20.02.1961
Efri deild: 63. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1400 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

173. mál, sveitarstjórnarlög

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Á þskj. 395 flyt ég brtt. við 20. gr. þessa frv. Í gildandi lögum um sveitarstjórnarkosningar er svo fyrir mælt, að eigi sé skylt að kjósa varamenn í sveitarstjórn, þar sem kosning er óbundin, en það er að sjálfsögðu heimilt, og ef sú heimild er notuð, þá eru í lögunum fyrirmæli um það, að kosning varamanna hefjist, eftir að atkvæði aðalmanna hafa verið talin. Löng reynsla er fyrir því, að það er miklum annmörkum bundið að framkvæma kosningu varamanna í strjálbýlum og stórum sveitarfélögum, þar sem kjósendur þurfa að sækja á kjörstað um langan veg, samkvæmt þeirri reglu, sem um þetta gildir nú.

Í frv., sem nú liggur fyrir, er það gert að skyldu að kjósa varamenn í allar sveitarstjórnir. En engin ákvæði eru sett um það í frv., hvernig kosning varamanna, þar sem kosning er óbundin, skuli fara fram. Í brtt. minni á þskj. 395 er gert ráð fyrir því, að sú regla, sem nú er í lögum, haldist og að kosning geti farið fram samkvæmt henni, þar sem það þykir henta. En með tilliti til þeirrar reynslu, sem fengin er af framkvæmd þeirrar reglu, þá er jafnframt svo kveðið á í brtt., að séu varamenn ekki kosnir sérkosningu, eftir að atkvæði hafa verið talin við kosningu aðalmanna, þá er heimilt að láta kosninguna fara þannig fram, að kjósandinn ritar á kjörseðil allt að tvöfalt fleiri nöfn en tala þeirra manna er, sem kjósa á sem aðalmenn. Rétt kjörnir aðalmenn eru þeir, sem hljóta flest atkvæði. Þeir, sem hlotið hafa flest atkvæði næst á eftir aðalmönnum, eru rétt kjörnir varamenn í þeirri röð, sem atkvæðatölur segja til um.

Ég ætla, að með þeirri reglu, sem hér er sett fram, verði kosning varamanna gerð eins einföld, skýr og fyrirhafnarlítil og kostur er.