10.10.1960
Sameinað þing: 0. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (13)
Landhelgismálið
Einar Olgeirsson:
Herra forseti: Ég vil leyfa mér að bera fram fsp. til hæstv. ríkisstjórnar. — Það hefur slegið óhug á almenning í landinu út af því, að hæstv. ríkisstj. skuli hafa tekið upp samninga við Breta. Bretarnir hafa verið brennimerktir af Alþingi sem landhelgisbrjótar, og þessir samningar fara raunverulega fram undir ofbeldishótunum af hálfu Breta, sem hafa hvað eftir annað látið það í veðri vaka, að þeir láti herskip sín fara hér inn fyrir okkar landhelgislínu, þannig að það er fyrir neðan okkar virðingu að vera að tala við þá um þessi mál.
Alþingi hefur, þótt það sé formlega reglugerð, sem heyrir undir Sérstakan ráðherra, með samþykktinni 5. maí 1959 tekið þetta mál í sínar hendur, lýst því þar yfir, að það telji Ísland eiga ótvíræðan rétt til 12 mílna fiskveiðilandhelgi og að ekki komi til mála minni fiskveiðilandhelgi en 12 mílur frá grunnlínum umhverfis landið.
Í utanrmn. hefur þetta mál verið rætt, og þar hafa verið gefnar yfirlýsingar af hálfu utanrrh., að ekkert verði aðhafzt í þessum málum nema í samráði við utanrmn. og Alþingi, og í lögunum um utanrmn., þingsköpunum, stendur, að utanrmn. skuli starfa milli þinga, og skal ráðuneytið ávallt bera undir hana utanríkismál, sem fyrir koma milli þinga, þannig að það er beint lögboðið að bera undir þá nefnd það, sem er að gerast, og þá samninga, sem standa yfir.
Fulltrúi Alþb. í utanrmn. hefur skrifað hæstv. ríkisstj., skrifað utanrrh, og farið fram á, að nefndinni væri skýrt frá, hvað væri að gerast í þessum efnum, og það hefur ekkert svar borizt.
Þetta eru vinnubrögð, sem eru ekki rétt, og þess vegna vildi ég nú fyrir hönd þingflokks Alþýðubandalagsins hér á þessum fyrsta þingfundi nota tækifærið til þess að snúa mér til hæstv. ríkisstj, og mælast til hess við hana, að hún gefi hér þá yfirlýsingu, að það verði ekkert aðhafzt í þessu máli nema í samráði við Alþingi. Það er sú ósk, sem ég ber hér fram fyrir hönd þingflokksins. Ég þykist vita og tek undir þá ósk, sem hv. 1. þm. Austf. kom fram með hér áðan, að það verði gefin sem fyrst skýrsla um þessi mál. En höfuðatriðið, sem ég veit að almenningur í landinu fyrst og fremst er að hugsa um þessa stundina, er, að það verði alveg ótvírætt, að ekkert verði gert í þessu máli, nema áður hafi verið haft samráð við Alþingi, þannig að alþm. gefist kostur á því, ef einhverjar til lögur væru í þessu máli, sem ríkisstj. þætti rétt að hugsa um, að ræða þær, áður en nokkurn skapaðan hlut er aðhafzt. Þetta er svo þýðingarmikið mál, — mál, sem öll þjóðin fylgist með af slíkum áhuga og slíkri einbeitni, að það er rétt að bregða út af þeirri venju, sem ella hefur verið hér á Alþ., og bera fram fsp. um þetta nú þegar í upphafi þings, á fyrsta degi þess. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að hæstv. forsrh. verði við þeirri ósk að gefa slíka yfir lýsingu, þannig að Alþingi viti alveg, hvar það stendur í málinu.