14.03.1961
Neðri deild: 74. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1113)

180. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Ég óskaði eftir því áðan, að hæstv. viðskmrh. svaraði þeim spurningum, sem ég hafði hér áður borið fram viðvíkjandi fullyrðingu hans um það í fyrri umr. um þetta mál, að efnahagsráðstafanir ríkisstj. hefðu borið ágætan árangur. Hæstv. ráðh. segir, að ég geti athugað ræðu þá, sem hann flutti í útvarpsumr. hér í gærkvöld, og fengið þar svör við þessum spurningum. Ég tel, að þetta sé sama og að vísa manni í geitarhús að leita ullar, því að þannig var þessi kafli í útvarpsræðu hæstv. ráðh., sem hann hér vísar til. Hann sagði í þeirri ræðu, að gjaldeyrisstaða bankanna hefði farið batnandi. Hann gat þess ekki, að þetta væri þannig til komið, að það hefðu verið tekin lán erlendis og lánsféð greitt inn í bankareikninga íslenzkra banka í útlöndum, þeirra reikningar stæðu eitthvað betur fyrir þetta, en þjóðin hefði myndað skuld á móti í útlöndum. Hann lét þess ekki getið. (Menntmrh.: Þetta er rangt.) Hann sagði, að það hefði verið tekið mínna af föstum lánum en áður um langt skeið og afborganir fastra lána væru meiri en ný föst lán. Ég veit ekki, hvernig hæstv. ráðh. sundurliðar lántökur erlendis í föst lán og önnur lán, en hann lét alveg hjá líða að geta þess í sinni útvarpsræðu, hvað skuldir þjóðarinnar við útlönd hefðu vaxið um mörg hundruð milljónir árið 1960. Hann nefndi það ekki, og það er vitanlega það, sem máli skiptir, þegar menn ætla að meta, hvort hagur þjóðarinnar út á við hafi batnað eða versnað, hvort hún hefur minnkað eða aukið sínar skuldir. Það er vitað mál, að skuldir þjóðarinnar hafa aukizt mikið við útlönd árið 1960, en hæstv. ráðh. gaf engar upplýsingar um það í sinni útvarpsræðu, hvað þar væri um mörg hundruð milljónir að ræða. Hann ætti þó að fara nærri um þetta. Hann sagði, að sparnaður þjóðarinnar hefði vaxið. Ég var búinn að sýna fram á það áður, að aukning sparifjárins eða innlánsfjár í bönkum og sparisjóðum er hlutfallslega miklu minni árið 1960 heldur en hún var 1958, — hlutfallslega miklu minni. Þá sagði hann í útvarpsræðunni, að útlánin, — mig minnir, að það væri efnið í því, sem hann sagði, að útlánin væru nú i meira samræmi við sparnaðinn en áður. En þetta er nú þannig, að í árslok 1958 voru útlán bankanna 1189 millj. hærri en innlán í bönkunum, en í árslok 1960 voru útlánin 1385 millj. hærri en innlánin. Ég geri ráð fyrir, að þetta sé, ef það er reiknað út hlutfallslega, ósköp svipað, svo að ég sé ekki, að þarna hafi orðið breyting til batnaðar, sem neinu nemur, þannig að útlánin séu nú tiltölulega minni í hlutfalli við sparifé en áður var. Hann sagði að síðustu, að ríkisbúskapur væri hallalaus. Menn hefðu nú vitanlega getað vænzt þess, eftir að fjárlögin hafa verið hækkuð um mörg hundruð milljónir í tíð núverandi ríkisstj., að það yrði einhver greiðsluafgangur á árinu 1960, eins og oft var áður fyrr, t.d. síðasta ár vinstri stjórnarinnar. En þó að hæstv. stjórn hafi ekki gefið um þetta neinar nákvæmar upplýsingar enn hér á hæstv. Alþ., þá hefur hún þó látið þess getið, að þess væri ekki að vænta, að það yrði nokkur greiðsluafgangur hjá ríkissjóði á því ári, og þessi ummæli hæstv. ráðh., að ríkisbúskapurinn væri hallalaus, benda til þess, að þar sé ekki um afgang að ræða. Ég geri ráð fyrir, að hann hefði talið það fram, ef þar væri um einhvern afgang að ræða.

Ég tel því, að það skorti mikið á, að hæstv. ráðh. hafi orðið við tilmælum mínum um að gefa skýringar á þessum orðum, sem hann sagði hér við 2. umr. þessa máls, að það hefði orðið mjög góður árangur af efnahagsráðstöfunum ríkisstj. — Ég tel, að þessi svör, sem hann hér vísar á, séu nánast alveg út í hött, því að þar var ekki kveðið skýrt á um neitt af þessum atriðum. Hann gat þess ekki heldur í sinni útvarpsræðu, hvernig ástand atvinnuveganna væri, en það skildist mér, að stjórnin teldi höfuðtilganginn með efnahagslögunum í fyrra að koma atvinnurekstrinum á öruggan og heilbrigðan grundvöll, eins og það var kallað. En það er víst ekki miklar sögur af því að segja, og þess vegna hefur hæstv. ráðh. látið alveg hjá líða að gefa upplýsingar um þann þátt efnahagsmálanna, sem er þó vitanlega mjög veigamikill.