að segja það, að mál þetta hlýtur að vera mjög viðkvæmt mál, sérstaklega fyrir almenning. Ríkisábyrgðirnar hafa verið stórkostlega mikils virði fyrir dreifbýlið með ströndum fram, og þar hefur verið víða bjargað frá upplausn með þessari ábyrgðarþátttöku af hálfu þjóðfélagsins. Ég álít, að það megi á engan hátt þrengja þannig þessa starfsemi, að það verði örðugra fyrir þá, sem eru í fámenninu, að leita þessarar aðstoðar og fá hana, og líka frá því sjónarmiði eru mínar till. gerðar.
Þar sem hv. frsm. gerði aths. við ábendingu mína í samanburðinum á veittum ábyrgðum og ákvörðunum á föllnum ábyrgðarskuldum hjá ríkinu, þá vil ég geta þess, að mér hefur verið sagt það, að engar ábyrgðarupphæðir hafi verið strikaðar út enn þá, aðeins vextir í sumum tilfellum ekki lagðir við skuldahöfuðstólinn. Þess vegna finnst mér, að óþarft sé að álykta sem svo, að hér þurfi endilega að vera um stórkostleg afföll að ræða eða svo mikil afföll, að það þurfi að grípa til þess að setja reglur, sem þvinga þessa starfsemi í framtíðinni.