21.03.1961
Efri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (1150)

202. mál, raforkulög

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. þetta skýrir sig sjálft. Innihald þess er að hækka ábyrgðarheimild til handa fjmrh. úr 200 millj. í 350 millj. vegna tíu ára áætlunar um rafvæðingu landsins. Ábyrgðarheimild þeirri, sem nú er fyrir hendi, er eiginlega að verða lokið, en gert er ráð fyrir, að með því að hækka ábyrgðarheimildina um 150 millj. kr., muni það að óbreyttu verðlagi nægja til ársloka 1963 eða til að ljúka tíu ára áætluninni.

Frv. þetta þarf að verða að lögum á þessu þingi vegna ráðstafana, sem þarf að gera í sambandi við fjáröflun á þessu ári, og vænti ég því, að hv. fjhn., sem fær þetta mál væntanlega til meðferðar, greiði fyrir því, að svo megi verða.

Ég vil annars leggja til, að frv. verði vísað til fjhn. og 2. umr.