23.03.1961
Efri deild: 80. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1264 í B-deild Alþingistíðinda. (1131)
180. mál, Seðlabanki Íslands
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. frsm. fjhn., 11. þm. Reykv., fyrir þær undirtektir undir þessar brtt., sem hann lét í ljós, og þó að hann tæki það fram, að hann gæti ekki talað fyrir nefndarinnar hönd beint, þá býst ég við, að það verði nú síður ágreiningur um þær brtt., sem hann mælti með. Ég skal því ekkert fjölyrða um þær. En þær voru 1. brtt., 5. brtt., b-liður, og 7. brtt. En það eru hinar, einkanlega tvær þeirra, sem mig langar til að fara aðeins örfáum orðum um.
Það má nú segja, að höfuðbrtt. í þessu sé 2. brtt., þar sem gert er ráð fyrir því, að Búnaðarbankinn ásamt hinum bönkunum tveimur verði löggiltur sem gjaldeyrisbanki. Það er náttúrlega rétt, sem hv. frsm, sagði, að það þarf sinn undirbúning hjá þeim banka, sem tekur að sér gjaldeyrisviðskipti. En ég lít nú svo á, að sú ástæða væri út af fyrir sig ekki til hindrunar því, að þessi samþykkt væri gerð hér, vegna þess að þarna er aðeins um rétt að ræða, og það gæti svo síðan dregizt eðlilegan tíma, að Búnaðarbankinn tæki til við þessi gjaldeyrisviðskipti, þó að hann fengi réttinn með þessum hætti. En með þessari brtt. treysti frsm. sér ekki að mæla, og liggur það þá fyrir, að um hana er ekki samkomulag, og býst ég þess vegna við því, að það séu tiltölulega litlar líkur til, eins og málið er vaxið, að hún nái fram að ganga að þessu sinni.
Hv. 6. þm. Norðurl. e. benti á það við 2. umr. málsins, að hugsazt gæti, að það hefði þau áhrif, ef þessi brtt. væri felld hér á Alþingi, að það yrði torveldara eftir en áður að sækja mál þetta á öðrum vettvangi. Mín meining hefur aðeins verið sú að reyna að greiða fyrir því að fá það fram, að Búnaðarbankinn fengi þessi réttindi, því að eins og ég tók fram við 2. umr., þá álít ég alla sanngirni og öll rök mæla með því, að hann fái gjaldeyrisréttindi eins og hinir bankarnir. En ég vil ekki á neinn hátt verða til þess að torvelda það, að bankinn fái þessi réttindi síðar. Ég hef hreyft þessu máli hér og sýnt minn vilja í því efni, en það liggur sem sagt fyrir, að það eru ekki líkur til þess, að það nái hér fram að ganga. Þegar málið er þannig vaxið, og mér skildist það vera eiginlega tilmæli frá hv. 6. þm. Norðurl. e., sem er fyrirsvarsmaður bankans, að málið yrði ekki látið ganga undir atkv. hér við þær aðstæður, þá vil ég fyrir mitt leyti verða við þeim tilmælum og mun ekki óska atkvgr. um þessa brtt.
Viðvíkjandi brtt. 3, 4 og 5, a-lið, þá vil ég aðeins enn þá benda á, að það er enginn vafi á því, að í þessum greinum merkir bankastjórn Seðlabankans framkvæmdastjórnina. Hins vegar er að mínu áliti orðið bankastjórn í ýmsum öðrum greinum laganna notað í hinni víðtækari merkingu. Þess vegna óttast ég um, að það verði síðar ágreiningur í ýmsum samböndum, í hvaða merkingu orðið bankastjórn er notað. Ég skal aðeins benda á þessa grein, sem ég var nú siðast að ræða um, 19. gr. Þar segir, að bankastjórn Seðlabankans geti heimilað öðrum bönkum gjaldeyrisviðskipti. Er þá þar, í þeirri gr., átt aðeins við framkvæmdastjórnina eða er átt við bankastjórnina í víðtækari merkingu? Ef ekki er breytt til í þessum gr., 24., 25. og 26., þá gæti verið nokkur hætta á því, að t.d. 19. gr. og fleiri greinar yrðu túlkaðar þannig, að þar væri líka átt aðeins við framkvæmdastjórnina. Þess vegna finnst mér þetta vera nokkurt athugunarefni.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða um hinar brtt. Þær liggja ljóst fyrir. Þó vil ég aðeins segja það um 8. brtt., að ég felli mig ekki við það að hafa ekki alveg skýr ákvæði í lögunum um heimildina til lifeyrissjóðs. Það er að vísu þarna í einu ákvæði talað um, að bankaráð ákveði laun og eftirlaun. En það er dálítið annað lífeyrir en eftirlaun. Bankastjórarnir greiða t.d. ekki í lífeyrissjóð, en það er gert ráð fyrir því, að þeir hafi eftirlaun. Ég get t.d. bent á, sem reikningar bankans bera með sér, að á líklega tveimur undangengnum árum hefur verið lögð til hliðar 11/2 milljón á hverju ári til þess að mæta tapi, sem orðið var á þessum lífeyrissjóði, og það er dálítið óeðlilegt, að bankastjórnin hafi ekki alveg örugga heimild á bak við sig til slíkra hluta, og alveg er víst um það, að það getur ekki gert nokkrum neinn miska, þó að samþ. sé þetta ákvæði, sem þarna er í 8. brtt., að í reglugerð skuli sett þessi fyrirmæli. Það er alveg auðsætt, að það getur engu spillt.