20.03.1961
Efri deild: 76. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)

182. mál, afhending Þingeyjar í Skjálfandafljóti

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls, þá gat ég þess, að ég teldi að ef Suður-Þingeyjarsýsla tæki Þingey til friðunar og verndunar, ætti sýslan að fá eyna ókeypis, miðað við það, að hún yrði héraðsgarður og að þær minjar, sem þar eru og eru nú ekki fullrannsakaðar, um þinghald að fornu, sem þar átti sér stað, yrðu friðaðar og þeim yrði haldið við og þær yrðu þá um leið gerðar þannig og þannig væri um þær gengið og þannig að þeim hlúð, að það lægi ljóst fyrir, hvers konar minjar þar eru. Ég óskaði eftir því, að hv. allshn. tæki það til athugunar, hvort hún gæti ekki mælt með því, að héraðið fengi þessa eyju ókeypis, en yrði þá bundið við það að framkvæma þá hugmynd, sem nú er uppi þar norður frá og liggur á bak við flutning frv. Ég gat þess, að aðstaðan þarna er þannig, að það mun verða talsvert kostnaðarsamt að gera þarna héraðsgarð, gera þangað veg, brúa og lagfæra land eyjarinnar, þannig að það geti orðið skemmtilegur staður. Ég vil minna á það, að ef þarna kæmi upp héraðsgarður, þá væri ekki ólíklegt, að margir kynnu að leggja þangað leið sína til að sjá þessar minjar, margir aðrir en héraðsbúar, og þess vegna má telja, að það sé í raun og veru verið að vinna þarna verk og kosta þarna til hluta, sem ríkið mætti vera þátttakandi í. Og í brtt. mínum er farið fram á það, að ríkið selji ekki þessa eyju, heldur láti hana ókeypis af hendi, en að eyjan að sjálfsögðu félli aftur til ríkisins, ef eitthvað kæmi fyrir, þannig að héraðið framkvæmdi ekki þá hugmynd, sem nú er þar uppi, því að það er svo sem engin ástæða fyrir héraðið að gerast eigandi að þessum bletti nema til þess að gera það fyrir hann, sem nú þegar hefur verið rætt, þó að enn hafi ekki verið gerð um það nein formleg áætlun. Ég tel líka, að rétt sé að taka fram, þegar ríkið annaðhvort selur eða lætur ókeypis þetta land sitt, að fornminjavörður, sem er þjónustumaður ríkisins einmitt um þessi og sambærileg efni, sé með í ráðum um það, hvernig farið verði með þetta land.

Ég tel ekki farið fram á mikið, miðað við það, sem á að gera, þó að ég leggi það til, að landið verði látið ókeypis. Ríkið hefur ekki mikið upp úr þessari eyju. Það hefur fengið fyrir hana fáeinar krónur í leigu, og það er ekki útlit fyrir, að þetta sé mikið verðmæti, sem þarna er af hendi látið. Hins vegar munar það héraðsbúana miklu meira að fá landið ókeypis heldur en ríkið að láta það af hendi, þar sem héraðið hyggst að ráðast í ærið mikinn tilkostnað vegna þessarar eignar, og þar er ekki heldur um sérstaklega mikið fjölmenni að ræða, sem Suður-Þingeyjarsýsla er. Ég vænti þess þess vegna, að hv. þm. Ed. geti fallizt á það að samþ. brtt. mína, og vona, að flutningsmenn frv. hafi ekkert við það að athuga. Mér heyrðist á hv. frsm., að hann væri brtt. fremur velviljaður.