21.03.1961
Efri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
180. mál, Seðlabanki Íslands
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að lengja umr. um þetta mál með því að ræða það almennt, enda þótt fróðlegt hefði verið að gera að umtalsefni þau atriði, sem fram hafa komið hér, einkum í ræðum hv. fulltrúa stjórnarandstöðunnar í fjhn., en að svo miklu leyti sem ástæða er til þess, þá geri ég ráð fyrir, að hv. frsm. n. muni gera það.
Orsökin til þess, að ég stend hér á fætur, er raunverulega aðeins ein. Hún er brtt., sem hv. 3. þm. Norðurl. v. (ÓlJ) flytur við 19. gr. frv., þ.e.a.s. um, hvaða aðilar skuli hafa réttindi til þess að verzla með erlendan gjaldeyri. Ég get tekið undir hvert orð, sem hann sagði um það mál, og mig furðar í rauninni mjög á því, að það skuli ekki fyrir löngu hafa verið ákveðið, að ríkisbankarnir þrír, sem almenn viðskipti hafa með höndum, hefðu allir gjaldeyrisréttindi. Ég efa það ekki, að talsmenn Búnaðarbankans á hverjum tíma hafa — enda er mér kunnugt um það — mjög beitt sér fyrir því, að bankinn fengi þessi réttindi, og bankinn hefur nú búið svo vel á vissum tímum, að formaður bankaráðs hefur meira að segja um leið verið forsrh. og áhrifamesti maðurinn í þjóðfélaginu, og hann hefur því tvímælalaust haft góða aðstöðu til þess að hrinda þessu máli áleiðis. Ekki skal ég á neinn hátt bera hann sökum um það, að hann hafi ekki haft fullan áhuga á að koma þessu hagsmunamáli bankans fram. En það virðist svo sem þar hafi verið við mjög ramman reip að draga eftir því að dæma, að jafnmikill áhrifamaður skyldi ekki fá um þokað neinu í þessu efni. Hvað sem því líður, get ég alveg tekið undir það, sem hv. flm, brtt. sagði, að ég hef aldrei heyrt nein frambærileg rök fyrir því, að Búnaðarbankanum væri neitað um þessi réttindi. Vitanlega dregur það úr tekjum hinna bankanna, ef fleiri aðilar fá gjaldeyrisréttindi, og það er auðvitað mjög mikið álitamál, hversu langt á að ganga í því að veita einstökum aðilum réttindi til þess að verzla með erlendan gjaldeyri, vegna þess að það hefur einnig í för með sér allverulegan kostnað fyrir viðkomandi banka eða þá aðila, sem slíka verzlun hafa með höndum, og það gæti því farið svo, ef þessu væri dreift á mjög margar hendur, að það gerði ekki betur en rísa undir þeim tilkostnaði.
Hv. 3. þm. Norðurl. v. fullyrti hér, að hann hefði beitt sér fyrir því í bankastjórn Seðlabankans, að Búnaðarbankinn fengi þessi umræddu réttindi, en það hefði ekki tekizt að koma því fram. Ég tel mjög þakkarverða hans baráttu fyrir þessu máli. Ég vil hins vegar segja það hér, þar sem það snertir mig persónulega orðið nokkuð mikið, hvað gerist í þessum efnum, þar sem ég hef verið til þess valinn að fara með trúnaðarstörf í þágu þessarar stofnunar, að þá vil ég láta það skýrt koma fram hér einmitt í tilefni þessarar brtt., að ég tel sjálfsagt, að Búnaðarbankinn fái þau réttindi, sem hér er um að ræða. Hitt er svo annað mál, eins og við sjáum af fortíðinni í þessum efnum og eins og viðhorfin eru í sambandi við þessa löggjöf og undirbúning hennar, að þá eru ekki miklar líkur til, að samkomulag gæti orðið um að gera þá breyt., sem hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur lagt til að gerð yrði hér, og ég hefði talið, að það væri óhagstætt fyrir Búnaðarbankann, ef brtt. þessi yrði felld í þinginu. Það gæti leitt til þess, að bankastjórnin, sem þó að formi til er veitt hér heimild til þess að veita þessum banka eigi síður en öðrum aðilum réttindi til að verzla með erlendan gjaldeyri, kynni að telja, að með þeirri afgreiðslu Alþ. á þessari till. væri fengin yfirlýsing um það, að Alþ. eða meiri hl. þess væri andvígur því, að Búnaðarbankinn verzlaði með erlendan gjaldeyri. Ég tel það því sjálfsagt, að þessi till. verði athuguð í fjhn. betur og rannsakað, hvort hugsanlegt er, að það fáist um það samkomulag, að þessi breyt., sem hér um ræðir, verði gerð á frv. Verði hins vegar ekki um það samkomulag, þannig að líkur verði ekki fyrir því, að brtt. yrði samþ., hefði ég talið, að það væri heppilegra, að hún kæmi ekki til atkv., einmitt með hliðsjón af því, að ég tel, að það sé sjálfsagt og Búnaðarbankinn hljóti að leggja á það áherzlu við stjórn Seðlabankans, að hann fái þau réttindi, sem hér er um að ræða. Og ég vil taka það skýrt fram, hvað sem verður um afgreiðslu málsins nú, að þá mun ég leggja á það alla áherzlu og ekki hika við það að gerast aðili síðar, ef ekki tekst um það samkomulag nú, að breyt. á seðlabankalöggjöfinni, sem beinlínis veiti Búnaðarbankanum þessi réttindi, ef ekki tekst að fá þau fram með samkomulagi á annan hátt.
Þetta taldi ég rétt að kæmi hér fram á þessu stigi málsins varðandi mína afstöðu. Ég tel það þakkarvert, að hv. flm. vill beita sér fyrir því, og það, sem hann hefur gert í því efni í bankastjórn Seðlabankans, og vænti stuðnings hans í því efni í framtíðinni, en tel að öðru leyti nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, áður en þó verður til atkv. gengið um þessa till., hvaða áhrif það kynni að hafa, ef svo færi, að hún yrði hér felld.
Varðandi einstök atriði frv. skal ég ekki fara mörgum orðum, eins og ég sagði í upphafi míns máls, þó að fróðlegt væri að ræða þau. Ég get vei tekið undir það, sem hér hefur komið fram, að það sé fyllilega ástæða til þess að athuga, hvort ekki sé hægt að koma störfum Framkvæmdabankans svo fyrir, að hægt sé að leggja hann niður. Framkvæmdabankinn hefur með höndum nú margvíslega skýrslugerð og athugun á þjóðarhag, sem honum er falin í lögum bankans. Það er jafnframt gert ráð fyrir því, að Framkvæmdabankinn sé ráðunautur ríkisstj. í fjárfestingarmálum, þannig að það eru ýmis verkefni, sem bankinn hefur, sem ef til vill eðli málsins samkvæmt er ekki eðlilegt að leggja beint undir Seðlabankann, þannig að það þarf að athugast, hvort hægt er þá að koma þeim málum fyrir á annan veg.
Það hefur verið samþ. hér á Alþ. till. um að sameina hagskýrslugerð þá, sem unnið er að á vegum ríkisins. Það er vitanlegt, að þeim verkefnum er skipt niður á marga aðila, og full ástæða til að halda, að þar sé um tvíverknað að ræða í ýmsum efnum og að að þeim málum verði ekki eins skipulega unnið og nýtist ekki eins vel starfskraftar og ef þetta væri meira kerfisbundið og unnið að þessum verkefnum meira á einum stað. Ég tel sjálfsagt, að framkvæmd verði sú ályktun Alþ., og kynni þá í sambandi við það að vera hægt að koma fyrir á annan hátt ýmsum þeim verkefnum, sem Framkvæmdabankinn hefur að þessu leyti. Það er því hiklaust persónuleg skoðun mín, að það sé rétt að athuga það, hvort ekki sé hægt að koma verkefnum þessa banka fyrir á þann hátt, að hægt sé að leggja hann niður. Vissulega auðveldast það mjög við það, að Seðlabankinn fær þá stöðu, sem gert er ráð fyrir einmitt í þessu frv., sem hér liggur fyrir.
Annað atriði í þessu frv. er einnig þess efnis, að ég skal fúslega játa það, að það er mikið álitamál, hvort það á að vera í lögum um Seðlabankann, þó að fjhn. eða meiri hl. hennar gerði ekki tili. um að breyta því. Það er meira teknískt atriði, sem við töldum ekki rétt að breyta, þar sem bankafróðir menn hafa um þetta fjallað og það hefur verið rætt við viðkomandi stofnanir og talið heppilegra að hafa þetta á þann veg. Það, sem ég á hér við, er ákvæðið um, að stofnlánadeild sjávarútvegsins skuli vera í Seðlabankanum. Raunverulega væri miklu eðlilegra, miðað við það, að Seðlabankinn á ekki að hafa almenn viðskipti með höndum, að slík deild væri í Landsbankanum. En ég held ekki, að bað mál hafi svo veigamikla þýðingu, á hvorum staðnum þetta er, að það sé ástæða til þess af þeim sökum að fara að gera á þessu breytingu og hagga þeirri skipan, sem samkomulag hefur orðið um að heppilegust væri í þessu efni, þannig að ekki sé ástæða til þess að gera á þessu breyt., þó að ég játi fúslega, að það hefði verið á margan hátt eðlilegra, að þessu hefði verið þannig fyrir komið.