21.10.1960
Neðri deild: 8. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)
42. mál, fræðslumyndasafn ríkisins
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Árið 1937 voru sett lög um lestrarfélög og kennslukvikmyndir. Samkv. þeim skyldi innheimta skemmtanaskatt með 15% álagi og nota 2/3 hluta teknanna af þessari hækkun skemmtanaskattsins til þess að styrkja lestrarfélög, en 1/3 til þess að koma á fót kennslukvikmyndasafni. Kennslukvikmyndasafnið var þegar stofnað samkv. þessum lögum. Fé það, sem ætlað var til þarfa safnsins, reyndist hins vegar ekki mikið. 1944 voru lög þessi endurskoðuð, kennslukvikmyndasafninu ákveðinn aukinn hluti skemmtanaskattsins, og vænkaðist þá nokkuð hagur safnsins. Enn var lagaákvæðum um hlutdeild safnsins i skemmtanaskatti breytt 1951. Við endurskoðun þá, sem fram fór á löggjöfinni um skemmtanaskatt árið 1957, var hins vegar breytt til og hætt að ætla kennslukvikmyndasafninu fé af skemmtanaskattstekjum, en í stað þess tekin upp fjárveiting á fjárlögum til safnsins, 250 þús. kr., og hefur sú upphæð verið veitt á fjárlögum til safnsins síðan. Heildartekjur safnsins frá upphafi og til ársloka 1959 hafa numið um 3.7 millj. kr. Eru nú í safninu tæpar 1100 kvikmyndir, þar af tæpar 30 íslenzkar. Hins vegar er verulegur hluti myndanna orðinn svo slitinn, að brýna nauðsyn ber til þess að endurnýja þær.
Á síðari árum hefur kennslutækni tekið margs konar breytingum. Eru þær ekki sízt fólgnar í því, að kvikmyndir og þá ekki síður svonefndar myndræmur hafa verið teknar í æ ríkari mæli í þjónustu kennslunnar. Slíkar kennsluaðferðir stuðla að því, að námsefnið verður lifandi og aðlaðandi, og hefur reynslan sýnt, að á þennan hátt megi ná árangri, sem torvelt er að ná með öðru móti. Þá hafa tónbönd og hljómplötur á siðari árum einnig verið notuð í æ vaxandi mæli við kennslu, einkum við tungumálakennslu og tónlistarfræðslu. Hin vaxandi þýðing þessara nýju kennslutækja veldur því, að tími er kominn til að endurskoða hin 16 ára gömlu lagaákvæði um kennslukvikmyndasafnið, auka hlutverk þess frá því, sem nú er gert ráð fyrir, og fá því sérstaka stjórn, þar sem annars vegar eigi sæti fulltrúi þeirra aðila, sem fyrst og fremst nota safnið, þ.e. kennarasamtakanna, og hins vegar þeirra opinberu aðila, sem safnið þarf að hafa náið samstarf við, ef vel á að vera, þ.e. menntamálaráðs Íslands og útvarpsráðs auk menntmrn.
Frv. þetta var upphaflega samið af nefnd, sem skipuð var í júní 1955 af þáv. menntmrh., Bjarna Benediktssyni. Í n. áttu sæti Ásgeir Pétursson deildarstjóri í menntmrn., sem var formaður n., Einar Pálsson leikari og Pálmi Jósefsson skólastjóri. En auk þess tók Aðalsteinn Eiríksson námsstjóri þátt í störfum nefndarinnar. Að höfðu samráði við n. gerði ég á sínum tíma nokkrar breytingar á frv. hennar og bað menntmn. Ed. að flytja það á þinginu 1958–59. Frv. hlaut hins vegar ekki afgreiðslu og er því nú flutt öðru sinni, óbreytt að öðru leyti en því, að nú er heimilað að taka leigu fyrir myndir, sem safnið lánar. Helztu nýmæli frv. er þessi:
Í 1. gr. er kveðið svo á, að safninu, sem nefnt er Fræðslumyndasafn ríkisins, sé fengin sérstök 5 manna stjórn. 4 stjórnarmenn á að skipa samkv. till. Sambands ísl. barnakennara, Landssambands framhaldsskólakennara, menntamálaráðs Íslands og útvarpsráðs, en menntmrh, er ætlað að skipa formann safnstjórnar án tilnefningar. Nú er stjórn safnsins í höndum fræðslumálastjórnarinnar. Dagleg stjórn er í höndum sérstaks forstöðumanns, sem hefur einn starfsmann sér til aðstoðar. Verkefni safnsins er hins vegar orðið svo fjölþætt, að eðlilegt virðist, að því sé fengin sérstök stjórn, sem kennarasamtökin eigi aðild að, en auk þess menntamálaráð, vegna þess að samkv. núgildandi lögum um menntamálaráð og menningarsjóð er menningarsjóði ætlað að stuðla að gerð íslenzkra kvikmynda. Aðild útvarpsráðs að stjórn safnsins er eðlileg og getur orðið gagnleg, vegna þess að safnið þarf að eignast hljómbönd og hljómplötur, en ríkisútvarpið er sá aðili hérlendis, sem aðstöðu hefur til upptöku á hljómbönd og hljómplötur.
Í 2. gr. er hlutverk kennslukvikmyndasafnsins ákveðið mun víðtækara en gert var ráð fyrir í gildandi lögum. Höfuðverkefni safnsins á að sjálfsögðu að vera hér eftir sem hingað til að sjá skólum fyrir kennslukvikmyndum og enn fremur kyrrmyndum alls konar. Jafnframt er kveðið á um, að safnið láti gera eða stuðli að gerð íslenzkra fræðslumynda, og er ætlazt til, að safnið eignist sjálft hæfileg tæki til kvikmyndagerðar, bæði til afnota fyrir fasta starfsmenn safnsins og kvikmyndagerðarmenn, sem kynni að vera falin gerð einstakra kvikmynda. Þá er safninu enn fremur ætlað að vera til eflingar heilbrigðu félags- og skemmtanalífi í skólum og raunar ekki aðeins í skólum, heldur æskulýðsfélögum einnig. Þá er og gert ráð fyrir því, að safnið láni skólum tónbönd og hljómplötur í sama skyni og vegna tungumálanáms og tónlistarfræðslu. Safninu er enn fremur heimilað að hafa samvinnu við ýmsa aðila um gerð upplýsinga- og kynningarmynda, en ýmsir aðilar gætu reynzt hafa áhuga á því að taka fjárhagslegan þátt í gerð slíkra mynda, svo sem útflutningsfyrirtæki og ferðaskrifstofur. Hér er mikill hörgull á sérmenntuðum kvikmyndagerðarmönnum, og er því gert ráð fyrir heimild til þess að styrkja menn til náms í þeim fræðum.
Í 3. gr. er ákvæði um, að fjárveiting Alþ. skuli eigi vera lægri en sem svarar 4% af skemmtanaskatti umliðins árs. Er það sama hlutfall af skemmtanaskatti og kennslukvikmyndasafninu var síðast ætlað í lögum, og var núgildandi fjárveiting á sínum tíma miðuð við það. Aukist tekjur af skemmtanaskatti, er hins vegar eðlilegt, að fjárveiting til fræðslumyndasafnsins aukist sem því svarar.
Í 4. gr. er ákvæði um starfslið. Samþykkt frv. mundi ekki hafa í för með sér neina fjölgun starfsmanna frá því, sem nú er, en eins og ég gat um áðan, starfa nú tveir fastir menn við safnið. Fjölgun starfsmanna yrði háð fjárveitingum á fjárlögum og samþykki menntmrn.
Ég tel, að samþykkt þessa frv. mundi undirstrika þá vaxandi þýðingu, sem fræðslumyndir og tónbönd hafa við nútímakennslu, og stuðla að því, að fé það, sem nú er veitt í þessu skyni, kæmi að sem beztum notum. Fjárveitingarnar þyrfti að réttu lagi að auka og það meira að segja mjög verulega. Með þessu frv. er þó ekki lagt til, að svo verði gert, heldur verður það atriði að —koma til úrlausnar í sambandi við fjárlagaafgreiðslu. Hins vegar er það megintilgangur þessa frv. að stuðla að því, að fé það, sem nú er notað, nýtist sem bezt með því að efla á þessu sviði samvinnu kennarasamtaka, menntamálaráðs, útvarpsráðs og fræðslumálastjórnar. Með samþykkt þess yrði auk þess lagður nauðsynlegur lagagrundvöllur að eðlilegri útfærslu á verkefnum safnsins til samræmis við nútímakröfur.
Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.