24.03.1961
Neðri deild: 83. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1566)

59. mál, launajöfnuður karla og kvenna

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Mér þykir hlýða, um leið og þetta mál er lagt fyrir þessa hv. d., að fylgja því úr hlaði með nokkrum orðum, en nú fyrir stundu síðan hefur það verið afgr. við 3. og síðustu umr. í hv. Ed.

Þetta frv. fjallar um launajöfnuð kvenna og karla, þ.e.a.s. eitt það réttindamál íslenzkra kvenna, sem nú ber hæst í réttindamálabaráttu þeirra. En í afstöðu sinni til réttindamála kvenna hafa Íslendingar verið tiltölulega frjálslyndari en ýmsir af nábúum þeirra meira að segja, eða Norðurlandabúarnir, og ég vil segja mjög frjálslyndir. Ég skal nefna um þetta nokkur dæmi.

Skömmu eftir að Alþingi var endurreist, eða á fyrsta þinginu eftir að það var endurreist, 1847, var strax borið fram frv. um jafnan erfðarétt fyrir konur sem karla, en það var þá hvergi í gildi á Norðurlöndum nema í Svíþjóð og hafði verið samþykkt þar stuttu áður. Þetta var samþykkt 1850 og hefur verið í gildi síðan, eins og menn vita. En það var þá, þegar samþykkt var, hvergi í gildi á Norðurlöndum nema í Svíþjóð og á Íslandi, en Svíþjóð hefur alla tíð verið forgangsland um þessi mál og látið sér annt um ýmis réttindamál kvenna. 1911 var konum veittur aðgangur að opinberum embættum á Íslandi og það nokkuð löngu áður en slíkt var gert nokkurs staðar á hinum Norðurlöndunum. Svíþjóð var einnig í þessu tilfelli mjög framarlega og kom næst á eftir, en þó ekki fyrr en tíu árum síðar eða 1921. Kosningarrétt og kjörgengi hlutu konur í þrem áföngum. Í fyrsta lagi takmarkaðan kosningarrétt í sveitarstjórnarmálum 1882, en jafnan rétt í þeim málum 1905, en kosningarrétt til Alþ. fengu þær 1915, 19. júní, eins og kunnugt er, því að sá dagur hefur síðan verið talinn þeirra sérstaki hátíðisdagur. Íslendingar voru einnig hér mjög framarlega. Þótt ekki væru þeir þar alveg fyrstir, þá voru þeir þó, vil ég segja, í fremstu röð.

Það mál, sem síðan hefur borið einna hæst í réttindabaráttu kvenna, eftir að þessi mál um kosningarrétt og kjörgengi voru leyst á þann hátt, sem ég lýsti, hafa verið launajafnréttismál þeirra. Fyrst þokar þar verulega í áttina 1954, þegar ákveðið er í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, að konur skuli hafa jafnan rétt til starfa og karlar og að laun skuli greidd þeim hin sömu og karlmönnum fyrir sömu vinnu, eins og það er orðað í lögunum. Næsti áfanginn í þessari baráttu er svo sá, að 1956 var á Alþ. samþykkt alþjóðasamþykkt, sem gerð hafði verið af Alþjóðavinnumálastofnuninni 5 árum áður, eða 1951, sem er nokkurs konar viljayfirlýsing um það, að ríkisstjórnir þeirra landa, sem aðild eiga að þessari samþykkt, skuli vinna að því, að fullu launajafnrétti sé komið á fyrir konur og karla. Eins og segir í 2. gr. samþykktarinnar, með leyfi hæstv. forseta, þá er þetta orðað svona:

„Með þeim ráðum, sem hæfa þeim aðferðum, sem hafðar eru við ákvörðun launataxta, skal hvert aðildarríki stuðla að því að tryggja það, að svo miklu leyti sem það samrýmist þessum aðferðum, að reglan um jöfn laun til karla og kvenna fyrir jafnverðmæt störf taki til alls starfsfólks. Þessari reglu skal komið til framkvæmda með: 1) landslögum eða reglugerðum, 2) ráðstöfunum, sem komið er á eða viðurkenndar eru með lögum, til ákvörðunar á launum, 3) heildarsamningum milli vinnuveitenda og verkamanna eða 4) þessum mismunandi aðferðum sameiginlega“.

Hér er sem sagt gert ráð fyrir því, að unnið verði að framgangi þessa máls með einhverjum af þessum fjórum aðferðum, sem þarna eru nefndar, og þó aðallega tveimur, þ.e.a.s. með lagasetningu eða samningum eða hvoru tveggja. Þessi aðild Íslands að alþjóðasamningnum var, eins og ég sagði, samþ. á árinu 1956, og þar með hafði Alþingi Íslendinga gefið yfirlýsingu um, að það og náttúrlega þá ríkisstj. skyldi vinna að framgangi þessa máls. En í raun og veru var samþykkt samþykktarinnar ekki annað á því stigi en viljayfirlýsing um það, sem Alþingi vildi að væri gert.

Nú hafa liðið ár og dagar, án þess að nokkuð hafi verið framkvæmt af því, sem í reglugerðinni segir, og málið stendur því af hálfu hins opinbera í dag á svipuðu eða sama stigi og það stóð fyrir fimm árum, þegar alþjóðasamþykktin var lögtekin hér á Alþingi. Það hefur að vísu, bæði af mér og öðrum, verið borið fram frv. um, að þessi viljayfirlýsing Alþingis 1956 yrði gerð að veruleika, en það hefur aldrei náð fram að ganga. Gildir einu, hvaða ríkisstjórnir hafa setið, andstaðan á móti samþykkt frv. eða m.ö.o. andstaðan gegn því, að viljayfirlýsing alþjóðasamþykktarinnar yrði gerð að veruleika, hefur verið svo mikil, að enginn jákvæður árangur hefur náðst. Og þar sem liðin eru nú fimm ár, síðan þessi alþjóðasamþykkt var lögtekin hér á Alþingi, er nú með þessu frv., sem hér liggur fyrir, gerð enn ein tilraun til þess að hrinda þessu máli í framkvæmd.

Í því frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir því, að á árunum 1962–67 skuli laun kvenna hækka til jafns við laun karla fyrir sömu störf í eftirfarandi starfsgreinum: almennri verkakvennavinnu, í verksmiðjuvinnu og í verzlunar- og skrifstofuvinnu. Hér er sporið stigið alveg eins og gert er ráð fyrir í alþjóðasamþykktinni, en það er aðeins gefinn lengri tími en áður hefur verið ætlaður til framkvæmdanna. Í staðinn fyrir að gera þetta allt í einu, er hér lagt til, að meginreglunni verði slegið fastri og að alþjóðasamþykktin komi til framkvæmda, en að hún komi til framkvæmda í jöfnum skrefum á þeim árum, sem frv. gerir ráð fyrir. Þó er rétt að taka fram, að frv. gerir einnig ráð fyrir því, að ef einhver stéttarfélög, sem hér eiga hlut að máli, komist lengra í samningum en lögin geri ráð fyrir, þá skerði þessi lög ekki á neinn hátt rétt stéttarfélaganna til þess að semja um, að þetta gerist á skemmri tíma eða með meiri hraða en frv. gerir ráð fyrir. Ég tel, að með þessu sé stórt spor stigið í þá átt, að nú verði ákveðið í eitt skipti fyrir öll, að þetta skuli gert, en aðferðin aðeins höfð þannig, að meiri líkur eru til þess, að samkomulag geti náðst um að fá þetta réttindaákvæði samþykkt, heldur en áður var. Ég hef ástæðu til þess að ætla, að andstaðan gegn þessum ráðstöfunum áður hafi helzt verið talin sú, að þetta þætti of stórt stökk í einu, og þess vegna hafi ekki fengizt fyrir. því neinn meiri hluti á Alþingi. Hins vegar hefur nú það skeð, að tekizt hefur samkomulag á milli Sjálfstfl. og Alþfl. um að hrinda málinu í framkvæmd og lögfesta þetta frv. á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í sjálfu frv.

Ég er ekki í vafa um, að þetta er mikið og stórt spor í launajafnréttismáli kvenna, og m.a. hefur það sýnt sig, að sá flokkurinn, sem undanfarin ár hefur staðið fastast á móti afgreiðslu málsins, hefur snúizt svo hart við framkomu og væntanlega afgreiðslu þessa frv., að honum þykir nú ekki nóg að gert, heldur vill hann láta lögfesta þetta þegar í stað, enda þótt ekkert hafi mátt gera áður. Og að ekkert hafi mátt gera áður, sannar það bezt, að síðan alþjóðasamþykktin var lögleidd hér á Alþ., hefur ekki tekizt að fá málinu þokað einn þumlung áfram á Alþ., og það lítið þokazt hefur, hefur náðst með samtökum verkakvennafélaganna sjálfra, sem þó er ekki meira en að ég ætla um 2% af 24, sem þessi mismunur var um það bil, þegar jafnlaunasamþykktin gekk í gildi. Hér er reynd ný leið, og ég held, að þetta sé farsæl leið, og mér þykir gott að hafa fylgd þeirra manna við framgang þessa máls, sem jafnan áður hafa verið taldir fremstir í réttindabaráttu kvenna, þ. e. Svíanna. Í Svíþjóð hefur náðst um það samkomulag, að ég ætla, en ekki með lögum, heldur með samkomulagi á milli alþýðusambandsins sænska og vinnuveitendafélagsins sænska, að þetta launajafnrétti verði konum veitt þar í landi á fimm árum. Erum við þess vegna alveg í sama bát og þeir. Maður skyldi þó ætla, að Svíar, þessi ríka þjóð, sem hefur mikla möguleika, gætu farið hraðar þarna í sakirnar en við, en þeim hefur þótt henta, og þeir hafa komið sér saman um það þar, alþýðusamband þeirra Svíanna og vinnuveitendafélagið þar, að gera þetta í áföngum, eins og við ætlum að gera, á fimm árum.

Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta mál. Ég tel, að með þessu frv. sé mjög merkum áfanga náð og ég vil segja lokasigri náð í þessari baráttu. Þó að framkvæmdin komi ekki öll í einu, þá held ég líka, að framkvæmdin verði farsælli á þennan hátt heldur en þó að allur launamismunurinn væri jafnaður út í einu, sem kynni kannske að kosta erfiðleika og jafnvel baráttu við vinnuveitendasamtökin í landinu, sem ég ætla að ekki þurfi að koma til, þó að þetta frv. verði samþ.

Ég tel sjálfsagt, herra forseti, að þessu máli verði vísað til n. og þá að eðlilegum hætti til heilbr.- og félmn. En þar sem mér er kunnugt um, að hún hefur haft nokkurt samstarf við efrideildarnefndina, vildi ég mega vænta þess, að hún gæti afgreitt málið fljótlega, enda naumur tími til þingloka.