10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)
124. mál, ríkisábyrgðir
Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég skal hér ekki fara að ræða þetta mál að öðru leyti en hvað við kemur þeim brtt., sem hér eru fluttar, og þá aðeins í sambandi við þau atriði, sem hv. 1. þm. Norðurl. e. sérstaklega gaf tilefni til að taka til athugunar.
Hann spurðist fyrir um það og taldi það vera ákaflega óljóst í ályktun sveitarstjórnasambandsins, hvað við væri átt í sambandi við venjuleg bankagjöld. Ég held, að það hafi varla getað flækzt fyrir þeim ágætu mönnum, sem þar sátu á fundi, því að ég hygg, að þeir viti mætavel allir og hafi fengizt það mikið við slík viðskipti, að það hafi varla getað verið fyrir eingöngu tilviljun, að þeir orða þetta á þennan hátt, því að mér sýnist vera alveg ljóst, að það hlýtur að vera átt við þau bankagjöld, sem samsvara því áhættugjaldi, sem um ræðir í frvgr. (KK: En hver eru þau?) Þau bankagjöld eru þau gjöld, sem banki tekur, þegar hann veitir ábyrgð. Það eru viss gjöld, sem bankar taka í sambandi við ábyrgðir út af yfirfærslum, ábyrgðir, sem veittar eru í sambandi við lántökur erlendis. T.d. er þetta mjög mikið framkvæmt, þegar um er að ræða skipakaup, sem mjög hefur verið mikið af að undanförnu og bankar veita ábyrgð á eftirstöðvum andvirðis kaupverðs. Sem sagt af öllum þeim ábyrgðum, sem banki veitir og eru algerlega hliðstæðar þeim ábyrgðum, sem hér er um að ræða, tekur hann ákveðið gjald. Og ég hygg, að það sé óhætt að fullyrða, að það gjald, sem um ræðir í þessari frvgr., sé síður en svo hærra en þau gjöld, sem bankarnir taka. Mér sýnist það því ekki geta farið á milli mála, hvað við er átt í ályktun sveitarstjórnasambandsins, því að það er útilokað annað en þeir ágætu menn, sem frá þeirri ályktun gengu, hafi vitað um þessi gjöld til bankanna. Ég held, að það sé því ekki rangt að halda því fram, að þessi ályktun sveitarstjórnasambandsins sé í fullkomnu samræmi við það, sem meiri hl. fjhn. leggur hér til að samþ. verði. Um þetta atriði hafa ekki getað verið ákaflega skiptar skoðanir, vegna þess að ályktun sveitarstjórnasambandsins er samþ. með 14 atkv. gegn 3.
Varðandi svo annað atriði, sem hv. frsm. nefndi í sambandi víð áhættugjaldið, að verið væri að gera það að tekjustofni fyrir ríkissjóð, þá sýnist mér, að það sé ekki alls kostar rétt að nefna gjaldið tekjustofn fyrir ríkissjóð. Hér er eingöngu, eins og orðalagið bendir til, rætt um áhættugjald, og það er við það miðað, að þetta gjald eigi að mæta þeim áföllum, sem ríkissjóður verður fyrir vegna vanskila á ríkisábyrgðarlánum, og það vita allir hv. þdm., að þau vanskil hafa verið mjög tilfinnanleg. Ég sé ekki, að það sé hægt á nokkurn hátt að segja, að það sé óeðlilegt, að aðilar, sem fá jafnmikilvæga fyrirgreiðslu og aðstoð og ríkisábyrgðir óneitanlega eru, verði í staðinn að greiða það smávægilega gjald, sem hér er um að ræða, sem vissulega er ekki tilfinnanlegt, þegar búið er að gera þá breytingu á því, að það er greitt aðeins í eitt skipti fyrir öll, þegar lán eru veitt eða ábyrgð er tekin.
Hv. 1. þm. Norðurl. e. flutti hér brtt. varðandi þær ríkisábyrgðarheimildir, sem í gildi eru nú, og vildi leggja til, að fjmrh. væri heimilt að veita sjálfskuldarábyrgðir í sambandi við slíkar ábyrgðir, sem Alþ. þegar hefur samþ. Ég álít, að þessi till. sé ekki nauðsynleg, vegna þess að fjmrh. geti veitt sjálfskuldarábyrgðir í sambandi við þær ríkisábyrgðarheimildir, sem þegar hafa verið veittar í lögum. Hins vegar finnst mér sjálfsagt og eðlilegt, að það verði reynt að koma þeim málum einnig í það horf, að þær ábyrgðir verði einfaldar. Þær langþýðingarmestu ábyrgðir af þessu tagi, ábyrgðir, sem veittar eru án þess að nokkrar tryggingar séu settar, eru ábyrgðir vegna hafnarframkvæmda. Það er beinlínis tekið fram í frv., að um þær ábyrgðir allar skuli einnig framvegis gilda óbreyttar reglur, þannig að þær yrðu undanþegnar bæði ákvæðum 2. gr. og einnig ákvæðum 3. gr. um tryggingar. Mín skoðun er því sú, og þetta var rætt nokkuð í sambandi við meðferð frv. í n., að þau lög, sem þegar séu í gildi komin, — og á þeim tíma var ekki neitt tilefni fyrir Alþ. til þess að ákveða sérstaklega um það, hvort ábyrgðir væru einfaldar eða sjálfskuldarábyrgðir, — að í sambandi við þær sérstöku heimildir verði að meta það svo, að það sé heimild fyrir fjmrh. til þess að veita slíkar ábyrgðir svo sem gert hefur verið. En verði það beinlínis tekið fram í lögum um slíka heimild, þá hygg ég, að það muni frekar stuðla að því, að það yrði almenna reglan áfram, að sjálfskuldarábyrgðir yrðu veittar, sem ég álít að ekki eigi að vera almenn regla, heldur eingöngu undantekning, ef það sýnir sig, að það sé gersamlega útilokað að leysa tiltekin vandamál nema með þeim hætti. Það er þess vegna, sem ég álít, að till. sé ekki heppileg, og ég vil láta það skýrt koma fram, til þess að það feli ekki í sér yfirlýsingu um það, að fjmrh. sé þetta undir öllum kringumstæðum óheimilt, þó að ég greiði atkv. gegn þeirri brtt.
Varðandi svo það atriði, sem hv. 1. þm. Norðurl. e. ræddi um í upphafi máls síns, að hann hefði gert ráð fyrir því, að þetta mál yrði tekið fyrir aftur í fjhn., þá er því til að svara, að það var tekið fram, þegar ég tók till. aftur við 2. umr., að þessi afturköllun till. til 3. umr. byggðist á því, að samband sveitarfélaga sæti á rökstólum og rétt væri að sjá, hver ályktun kæmi frá því, áður en þetta atriði væri endanlega afgert. En það fól ekki í sér neina yfirlýsingu um, að það væri þörf á því að taka það til meðferðar aftur í fjhn., nema ef sýnt þætti, að þær röksemdir kæmu fram frá sambandi sveitarfélaganna, sem réttlættu það sérstaklega eða gerðu nauðsynlegt að taka málið upp aftur. Þar sem álitsgerð sambands sveitarfélaganna var á þá leið, að ekki sýndist nein ástæða til þess að hverfa frá þeirri till., sem meiri hl. n. hafði flutt, þá sáum við ekki ástæðu til þess sérstaklega að vera að kalla saman fund í nefndinni, þar sem viðhorfið var þá óbreytt frá því, sem það var, þegar við áður gengum frá till. í fjárhagsnefndinni, þannig að ég vil mega vænta þess, að hv. fjárhagsnefndarmenn telji ekki, miðað við þessar aðstæður, að hér hafi á neinn hátt verið óeðlilega að unnið, enda varð þá ekki afleiðingin önnur en sú, að hv. minnihlutamenn gátu þá tekið upp sina fyrri till., eins og þeir líka hafa hér gert, og deildin mundi þá taka sína aðstöðu til þess, hvað hún vildi fallast á í því efni.