21.03.1961
Efri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (1122)

180. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og nál. meiri hl. fjhn. á þskj. 535 ber með sér, hefur n. eigi getað orðið sammála um afstöðuna til þessa máls, þannig að við þrír, sem að meirihlutanál. stöndum, mælum með samþykkt þess óbreytts, en tveir nm. munu hins vegar skila séráliti og munu þegar hafa gert það. Rétt er þó að geta þess, að nánari athugun hefur leitt í ljós, að óhjákvæmilegt er að gera tvær smábreytingar á frv. til leiðréttingar, og mun fjhn. sameiginlega leggja fram brtt. þess efnis fyrir 3. umr. Önnur breyt., sem þar er um að ræða, er við 11. gr. frv. Það er aðeins orðalagsbreyting, að fyrir „lausafé“ komi laust fé, því að óviðkunnanlegt er, að orðið lausafé sé í þessum lögum notað í annarri merkingu en gerist í daglegu tali. Hin breyt. varðar tilvitnun í lög og er við 13. gr. frv., að þar er vitnað til laga nr. 73 1933, en þessum lögum hefur, eins og hv. dm. mun kunnugt, verið breytt með efnahagslögunum frá s.l. ári, og er því það rétta að vitna i þau lög. Brtt. um þessi tvö atriði mun fjhn. leggja fram fyrir 3. umr. málsins, og eins og ég gat um, stendur öll n. að þeim till., þó að hún að öðru leyti hafi ekki getað orðið samferða í þessu máli.

Við 1. umr, þessa frv. rakti hæstv. viðskmrh. ýtarlega sögu seðlabankamálsins hér á landi, svo að þess gerist ekki þörf að mínu áliti að ræða þá hlið málsins hér. En það hefur, eins og kunnugt er, um langt skeið verið deilumál hér á landi, hvort seðlabankinn skuli vera sjálfstæð stofnun eða einhverjum viðskiptabankanna sé falið að sjá um seðlaútgáfuna. Síðarnefndi hátturinn hefur, eins og kunnugt er, verið hafður á allt fram til setningar bankalöggjafar þeirrar, er lögfest var árið 1957.

Þó að hægt sé að skilja, að slíkt fyrirkomulag hafi verið haft hér á landi, meðan bankastarfsemi öll var á frumskeiði, verður þó að telja það óeðlilegt og jafnvel hættulegt eðlilegri þróun peningamála og öryggi gjaldmiðilsins, þar sem seðlabanki og viðskiptabanki eiga svo ólíkum hlutverkum að gegna. Er hætta á því, að ef viðskiptabanki og seðlabanki eru undir sömu stjórn, verði hagnaðarsjónarmið viðskiptabankans látið hafa meiri áhrif á seðlaútgáfuna en öryggi gjaldmiðilsins krefur.

Með bankalöggjöfinni 1957 var hins vegar stigið stórt spor í þá átt að gera Seðlabankann að óháðri stofnun, þó að enn væru nokkur tengsl milli viðskiptabanka Landsbankans og Seðlabankans, þar sem bankaráð Landsbankans kaus meiri hluta stjórnar Seðlabankans. Er það að áliti okkar, er að þessu nál. stöndum, til bóta að rjúfa með öllu þessi óeðlilegu tengsl á milli bankanna, svo sem lagt er til í frv. því, sem hér liggur fyrir.

Þá verður og að telja það skynsamlega ráðstöfun að leggja veðdeildina, sem rekin hefur verið af Seðlabankanum síðan 1957, til Landsbankans, þar sem veðdeildarstarfsemi er ekki eðlilegt starfssvið seðlabanka.

Um einstök atriði í sambandi við setningu slíkrar löggjafar má auðvitað deila, svo sem t.d. það, sem nokkuð bar á góma við 1. umr. málsins, hvert skyldi vera sjálfstæði stjórnar Seðlabankans gagnvart ríkisstj. Ég býst þó varla við því, að um það sé ágreiningur, að úrslitavaldið í peningamálum hljóti að verða í höndum ríkisstj., ef ágreiningur rís milli ríkisstj. og seðlabankastjórnar, því að annað mundi varla samrýmast reglum lýðræðisins.

Það er hins vegar tilgangur 4. gr. frv. að skapa stjórn Seðlabankans aðstöðu til þess að halda fram skoðunum sínum, enda þótt þær fari í bága við skoðanir ríkisstj. Þó að það sé út af fyrir sig rétt, er hv. 3. þm. Norðurl. v. (ÓlJ) sagði við 1. umr. málsins, að embættismönnum sé heimilt að láta í ljós skoðanir andstæðar stefnu ríkisstj., þá mundi ég þó ekki vilja fella niður ákvæði 4. gr., þar sem því er slegið föstu, að stjórn Seðlabankans sé rétt að gera þetta, en í því liggur einmitt, að það er gert ráð fyrir því, að stjórn Seðlabankans lýsi að jafnaði opinberlega skoðunum sínum, enda þótt þær fari í bága við skoðanir ríkisstj. þeirrar, er að völdum situr. Ef aðrir embættismenn eiga í hlut, mun þeim að vísu vera slíkt heimilt að lögum, en óvenjulegt er það þó, að þeir láti slíka gagnrýni opinberlega í ljós.

Mér dettur í hug að nefna sem dæmi í þessu sambandi, að það mundi vera óvenjulegt, ef ráðuneytisstjórinn í fjmrn. færi t.d. að gagnrýna afgreiðslu og meðferð fjárl. af hálfu fjmrh. eða fjmrn. Þó að það mundi að sjálfsögðu ekki varða við lög, að ráðuneytisstjórinn setti fram slíkar skoðanir, þá mundi það vera óvenjulegt og sennilega almennt nánast litið á það sem trúnaðarbrot. Það er eins og kunnugt er yfirleitt ekki venja, að opinberir embættismenn gagnrýni gerðir yfirboðara sinna, en með þessari lagagrein er því slegið föstu, að svo sé til ætlazt af stjórn Seðlabankans, og tel ég það til bóta og réttmætt að hafa þetta ákvæði, svo langt sem það nær. Hitt má auðvitað um deila, hvort ekki væri ástæða til frekari ákvæða, sem tryggðu sjálfstæði seðlabankastjórnarinnar gagnvart ríkisstj. Það hlýtur auðvitað alltaf að verða álitamál.

Annað atriði, sem ágreiningur hefur verið um hér á hv. Alþingi í sambandi við meðferð þessa máls, eru ákvæði 11. gr. frv. um heimild til handa stjórn Seðlabankans til þess að binda að vissu marki innstæðufé viðskiptabanka og sparisjóða. Það verður auðvitað alltaf álitamál, hvaða prósentu skuli nefna í þessu sambandi. Ég tel þó óhjákvæmilegt að hafa slík ákvæði í þessum lögum, því að án þeirra gæti stjórn Seðlabankans varla haft þau tök á peningamarkaðnum og útlánum í heild, sem nauðsynlegt verður að telja, til þess að Seðlabankinn geti gegnt því hlutverki, sem honum er ætlað samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. þessara laga, þar sem hlutverk Seðlabankans er nánar afmarkað.

Þó að setning löggjafar þeirrar, sem hér er lagt til að lögfest verði um Seðlabankann, tákni að vísu ekki neina byltingu í fyrirkomulagi peningamála hér á landi, þá teljum við, sem að áliti meiri hl. n. stöndum, hana þó til verulegra bóta. Með henni er skapað tæki til þess að tryggja öryggi gjaldmiðilsins eða verðgildi peninganna. Það, að slíkt tæki er til, er þó auðvitað ekki nein næg trygging fyrir heilbrigðri stjórn peningamála. Slík trygging verður auðvitað fyrst og fremst komin undir þeim mönnum, sem við stjórnvölinn standa hverju sinni. En það ætti þó að auðvelda framkvæmd heilbrigðrar stefnu í þessum málum, að slíkt tæki skuli vera til og vera fullkomnara en það áður hefur verið.

Ég vil sérstaklega undirstrika það, að að mínu áliti verður ekki um öruggan gjaldmiðil að ræða hér á landi, fyrr en skilyrðislaust er hægt að framkvæma það, sem gert er ráð fyrir í 7. gr. laganna að stefnt skuli að, nefnilega að seðlar þjóðbankans verði a.m.k. að hálfu tryggðir með gulli eða frjálsum erlendum gjaldeyri. Því miður hefur ekki verið talið, að gjaldeyrisaðstaðan nú leyfði það, að þessi ákvæði yrðu gerð skilyrðislaus. En að slíku ber tvímælalaust að stefna, og tækist, áður en langt um líður, að gera þetta ákvæði 7. gr. frv. raunhæft, væri það að mínu áliti einhver merkasti árangur þeirrar löggjafar, sem ætlazt er til að nú verði sett.