24.03.1961
Efri deild: 83. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1464 í B-deild Alþingistíðinda. (1559)
59. mál, launajöfnuður karla og kvenna
Björn Jónsson:
Herra forseti. Ég mun nú ekki lengja þessar umr., sem hér hafa orðið um þetta mál, enda er nú komið að því, að eðlilegt væri, að matarhlé væri tekið, og ég hef ekki heldur neina sérstaka tilhneigingu til þess að tefja þetta mál. Það er sýnilegt, að það á a.m.k. í aðalatriðum að ganga fram og þeir, sem valdið hafa hér í hv. þd., eru ákveðnir í því að beita því til þess að hindra það, að gerðar verði á frv. þær gagngerðu breytingar, sem nauðsynlegt væri á því að gera. Ég vil samt við þessa síðustu umr. málsins hér í hv. deild freista þess að sníða af því þann agnúa, sem ég lýsti hér í minni fyrri ræðu og tel vera höfuðágallann á þessu frv., sem sé þann, að það gerir ekki ráð fyrir því að létta neitt fyrir í þeim átökum og þeirri baráttu, sem nú er að fara fram í landinu um launajafnréttismálið, og ætlar konum í öllum starfsgreinum ekki að fá neina leiðréttingu sinna mála fyrr en í byrjun næsta árs og þá aðeins mjög lítilfjörlega, þannig að frv. mundi ekki hafa í för með sér, að létt væri á nokkurn hátt undir með þessari jafnréttiskröfu yfir þetta tímabil, næstu tvö árin a.m.k. En ég teldi, að málið horfði þó töluvert öðruvísi við, ef gert væri myndarlegt átak nú þegar í þessa átt, jafnvel þó að það tæki nokkur ár að koma á fullum launajöfnuði, t.d. ef hv. Alþingi vildi fallast á að lögfesta það, að nú skyldi ganga í gildi sem lög sú lágmarkskrafa, sem verkakvennafélögin í landinu öll hafa sett fram, um það, að þeirra hlutur verði nú á þessu ári 90% af launum karla. Ég vil leyfa mér að bera fram um þetta efni skriflega brtt. og sleppa þá öllum öðrum ágreiningi, sem um málið hefur orðið. Tillagan er skrifleg og of seint fram komin, en ég vil vænta þess, að hæstv. forseti leiti nauðsynlegra afbrigða fyrir því, að hún komi fram.