24.03.1961
Efri deild: 82. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (1474)
126. mál, matreiðslumenn
Jón Árnason:
Herra forseti. Í sambandi við mál þetta vildi ég leyfa mér að flytja brtt. við 1. gr. frv., en hún er varðandi lágmarkstölu rúmlesta á skipum, þar sem skylt er að hafa matsveina. Sérstaklega er miðað við það í till., að tekið sé tillit til stærðar þeirra vélbáta, sem að jafnaði stunda landróðra á vetrarvertíð. Í seinni tíð hefur rúmlestatala þessara vélbáta stækkað verulega frá því, sem áður var, og mun nú almennt, að 100 tonna vélbátar stundi landróðra á vetrarvertíð. Með tilliti til þessa vil ég leyfa mér að flytja þessa till., sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Brtt. við frv. til l. um bryta og matreiðslumenn á farskipum og fiskiskipum.
Við 1. gr. Í stað „50“ á tveimur stöðum í 2. málsgr. komi: 100“.
Að öðru leyti get ég verið samþykkur afgreiðslu þessa máls.