23.03.1961
Neðri deild: 80. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1367 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)

182. mál, afhending Þingeyjar í Skjálfandafljóti

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Landbn. hefur gefið út mjög stutt nál. og leggur til, að frv. verði samþykkt óbreytt. En ég verð að játa það, að þegar ég fór að líta yfir fyrirsögn frv., rétt áður en ég fór hingað, þá sá ég, að þar stendur : „frv. til laga um sölu Þingeyjar í Skjálfandafljóti“, en við meðferð málsins í hv. Ed. breyttist það í það horf, að nú er gert ráð fyrir að afhenda Suður-Þingeyjarsýslu ókeypis þessa eign. Ég held því, að það færi betur á því, að í fyrirsögn frv. stæði: um afhendingu Þingeyjar í Skjálfandafljóti. Ég vil beina þessu til hæstv. forseta, hvort það er formlegt að koma þessu á framfæri núna eða hvort það ætti að biða til 3. umr. Ég held, að þetta færi betur. Að öðru leyti er n. sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.