10.03.1961
Efri deild: 70. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)
124. mál, ríkisábyrgðir
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég hef fengið að líta á bréf Sambands ísi. sveitarfélaga hjá hv. frsm. meiri hl. n. og þá ályktun, sem sá fundur gerði, en hún er — með leyfi hæstv. forseta — eins og áður hefur verið lesið upp: „Fundurinn er samþykkur aðalefni frv., en beinir því til Alþingis, að fallið verði frá kröfum um áhættu- og ábyrgðargjöld til ríkissjóðs umfram venjuleg bankagjöld sveitarfélaga“ o.s.frv. Ég skil þessa ályktun á allt annan veg. Ég skil hana þannig, að fundurinn hafi verið að mælast til, að felld yrðu niður gjöld umfram þau bankagjöld, sem þau verða að greiða, þegar þau taka lánið, þannig að þegar sveitarfélag er búið að fá ábyrgð og tekur lán í banka út á ábyrgðina, þá þarf það auðvitað að greiða sín bankagjöld, og það séu þau gjöld, sem þarna er verið að álykta um. Ég get ekki skilið þetta á annan veg. Mér þætti gaman að heyra, hvort þeir, sem sátu þennan fund, eru öruggir um, að ekki eigi að skilja þetta þannig. Auðvitað verða þessi sveitarfélög að greiða sín bankagjöld, þegar þau taka lánið. (Gripið fram í.) Það er í samræmi við það, sem ég held fram að helzt hafi vakað fyrir mönnum. Ég skildi þetta svona. Ég vil beina því til þeirra. En það getur verið að þetta sé misskilningur hjá mér, en ég skildi orðalagið þannig.