27.03.1961
Neðri deild: 85. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

217. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum

Frsm. minni hl. (Helgi Bergs):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir og miðar að hækkun framlaga til landnáms, ræktunar og bygginga í sveitum, hefur verið til meðferðar í landbn., og ég skal strax taka það fram, að ég er sammála stefnu frv., það er aðeins nokkur skoðanamunur um það, hvað þessi framlagshækkun þurfi að vera mikil.

Það er greint frá því í grg. frv. t.d., að kostnaður við ræktun og girðingar hafi hækkað um 38%, en gert er ráð fyrir í þessu frv., að hækkunin á framlaginu til þessara hluta, þ.e. samkv. 5. gr. l. nr. 48/1957, verði 30%. En það eru fleiri ástæður til þess, að ég hef séð ástæðu til að flytja brtt. við þetta frv., sem ég flyt á þskj. 665, og þá fyrst og fremst sú, að þetta mál hefur fengið mjög einkennilega meðferð í þinginu, sem ég skal nú greina nokkru nánar.

Snemma á þessu þingi báru nokkrir hv. þm. Framsfl. fram frv., sem gekk í nákvæmlega sömu átt og þetta, var næstum því orðrétt eins og þetta, að öðru leyti en því, að upphæðirnar, sem þar var gert ráð fyrir, voru nokkru hærri. Það frv. var tekið til 1. umr. hér í þessari hv. d. þann 3. nóv. og vísað til landbn. Meiri hl. þeirrar n., fulltrúar stjórnarflokkanna í þeirri n., hefur ekki fengizt til þess að afgreiða frv., en minni hl. skilaði áliti í byrjun febrúar. Þegar liðið var hátt á fimmta mánuð, sem þetta frv. hafði legið fyrir þinginu, þá er útbýtt í Ed. frv. um nákvæmlega sama efni, næstum orðrétt eins, að öðru leyti en upphæðunum, eins og ég gat um, og það er það frv., sem hér er til umr. Eðlileg þingleg vinnubrögð hefðu verið þau að láta frv. hv. framsóknarmanna ganga eðlilegan gang og gera við það þær brtt., sem hæstv. ríkisstj. taldi nauðsynlegar. En með tilliti til þess, að það á á þennan hátt að komast hjá því að veita frv. framsóknarmanna afgreiðslu á þessu þingi, hefur mér þótt rétt að flytja þær tvær brtt., sem ég flyt á þskj. 665,

sem, ef samþykktar yrðu, mundu færa þetta frv. til sama horfs og hið fyrra.

Að brtt. mínum felldum mun ég þó að sjálfsögðu mæla með samþykkt frv., þar sem ég tel það til mikilla bóta.