10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)

124. mál, ríkisábyrgðir

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls voru teknar aftur brtt. við 4, gr., þ.e.a.s. varðandi áhættugjaldið, sem gert er ráð fyrir að greitt verði í sambandi við veitingu ríkisábyrgða. Þessar till. voru teknar aftur vegna þess, að fulltrúafundur Sambands ísl. sveitarfélaga sat þá hér í Reykjavík og hafði m.a. þetta frv. til meðferðar, og það þótti rétt að bíða eftir umsögn fulltrúafundarins, áður en málið yrði afgreitt. Síðan hefur umsókn fulltrúafundarins borizt, og vil ég — með leyfi hæstv, forseta — leyfa mér að lesa hana upp, hún hljóðar þannig:

„Fundurinn er samþykkur aðalefni frv., en beinir því til Alþingis, að fallið verði frá kröfum um áhættu- og ábyrgðargjöld til ríkissjóðs umfram venjuleg bankagjöld, þegar sveitarfélög eru lántakendur. Enn fremur leggur fundurinn áherzlu á, að fjmrn. gæti varúðar við framkvæmd skuldajöfnunar samkv. 5. gr., þegar um er að ræða lögboðin framlög ríkissjóðs til sveitarfélaga.“

Tillaga þessi var samþ. með 14 atkv. gegn 3. Samkvæmt þessari umsögn er það skoðun sveitarfélagasambandsins, að það sé ekki óeðlilegt, að eitthvert gjald sé tekið í sambandi viti veitingu ríkisábyrgða, en hins vegar telja þeir nauðsynlegt, að það verði ekki hærra en sem svari venjulegum bankaábyrgðargjöldum.

Meiri hluti fjhn. flutti á sínum tíma brtt. við 4. gr. frv., þess efnis, að hið árlega áhættugjald verði fellt niður og þess í stað væri tekið gjald í eitt skipti fyrir öll, bæði í sambandi við sjálfskuldarábyrgðir og einfaldar ábyrgðir. Ef sú breyting yrði gerð á frv., sýnist það vera í samræmi við skoðun sveitarfélagasambandsins, sem að vísu miðar þó ekki umsögn sína nema við þau lán, sem sveitarfélög taka, en það er vitanlega ekki hægt og ekkert eðlilegt við það að fara að láta aðrar reglur gilda í því efni. Mér sýnist því, að verði till. meiri hl. n, samþ., — og meiri hlutinn leggur því til, að sú breyting verði gerð á frv., — að þá sé það í fullu samræmi við þær skoðanir, sem eru hjá fulltrúum sveitarfélaganna í þessu efni.

Varðandi síðari athugasemd þeirra um það, að varúðar verði gætt í sambandi við skuldajöfnun, þá hefur að sjálfsögðu alltaf verið út frá því gengið og verður svo, enda þótt slík heimild sé fyrir hendi eins og hér er, því að vitanlega kemur ekki til mála að framkvæma skuldajöfnun svo róttækt, að það geti stefnt algerlega í voða allri greiðslugetu og afkomu viðkomandi sveitarfélaga. Það atriði verður að sjálfsögðu að metast, eins og nú hefur verið gert, og það er engin ástæða til þess að halda, að þar verði ekki gætt fullrar hófsemi, sem m.a. kemur fram í því, að það hefur ekki einu sinni enn verið skuldajafnað nema að mjög takmörkuðu leyti og ég held alls ekki í sambandi við söluskattshluta sveitarfélaganna, enda sjálfsagt, að þeirri reglu verði áfram fylgt að gæta varúðar í því efni. Og það er augljóst af umsögn sveitarstjórnasambandsins, þar sem það leggur ekki áherzlu á, að þessu atriði frv. verði breytt, að það er út af fyrir sig ekki því andvígt, að heimild sem þessi sé í lögum, enda í fyllsta máta eðlilegt.

Ég leyfi mér því að leggja til, herra forseti, að frv. verði nú endanlega samþykkt frá deildinni með þeirri brtt., sem flutt er á þskj. 329 við 4. gr. frv.