23.03.1961
Neðri deild: 80. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (1189)
213. mál, minnispeningur Jóns Sigurðssonar
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Með þessu frv. er farið fram á heimild til handa ríkisstj. til að láta gera gullpening í tilefni af 150 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní n.k. Ágóðanum af sölu þessa gullpenings er ætlað að verja til umbóta á fæðingarstað Jóns forseta, Rafnseyri við Arnarfjörð. Þar hafa nú að undanförnu verið gerðar ýmsar framkvæmdir, unnið að byggingu húss, sem á að vera bæði skóli, heimavistarskóli fyrir alla sveitahreppa Arnarfjarðar, og enn fremur gert ráð fyrir, að húsið megi nota sem gistihús að sumarlagi. Þá þarf einnig að gera þar prestssetur, íbúð fyrir bónda eða ráðsmann. Aðrar framkvæmdir fyrirhugaðar eru bygging kirkju eða kapellu i stað þeirrar hrörlegu kirkju, sem nú er þar. Þá er skógræktargirðing og lagfæring ýmiss konar til þess að gera þennan stað þannig úr garði, að til sóma verði. Alþingi hefur undanfarin ár veitt nokkurt fé til þessara framkvæmda, en til þess að þeim skili betur áfram og um leið til að létta nokkru af fjárlögum í því efni er gert ráð fyrir að gefa út þennan gullpening, sem ætti a.m.k. að verulegu leyti að geta staðið undir framkvæmdunum, þangað til lokið er. Það er gert ráð fyrir í frv., að þessi gullpeningur geti samkv. forsetaúrskurði verið gjaldgeng mynt, og enn fremur, að heimilað verði að selja hann með allt að 50% álagi eða yfirverði. Nú er það svo um slíka minnispeninga og myntir, að fjöldi safnenda víðs vegar um heim kaupir slíka peninga, og að áliti kunnugra manna í þessu efni má gera ráð fyrir, að nokkur hagnaður verði af gerð og sölu þessa penings.
Rafnseyri, sem áður fyrr hét Eyri við Arnarfjörð, er landnámsjörð. Þar nam land Án rauðfeldur og kona hans Grélöð, sem mun hafa ráðið, að þau hjón festu þar bú. Þau bjuggu áður annars staðar, í Dufansdal, en þar þótti Grélöðu illa ilmað úr jörðu, en á Rafnseyri eða á Eyri við Arnarfjörð þótti henni hins vegar hunangsilmur úr grasi. Síðar nokkru bjó þar Rafn Sveinbjarnarson, sá sem var merkastur og mestur læknir þeirra tíma hér á Íslandi og væntanlega um norðurálfu alla á þeirri tíð, og síðar hefur hann þótt manna maklegastur þess, að staðurinn Eyri væri við hann kenndur og bæri hans nafn, og hefur því Eyri við Arnarfjörð á síðari öldum borið heitið Rafnseyri. Á þessum stað fæddist Jón Sigurðsson, og er það að sjálfsögðu skylda Íslendinga að sýna þeim stað sóma og að gera hann sem bezt úr garði. Framkvæmdir þar vestra hafa undanfarin ár verið í höndum forseta Íslands og þingmanna Vestfjarða í samráði við ríkisstj. og þá embættismenn, sem um þessi mál fjalla, en það eru biskup, húsameistari ríkisins og fræðslumálastjóri.
Þetta frv. var lagt fyrir Ed. og var samþykkt þar einróma, og ég vænti þess, að það fái sömu viðtökur hér. Ég vil leggja til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjhn.