16.02.1961
Efri deild: 61. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)

181. mál, heimild til að veita Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni stýrimannaskírteini

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Það er rétt, sem fram kom hjá siðasta ræðumanni, að það er ekki komin þessi umsögn, sem um er að ræða, en mér finnst, að það mætti eigi að síður koma fram við 3. umr. málsins, ef einhver athugasemd kæmi, sem ég geri þó ekki ráð fyrir.

Ég sé ekki annað, þar sem þetta er 2. umr., sem nú fer fram um málið í þessari deild, og ef kæmu fram breytingar við frv., þá væri hægt að koma þeim á framfæri við 3. umr. Tel ég því ástæðulaust að fresta málinu.