25.03.1961
Efri deild: 84. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1300 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)

42. mál, fræðslumyndasafn ríkisins

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Á þskj. 663, sem nú var útbýtt, hef ég flutt brtt. við 3. gr. þessa frv. Í gr. er nú svo ákveðið, að Alþingi veiti í fjárl. ár hvert fé til rekstrar safnsins, og skal sú fjárveiting eigi vera lægri en sem svarar 4% af skemmtanaskatti umliðins árs. Till. er á þá leið, að í stað þess að miða við 4% af skemmtanaskatti, sé ákveðið, að fjárveitingin sé eigi lægri en 300 þús. kr. á ári.

Varðandi framlög til kennslukvikmynda eða fræðslumyndasafns ríkisins, þá var um hríð svo ákveðið í l., að til þess skyldi varið 4% af skemmtanaskattinum. Þetta ákvæði var fellt úr gildi, að ég ætla árið 1957, og siðan hefur verið veitt til þess ákveðin upphæð í fjárl.

Nú er með þessu ákvæði gert ráð fyrir, ekki að fræðslumyndasafnið fái hluta af skemmtanaskattinum, heldur beint úr ríkissjóði, en að miðað skuli við fjárhæð skemmtanaskattsins, 4% af honum. Mér virðist þetta óeðlilegt ákvæði m.a. vegna þess, að ef Alþingi þætti rétt að breyta, hækka eða lækka skemmtanaskattinn í heild, þá mundi þetta framlag til fræðslumyndasafns ríkisins af sjálfu sér breytast líka. Við skulum segja t.d., ef menn teldu, að rétt væri að hækka skemmtanaskattinn vegna félagsheimila, svo að dæmi sé nefnt, þá ætti af sjálfu sér af því að leiða hlutfallslega hækkun þessa framlags.

Ég tel eðlilegra, að í þessum lögum sé ákveðin upphæð. Í gildandi fjárl. eru veittar 250 þús. kr. til safnsins. Ef miðað væri við 4% af skemmtanaskatti s.l. árs, mundi sú upphæð verða í kringum 300 þús. Till. mín er því sú, að í stað þess, sem nú er í frv., verði ákveðið, að ríkissjóður leggi fram eigi lægri fjárhæð en 300 þús. kr. á ári, og tel þá skipan eðlilegri en þá, sem í frv. er. Fjárhagslega skiptir þetta litlu sem engu fyrir safnið.