07.02.1961
Neðri deild: 57. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1352)
117. mál, ábúðarlög
Frsm. (Gunnar Gíslason):
Herra forseti. Landbn. þessarar hv. d. flytur á þskj. 291 tvær brtt., þó ekki stórvægilegar, við frv. til ábúðarlaga.
Fyrri brtt. er við 3. gr. frv. Í frv. er svo ráð fyrir gert, að sveitarstjórnir geti látið til sín taka, ef jarðeigandi, sem býr ekki sjálfur á jörðinni, hirðir ekki um að byggja hana, enda þótt völ sé á hæfum manni eða mönnum, sem vilja taka jörðina á leigu, og fyrir það, að jörðin fer úr ábúð, rýrnar hún að verðmæti og sveitarfélagið bíður við það hnekki, að jörðin sé ekki setin og á henni rekinn búskapur. Brtt. er fólgin í því að skylda sveitarstjórnirnar til þess að láta til sín taka í slíkum tilfellum.
Það hefur verið á það bent, að sveitarstjórnirnar veigri sér oft við því að skipta sér af, ef jarðareigandi vanrækir eða vill ekki halda jörð sinni í ábúð, vegna þess að slík afskipti kunni að vekja óvild og jafnvel deilur. Það er því tvímælalaust æskilegra að dómi landbn. fyrir sveitarstjórnirnar, að ákvæði um þetta atriði séu skýr og ákveðin. Þeim verður með engu móti álasað fyrir það með réttu, þótt þær leitist við að framfylgja því, sem fyrir þær er lagt í lögum og þeim er samkv. lagabókstaf boðið að gera.
Síðari brtt. er svo aftur við 18. gr. Í þeirri gr. frv. eru ákvæði um það, að landsdrottni sé skylt að bjóða leiguliða sínum ábýlisjörð hans til kaups, hafi landsdrottinn ekki séð sér fært að rækja þær skyldur, sem á hann eru lagðar samkv. frv., t.d. er varðar framlög hans til húsabóta á jörðinni, og hugsanlegt er, að landsdrottinn hafi reynt að komast hjá þessum skyldum sínum, jafnvel með það í huga, að jörðin fari í eyði. Brtt. miðar að því, að jafnvel þótt þessu væri nú þannig farið, þá geti leiguliði krafizt þess að fá jörðina keypta með þeim skilyrðum, sem i frv. eru fram sett.
Ég held, að ég þurfi ekki að segja meira um þessar brtt. Ég vænti þess, að hv. d. geti fallizt á þær og samþykkt frv. í heild þannig gert.
Það eru komnar hér fram brtt. frá hv. 1. þm. Vestf. Ég ætla ekkert að mæla á móti þessum brtt., a.m.k. ekki áður en hann gerir grein fyrir þeim. Það má segja, að þær miði nokkuð í sömu átt og brtt. landbn., gangi e.t.v. nokkuð lengra, en ég fyrir mitt leyti, — og ég held, að það sé álit landbn., — álít, að þegar til sölu jarðar kemur, jafnvel fyrir þá sök, að landsdrottinn hafi ekki rækt skyldur sínar, þá sé eðlilegra, að söluverðið verði ákveðið af gerð eða eftir mati úttektarmanna, eins og fram er tekið í frv., heldur en að verðið sé ákveðið í lögunum sjálfum, en það virðist mér vera það, sem fram kemur í brtt. hv. 1. þm. Vestf.