10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)
124. mál, ríkisábyrgðir
Forseti (SÓÓ):
Ég vil vekja athygli hv. þdm. á því, að á dagskránni er aðeins minnzt á þetta eina þskj., 354, en það er frv. eins og það var eftir 2. umr. í þessari hv. d., en þar að auki eru einnig til umr. brtt. á þskj. 329 frá meiri hl. fjhn., brtt. á þskj. 334 frá 1. minni hl. fjhn. og brtt. á þskj. 337 frá Birni Jónssyni. Á þessum þskj. eru breytingar við 4. gr. frv., sem voru teknar aftur við 2. umr., en endurfluttar nú við 3. umr.