10.11.1960
Efri deild: 19. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (112)
3. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Ég hef að sjálfsögðu ekkert að athuga við framsögu hæstv. frsm. fjhn., sem talaði hér áðan. Ég hef sem fjárhagsnefndarmaður mælt með frv. þessu, en skrifað þó undir nefndarálitið með fyrirvara. Ég tel rétt út af fyrir sig að samþykkja frv., þar sem vafalaust mun nú ekki af því veita frekar en að undanförnu að afla ríkissjóði þeirra tekna, sem það gerir ráð fyrir.
Hins vegar lízt mér þannig á fjármálastefnu hæstv. ríkisstjórnar í heild, að hafa beri gegn henni allan fyrirvara, og þess vegna hef ég skrifað undir þetta nál. með fyrirvara.