23.02.1961
Neðri deild: 68. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)
180. mál, Seðlabanki Íslands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég gerði hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG) tilboð í ræðu minni síðdegis í dag. Ég bauð honum, að við skyldum í sameiningu vinna að því að alveg sömu reglur yrðu látnar gilda um innlánsdeildir kaupfélaga og sparisjóði. Annaðhvort skyldu báðar þessar tegundir innlánsstofnana eða innstæðueigendur í þeim njóta skattfrelsis fyrir innstæður sinar og þá báðar verða að hlíta sömu reglum um innlánsbindingu í Seðlabankanum, eða þá að skattfrelsi innstæðueigenda í innlánsdeildum kaupfélaga yrði afnumið og þá jafnframt skylda þessara innlánsdeilda til þess að binda fé í Seðlabankanum. Athyglisverðast við ræðu hv. þm. áðan var, að hann hafnaði þessu samvinnutilboði algerlega. Hann sagðist ekki vera til viðtals um breytingu á skattfrelsi innstæðna í innlánsdeildum kaupfélaga. En þá verður hv. þm. að sætta sig við, að sömu reglur gildi um skyldu innlánsdeilda kaupfélaga og gilda um skyldur sparisjóða. Annað væri misrétti. Jafnrétti í þessum málum er jafnnauðsynlegt og í öðrum. Þetta tilboð mitt var í raun og veru nokkurs konar prófsteinn á hv. þm., nokkurs konar prófsteinn á það, hvort hann í raun og veru væri reiðubúinn til þess að láta sömu lög gilda um þær stofnanir, sem honum eru sérstaklega hjartfólgnar, kaupfélögin, og aðrar hliðstæðar stofnanir í landinu. Á þessu prófi féll hv. þm. Hann féll mjög greinilega á því. Hann reyndist ekki vera til viðtals um að láta sams konar reglur gilda um innlánsdeildir kaupfélaganna og aðrar algerlega hliðstæðar stofnanir. Hann reyndist m.ö.o. unna misréttinu meir en réttlætinu eða jafnréttinu.
Það voru nokkur önnur atriði i ræðu hv. þm., sem ég vil víkja nánar að, þarf þó ekki mörgum orðum um þau að fara.
Í tilefni af því, að ég hafði bent á, að hv. þm. studdi það 1957, að ótakmörkuð heimild væri tekin í landsbankalögin fyrir Seðlabankann til þess að ákveða innstæðubindingu i. Seðlabankanum, en Vildi nú afnema hliðstæð ákvæði í þessu seðlabankafrv., þó að þar sé sett takmörkun á rétt Seðlabankans til þess að ákveða innstæðubindinguna, sagði hann, að heimildin 1957 hafi átt að vera öryggisákvæði. Ef svo færi, að sérstaklega mikið fé safnaðist hjá einni bankastofnun, þá skildist mér hv. þm. telja, að þetta ákvæði ætti að þýða, að þá gæti Seðlabankinn gripið inn í málið og skyldað þessa einu bankastofnun til þess að leggja fé inn í Seðlabankann. Hér er um algeran misskilning að ræða hjá hv. þm. Það hefur aldrei verið meiningin, var það ekki 1957 og er það ekki heldur nú, að Seðlabankinn geti sett reglur, sem gildi um eina einstaka bankastofnun, en ekki aðrar. Það hefur ávallt verið meiningin og hlýtur að vera svo, að slíkar reglur séu almennar. Ef Seðlabankinn ætti að hafa heimild til þess að skylda bankastofnun A til þess að leggja 10% af innstæðufé sinu inn í Seðlabankann, en bankastofnun B 8% og bankastofnun C 20%, þá sjá allir, hvert það mundi leiða. Tilgangur slíkra heimildarákvæða hefur auðvitað aldrei verið sá, heldur gert ráð fyrir því, að Seðlabankinn setti almennar reglur um innstæðubindingu í Seðlabankanum. Frá því má að sjálfsögðu gera undanþágur, sem þá yrðu líka almennar. Þetta, sem hv. þm. rakti í ræðu sinni að hafi verið meiningin 1957, er álíka fjarstætt og að skattalög væru þess eðlis, að þau heimiluðu fjmrh. eða bæjaryfirvöldum að leggja skatt og útsvar á án þess að fylgja nokkurri sérstakri reglu, að leggja 10 þús. kr. á A, 8 þús. kr. á B og 20 þús. kr. á C, án þess að þessum tölum lægi nokkur sérstök regla til grundvallar. En jafnfráleitt og slíkt er í skattamálum, er auðvitað jafnfráleitt í efnum eins og þessum, að slíkt gæti komið til greina. Það hefur heldur aldrei verið meiningin. Það, sem átti sér stað 1957, var eingöngu, að lögleidd var almenn heimild fyrir Seðlabankann til slíkrar innstæðubindingar, af því að þá heimild hafði vantað í landsbankalögin áður, af því að landsbankalögin voru ekki fyrst og fremst lög um seðlabanka.
Lögin frá 1957 voru eiginlega fyrsta frumsmíð hér að lögum um seðlabanka. Þá þótti slíkt ákvæði sem þetta vera sjálfsagt. En eins og ég gat um áðan, var þetta ákvæði gallað. Það var meingallað að því leyti, að ekki var sett eðlilegt hámark á þessa heimild Seðlabankans. Úr þessum mikla galla er nú bætt í þessu frv. Þá bregður svo við, að þegar gert er ráð fyrir þessari sjálfsögðu heimild í skynsamlegu formi, þá snýst hv. Framsfl. gegn henni, þó að hann áður hafi staðið að henni í mjög óskynsamlegu og jafnvel varhugaverðu formi. Það er erfitt að koma heilli brú í slíka afstöðu.
Þá vék hv. þm. að því, að í stjórnartíð Hermanns Jónassonar hafi Seðlabankinn aldrei notað þessa heimild. Það er rétt. Ég mundi vilja hafa þau orð um þetta, að á stjórnarárum Hermanns Jónassonar hafi hin nýja stjórn Seðlabankans vanrækt að nota heimildina. Hún hefði átt að gera það, en hún vanrækti það, eins og ýmislegt fleira einmitt á sviði bankamála og peningamála var vanrækt í stjórnatíð Hermanns Jónassonar. Það var Hermann Jónasson sjálfur, það var forsrh. sjálfur, sem var þá yfirmaður bankamálanna. Raunar heyrðu þau undir ríkisstj. alla, en hann fór þá með þau mál sem forsrh., og ég hika ekki við að segja, að einmitt það, að Seðlabankinn skyldi á þessum árum ekki setja slíka reglu, ekki nota heimildina, ber að reikna þeirri stjórn til synda, en ekki til tekna, svo gersamlega ósammála er ég hv. þm. í þessum efnum. Stjórn Emils Jónssonar beitti sér að vísu ekki heldur fyrir því, að Seðlabankinn tæki að beita þessum heimildum. Annars má á það benda, að þetta er í verkahring Seðlabankans sjálfs, en ekki í verkahring ríkisstjórna. En um það er það að segja, að í stjórn Emils Jónssonar fór ég með bankamálin og ég átti oftar en einu sinni viðræður einmitt um þetta atriði við aðalbankastjóra Seðlabankans, Vilhjálm Þór, og Jón Maríasson bankastjóra, framkvæmdastjóra Seðlabankans. Við ræddum ýtarlega um undirbúning þess, að þessi heimildarákvæði væru notuð til þess að styrkja stjórn Seðlabankans á peningakerfinu. Það varð hins vegar niðurstaða þeirra viðræðna, að á því ári væri ekki rétt að gangast fyrir gagngerum nýjungum á þessu sviði, heldur bæri að láta þær breytingar, sem við allir þrír vorum sammála um að nauðsynlegar væru í þessum efnum, bíða þeirra almennu efnahagsaðgerða, sem okkur öllum og raunar flestum hlaut að vera ljóst að hlutu að koma og nauðsynlegt var að undirbúa. Það voru m.ö.o. talin eðlileg og sjálfsögð vinnubrögð, að notkun þessara heimilda frá 1957, þ.e. reglna um innstæðubindingu, fylgdi þeim heildarráðstöfunum, sem augljóst var að nauðsynlegar mundu verða ekki seinna en upp úr áramótunum 1959–60, enda varð sú raunin á. Þá var heimildin notuð í fyrsta skipti og hefur verið notuð siðan og verður án efa notuð hér um alla framtið, meðan við á annað borð höfum hér seðlabanka og sjálfstætt fjárhagskerfi.
Nú kemur hér fram fjhn.-maður í hv. Nd. Alþ. og flytur till. um, að felld sé úr þessu frv. heimild Seðlabankans til þess að krefjast innstæðubindingar hjá innlánsstofnunum. Ef þessi till. hv. þm. yrði samþ., ef þetta seðlabankafrv. yrði afgreitt án þess, að í því væri heimild til handa stjórn Seðlabankans til innstæðubindingar, yrði íslenzki seðlabankinn eini seðlabankinn á byggðu bóli, — ég endurtek það, þá yrði íslenzki seðlabankinn eini seðlabankinn á byggðu bóli, sem hefði ekki heimild til þess að krefjast innstæðubindingar af innlánsstofnunum í því landi, sem hann starfar í. Það, sem hv. þm. leggur til með þessari till. sinni, er í raun og veru að gera íslenzka seðlabankann að hreinu viðundri í fjármálakerfi, ekki aðeins Evrópu og Ameríku, heldur verð ég að taka lönd í Asíu og Afríku þar með. Þetta er það, sem hv. þm. viljandi eða óviljandi leggur til að gerist; sem sagt leggur til, að hér eigi sér stað algert einsdæmi í seðlabankastarfsemi.
Hv. þm. hefur gert mikið úr því í ræðu sinni í dag, og ég sé, að hann gerir það einnig í nál. sínu, að þær reglur, sem Seðlabankinn hafi sett samkv. heimildinni frá 1957, séu hlægilegar, þær séu vitlausar, og hann nefnir um það nokkur dæmi. Rökin fyrir því, að þessar reglur séu vitlausar, eru þau, að gildandi reglur, sem Seðlabankinn hefur gefið út, — ekki ríkisstj., heldur stjórn Seðlabankans hefur gefið út, — hafi í för með sér að kaupfélag í Árneshreppi verði að leggja inn í Seðlabankann kr. 3963.35, að Flateyingar verði að senda hingað suður til Reykjavíkur í Seðlabankann 5000 kr. og Kaupfélag Rauðasands á Hvalskeri muni eignast reikning í Seðlabankanum upp á hvorki meira né minna en 800 kr. Þetta eru rökin fyrir því, að þessar reglur séu vitlausar eða hlægilegar. Nú er sannleikurinn sá, að hér á Íslandi eru margir bankareikningar, jafnvel í sjálfum Landsbankanum, hvað þá Útvegsbankanum og í sparisjóðum úti um land og innlánsdeildum kaupfélaga, sem á eru hlægilegar tölur í augum hv. þm. Það eru áreiðanlega til sparifjárreikningar, sem eru ekki nema 100 kr., og jafnvel sparifjárreikningar upp á 10 kr. Það má vel segja það í ræðum hér í sölum Alþingis og láta básúna út í blöðum, að þetta séu hlægilegar tölur. Ef þessar litlu sparifjártölur, sem ég nefndi og kunna að vera hlægilegar hér í sölum Alþingis, að ég ekki tali um, ef það yrði blaðaefni einhvers staðar annars staðar, þar sem aðstæður eru miklu stærri, ef tölurnar, sem hann nefnir í grg. sinni að þessi félög verði að eignast á reikningi hér í Seðlabankanum, eru hlægilegar í augum hv. þm. og einhverra annarra, þá er það einvörðungu af því, að við búum hér í örsmáu þjóðfélagi og afleiðingin af því er sú, að hér verða margar tölur hlægilega smáar. En það er enginn vandi að halda hugsanagangi hv. þm. áfram. Ef honum finnst þessar tölur, sem hann nefnir í grg., svona sérstaklega hlægilegar, þá gæti maður kannske búizt við því næst, að einhver annar tæki sig til og færi að segja, að íslenzkt þjóðfélag yfir höfuð væri afskaplega hlægilegt. Hér eru í sjálfstæðu ríki ekki nema 170 þús. manns. Er það ekki hlægilegt í munni þjóða, sem telja jafnmargar milljónir og við teljum þúsundir? Nei, ég held, að hv. þm. ætti að vara sig á þessum málflutningi. Hann getur verið skemmtilegur og ræður hans um þetta efni hafa sannarlega verið skemmtilegar, en það er Iíka alvara á bak við smæð þessara talna.
Hv. þm. gerði mér einhvers konar gagntilboð, hvort við ættum ekki að vinna saman að því að semja reglur um undanþágur fyrir litlar innlánsdeildir kaupfélaga og litla sparisjóði, þar sem þessar litlu stofnanir yrðu undanþegnar innlánsbindingarreglum Seðlabankans. Við hv. þm. höfum oft unnið saman að því að semja ýmsar reglur. Ég veit, að okkur hefur hingað til gengið mjög vel að vinna saman, og ég efast ekki um, að okkur mundi líka ganga mjög vel að vinna saman að þessu. Ég hef aldrei sagt, að ekki væri hægt að semja um slíkar undanþágureglur, alls ekki, og ég efast ekki um, að við yrðum mjög fljótir að slíku. Það, sem okkur greinir á um, er: Á að semja þær eða á ekki að semja þær? Um það er ágreiningurinn, ekki um hitt, hvort við gætum ekki setzt saman og verið fljótir að gera uppkast að einhverjum slíkum reglum. Ágreiningurinn er um hitt: Á að semja slíkar reglur eða á ekki að gera það? Það, sem ég hef lagt áherzlu á, er, að það á ekki að semja slíkar undanþágureglur og gefa þær út. Hið sama á að gilda um alla í þessum efnum, stóra og smáa. Ég skal færa dálítið nánari rök að því en ég gerði í dag.
Ég lýsti því í dag, að ástæðurnar fyrir því, að slíkar innlánsbindingarreglur þykja sjálfsagðar í öllum löndum, þar sem seðlabankar eru starfandi, eru tvenns konar: Annars vegar þær, að þær eru alveg nauðsynleg tæki í höndum seðlabankans til að hafa stjórn á peningamagninu í umferð. Þetta er önnur ástæðan. Hin ástæðan er sú, að þær eru nauðsynlegar til öryggis innstæðueigendum í lánastofnunum. Það er nauðsynlegt öryggi fyrir þá, sem eiga inni í lánastofnununum, að viss hluti af þeirra inneignum liggi hjá sjálfum seðlabankanum, sem er banki bankanna. Þetta tvennt eru ástæðurnar fyrir því, að alls staðar þykir sjálfsagt, að seðlabankinn hafi slíkar heimildir og beiti þeim í misjafnlega ríkum mæli eftir því, hvernig ástandið á fjárhagsmarkaðinum er.
Nú má vel segja, — það skal ég játa fúslega, — að þessar litlu upphæðir, sem hv. þm. hefur nefnt, 3900 kr. úr Árneshreppi, 5000 kr. úr Flatey og 800 kr. frá Kaupfélagi Rauðasands á Hvalskeri, skipta engu máli fyrir stjórnina á heildarpeningamagninu. Auðvitað er það alveg rétt. Það má því segja, að Seðlabankinn hefur svo að segja jafnmikil tök á heildarpeningamagninu í landinu, hvort sem hann fær þessar 800 kr. frá Hvalskeri eða þessar 3900 kr. úr Árneshreppi og þessar 5000 kr. úr Flatey. Það er auðvitað alveg rétt. En þá komum við að hinni ástæðunni, hinum rökunum fyrir því, að slíkar innstæðubindingarreglur eru nauðsynlegar, að það sé nauðsynlegt vegna öryggis þeirra, sem eiga inni í innlánsstofnunum, að einhver hluti inneignanna sé í sjálfum banka bankanna, seðlabankanum. Nú spyr ég hv. þm. og bið hann um að svara mér, ef hann á eftir að tala hér aftur á eftir: Telur hann þá, sem eiga inni í kaupfélaginu á Hvalskeri, telur hann þá, sem eiga inni í sparisjóðnum í Flatey eða í kaupfélaginu í Árneshreppi, þurfa eitthvert minna öryggi eða eiga rétt á einhverju minna öryggi en þá, sem eiga inni í Sparisjóði Siglufjarðar eða sjálfum viðskiptabanka Landsbankans hér í Reykjavík eða útibúinu á Eskifirði? Er ekki öryggisnauðsynin nákvæmlega sú sama, hvort sem bankastofnunin er stór eða lítil og hvort sem innstæðan er stór eða lítil? Það er þetta, sem er mergurinn málsins í þessu sambandi, einmitt vegna þess, að það er nákvæmlega sama ástæða til þess að tryggja öryggi innstæðueigandans í litlum sparisjóði og í lítilli innlánsdeild eins og er ástæða til þess að tryggja öryggi sparisjóðseigandans í stóra bankanum. Það er þess vegna, sem sama regla verður að gilda um innstæðubindinguna fyrir stóra bankann, fyrir viðskiptabanka Landsbankans hér í Reykjavík, og fyrir kaupfélagið á Hvalskeri, nákvæmlega sama reglan. Ef hv. þm. ber á móti því, er hann beinlínis að halda því fram, að það sé ekki þörf á að tryggja þann, sem á inni á Hvalskeri, jafnvel og þann, sem á inni í Landsbankanum hér í Reykjavík. Einhver gæti kannske leikið sér að því að snúa þannig út úr fyrir hv. þm., — ég ætla ekki að gera það, að segja, að hann hafi meiri áhuga á því að tryggja stórsparifjáreigendurna í Landsbankanum hér í Reykjavík en smáborgara, sem á inni í kaupfélaginu á Hvalskeri, fyrst hann vill engar tryggingarráðstafanir gera til góða smábóndanum á Rauðasandi, en viðurkennir nauðsyn tryggingarráðstafana handa stórsparifjáreigendunum hér í Reykjavík. Ég skal játa, að slíkt væri útúrsnúningur, en hann væri svo sannarlega ekki meiri en ýmislegt, sem hv. þm. hefur leyft sér í þeim tveimur ræðum, sem hann hefur flutt hér í dag.
Ég vil svo að síðustu aðeins leggja áherzlu á, að þeim reglum, sem Seðlabankinn hefur sett sér og eru annars vegar um innstæðubindingu ákveðins hundraðshluta af aukningu sparifjár, og þar gildir visst lágmark og sú regla tekur aðeins til innlánsstofnana, þar sem spariféð er yfir ákveðnu marki, 5 millj., og svo hins vegar sú regla, að binda skuli ákveðinn hundraðshluta, lágan hundraðshluta af innstæðunum, — þessum báðum reglum er alls staðar annars staðar, sem ég þekki til, beitt jöfnum höndum og þó mun meir síðari reglunni. Ég þekki ekki dæmi til, að í grundvallaratriðum sé sú regla ekki almenn, enda leiðir það beinlínis af þessum tvíþætta tilgangi bindingarreglnanna, að þær verða að vera almennar, ef þær eiga að ná tilgangi sínum. Það má spyrja, og ræða hv. þm. gaf vissulega tilefni til þess, að þannig sé spurt: Hvers vegna hafa slíkar reglur ekki verið teknar hér upp fyrr en nú fyrir rúmu ári? Svarið við því er: Við höfum ekki til skamms tíma haft á Íslandi seðlabanka, því miður. Það, að við höfum ekki haft slíka reglu, er ein af afleiðingum þess, að við höfum ekki haft seðlabanka. Landsbankinn hefur ekki verið og var ekki fyrst og fremst seðlabanki, leit ekki á sig fyrst og fremst sem seðlabanka, sem m.a. sást á því, að Landsbankinn sóttist aldrei eftir því eða stakk aldrei upp á því, að slíkar reglur væru teknar upp. Það ber vitni um, að hann leit ekki á sig sem seðlabanka. Það er fyrst þegar seðlabanka er komið á fót að hálfu leyti 1957, sem þetta mál er tekið upp, og það er ekki fyrr en nú, er hreinum seðlabanka er komið upp, að réttarreglur um heimildir honum til handa í þessu efni eru settar. En ég vil undirstrika, að reglurnar, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, eru þær, sem alls staðar annars staðar þýkja sjálfsagðar í stjórn seðlabanka á peningamálum og er í raun og veru beitt alveg jafnhliða vaxtabreytingunum. Það eru þessi tvö tæki, sem seðlabankar hafa fyrst og fremst til að hafa áhrif á peningamagnið og lánsfjárframboðið og sparifjármyndunina: annars vegar vaxtabreytingarnar og hins vegar innstæðubindingar eins og sú, sem hér er um að ræða.
Ég vil svo að síðustu segja það enn, sem ég sagði í fyrri ræðu minni í dag, að ég harma mjög, að Framsfl., næststærsti flokkur þingsins, skuli láta karp um jafnlítilfjörlegt atriði og hér er í raun og veru um að ræða verða til þess, að hann gerist ekki aðili að því að afgreiða þetta mál, sem ég er hv. frsm. fjhn. alveg sammála um að er eitt af stórmálum þessa þings og markar tímamót í sögu íslenzkra bankamála. Ég harma það mjög, að þessi ofurást, sem hv. þm., hv. 1. þm. Norðurl. v., hefur á kaupfélögunum, skuli blinda hann svo í þessu máli, að hann skuli ekki vilja sinna neinum hugmyndum um jafnrétti þeirra og annarra aðila. Upp á það hefur honum sannarlega verið boðið og hann hafnað því. En látum það vera. Við höfum þekkt áður, að skoðun hans á því, hvað sé jafnrétti í þessum efnum og skyldum, er ekki sú sama og okkar margra hinna. Látum það vera. Því virðist ekki vera hægt að breyta, ekki um sinn a.m.k. En hitt segi ég, að ég harma, að hann skuli láta þetta atriði, sem í þessu sambandi hlýtur að teljast vera algert aukaatriði, valda því, að hann og þá væntanlega flokkur hans snýst gegn stórmáli eins og þessu, sem framtíðin mun áreiðanlega fella þann dóm um að hafi verið mikið framfaraspor.