28.03.1961
Sameinað þing: 60. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)

Almennar stjórnmálaumræður

Helgi Bergs:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Seinustu tvo áratugina a.m.k. hafa framleiðsluverðmæti okkar Íslendinga aukizt mjög ört, og um furðujafna framþróun í þessu efni hefur verið að ræða allt þetta tímabil. Að vísu virðist nokkur stöðnun hafa átt sér stað, skömmu eftir að stríðinu lauk, en það á fyrst og fremst rót sína að rekja til versnandi viðskiptakjara út á við, en ekki til minnkandi framleiðslu í landinu.

Þegar framleiðsluskýrslur okkar eru bornar saman við tilsvarandi skýrslur annarra, kemur í ljós, að við erum meðal þeirra þjóða, sem mestum árangri hafa náð í þeirri viðleitni að auka framleiðsluverðmætin á þessu tímabili. Í öðru hefti Fjármálatíðinda, tímarits Landsbankans, 1960, er frá því skýrt, að framleiðsluaukningin hér á landi hafi verið að meðaltali 6.3% á ári á tímabilinu 1954–59. Af þeim löndum, sem við höfum helzt spurnir af og berum okkur gjarnast saman við, hefur ekkert nema Vestur-Þýzkaland náð jafnmiklum árangri í þessu efni, og hafa þó verið taldar mjög örar framfarir hjá flestum þessara þjóða.

En þegar hér var komið sögu, var mynduð ný ríkisstj. í landinu. Hún ákvað að taka upp nýja stefnu í efnahagsmálum. Hún gerði þær ráðstafanir, sem drógu mjög úr kaupgetu almennings, og tók upp fjármálastjórn, sem þrengdi svo að atvinnuvegunum, að framleiðslan hlaut að dragast verulega saman. Þær ástæður voru færðar fyrir nauðsyn þessarar stefnubreytingar, að íslenzka þjóðin lifði um efni fram, hún eyddi meira en hún aflaði, og við svo búið mætti ekki standa. En þetta voru falsrök. Íslenzka þjóðin eyddi ekki meira en hún aflaði. Hún lagði þvert á móti meira fyrir, geymdi stærri hluta framleiðsluverðmæta sinna til framtíðarinnar en flestar, ef ekki allar þjóðir aðrar. Samkvæmt heimild í Fjármálatíðindum var heildarframleiðsla okkar á markaðsverði á árunum 1953–57 19140 millj. kr., en fjármunamyndunin, fjárfestingin, var á sama tíma 5773 millj. kr. eða 30.2% af framleiðsluverðmætinu. Yfir 30% af öllum framleiðsluverðmætum þjóðarinnar voru þannig fjármunir, sem geymdir voru til framtíðarinnar.

Þegar á þetta var bent, var sagt, að við hefðum lifað á erlendu lánsfé, og það, sem gert hafi verið, hafi verið gert upp á krít. En í þessu var ekki meiri sannleikur en það, að á þessu sama árabili, þegar fjármunamyndunin í landinu nam 5773 millj. kr., þá námu efnahagsaðstoð og erlend lán samtals 598 millj. kr., eða rúmlega 10%. 5175 millj. kr., eða nær 90% af fjármunamynduninni, varð til fyrir innlendan sparnað.

Á þessu tímabili lagði þjóðin þannig fyrir yfir 1000 millj. kr. að meðaltali á ári hverju. Þetta er ekki að lifa um efni fram. Þetta er ekki að eyða meira en aflast, enda er það alveg ljóst, að efnahagsráðstafanir ríkisstj. voru af allt öðrum toga spunnar. Þær voru liður í hinni sífelldu baráttu um tekjuskiptinguna í landinu, um dreifingu afrakstursins af framleiðslu þjóðarinnar, og þær miðuðu að því að rýra hlut hinna vinnandi handa í hinum sameiginlega sjóði.

Þetta var mikið óhappaverk og þeim mun alvarlegra sem ráðstafanirnar voru af því tagi, að þær drógu úr framleiðslunni, þær minnkuðu þann sjóð, sem til skipta er. Auðvitað er þetta hvorki í samræmi við vilja né hagsmuni þjóðarinnar í heild, og þess verður nú æ meir vart, að það er vaxandi krafa hjá þjóðinni, að stéttir og flokkar leggist nú á eitt til að vinna að því, sem er allri þjóðinni sameiginlegt hagsmunamál, að stórauka framleiðsluverðmæti þjóðarbúsins.

Það var í samræmi við þessar háværu kröfur almennings, þegar miðstjórn Framsfl. reið á vaðið og samþ. á aðalfundi sínum í s.l. mánuði, að flokkurinn skuli beita sér fyrir því, að gerð verði myndarleg áætlun um aukningu þjóðarframleiðslunnar, og skuli að því stefnt að tvöfalda framleiðsluna á næstu tíu árum. En það svarar til þess, að sú meðalaukning, sem ég gat um áðan að hefur verið 6.3%, hækki upp í rúmlega 7%, í stað þess að við látum framleiðsluna fara minnkandi, eins og hlyti að verða afleiðingin, ef núv. stjórnarstefna héldi áfram. Það var einnig í samræmi við þetta, að 8 þm. Framsfl. fluttu snemma á þessu þingi till. um löggjöf um framleiðslu- og framkvæmdaáætlun. En stjórnarliðið sýndi málinu engan áhuga og hefur nú endanlega jarðað þessa till.

Í þessum atriðum, sem ég hef hér lýst, er fólginn sá reginmunur, sem er á lömunarstefnu stjórnarflokkanna, og þeirri stefnu, sem framsóknarmenn hafa farið og vilja fara.

Tæknileg framþróun er svo ör um þessar mundir, að sumir tala jafnvel um nýja iðnbyltingu, iðnbyltingu hinnar sjálfvirku tækni. En hvað sem um það er, þá er það víst, að þjóðirnar búa sig nú undir mikið framfaraskeið. Forusturíki vestrænna þjóða, Bandaríkin, sem um undanfarin átta ár hefur búið við íhaldsstefnu og litla framleiðsluaukningu, varpar nú þeirri stefnu, sem raunar er fyrirmynd viðreisnarinnar hér, fyrir borð og snýr til nýrrar framsóknar.

Það fer varla fram hjá neinum, að nú eru tímamót í atvinnumálum okkar, sem m.a. eru fólgin í því, að taka verður upp nýjar aðferðir til viðbótar þeim, sem bezt hafa dugað fram að þessu, til síaukinnar framleiðslu. Landbúnaður og sjávarútvegur, sem til skamms tíma hafa fyrst og fremst sótt þau verðmæti, sem náttúran gefur, í skaut hennar, munu í vaxandi mæli taka upp vinnubrögð verðmætasköpunar. Sjávarútvegurinn hefur fram til þessa aukið framleiðslu sína mest með því að draga meiri og meiri afla úr sjó. En nú er ljóst, að leggja verður áherzluna á að auka verðmæti aflans með auknum og fjölbreyttari fiskiðnaði. Þekking okkar á háttum þýðingarmestu fiskstofnanna við strendur landsins er grátlega lítil, og það er á því hin brýnasta nauðsyn, að undinn verði bráður bugur að því að efla svo fiskirannsóknir, að við getum öðlazt þá þekkingu á þessum undirstöðuatriðum efnahagslífs okkar, sem er skilyrði fyrir skynsamlegu mati á framtíðarmöguleikum.

En sú þekking, sem þegar er fyrir hendi, bendir í þá átt, að aukningu aflamagnsins, hvort sem er af þorski eða síld, séu töluverð takmörk sett. Hitt er alveg ljóst og hafið yfir allan vafa, að stórauka má framleiðsluverðmætin úr þeim afla, sem landað er. Um það er síldin gleggsta dæmið. Á árunum 1955–59 var aðeins rúmlega þriðjungur síldaraflans saltaður, en yfir helmingur hans fór í bræðslu, en framleiðsluverðmæti bræðslusíldar eru innan við fjórðung af framleiðsluverðmæti þeirrar síldar, sem söltuð er eða verkuð á annan álíka verðmætan hátt. Ef helmingur þeirrar síldar, sem á þessu tímabili var bræddur, hefði verið saltaður, hefðu framleiðsluverðmætin af þeim sökum aukizt um nær 800 millj. kr., ef miðað er við verðlag ársins 1960. Kæmum við svo þar að auki upp iðnaði, sem legði niður síld í dósir, og það verðum við að gera sem allra fyrst, þá sést bezt, um hverja möguleika til framleiðsluaukningar er hér að ræða.

En framþróunin í þessum efnum er því miður ekki hagstæð. Árið 1959 veiddist meiri síld en á nokkru ári áður, að undanskildum fáum árum rétt eftir 1940. Yfirgnæfandi hluti þessa afla var bræddur. Um þetta segja Fjármálatíðindi, 2. hefti 1960, í yfirliti um framleiðsluverðmæti sjávarútvegsins, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er einkum eftirtektarvert, að raunveruleg aukning á verðmæti framleiðslunnar samkvæmt yfirlitinu reyndist aðeins 1.5%, þrátt fyrir það, að aukning aflamagnsins varð 11.8%. Orsakirnar eru þær, að framleiðsla verðmætustu afurðanna, freðfisks og saltsíldar, minnkaði verulega á árinu, en framleiðsla verðminni afurðanna, einkum síldarmjöls og síldarlýsis, jókst mjög mikið. Mismunur á verði þessara afurða er svo mikill, að mikið vantar á, að framleiðsluaukning hinna verðminni afurða vegi þar upp á móti.“

Hér lýkur tilvitnun í Fjármálatíðindi. Aflamagnið jókst þannig um nærri 12%, en verðmætin aðeins um 1½%, ekki vegna verðfalls, því að bæði árin eru á sama verðlagi, heldur af öfugþróun hjá okkur sjálfum. Þó að endanlegar tölur liggi ekki fyrir um árið 1960, er því miður víst, að þessi öfugþróun hefur haldið áfram þá, enda ýta efnahagsráðstafanir ríkisstj. að ýmsu leyti undir hana.

En við þessu verður að spyrna fótum, og stefna verður að því að auka framleiðsluverðmætin miklu meira en aflamagnið, og á það verður að leggja hina ríkustu áherzlu.

Framleiðsluaukning landbúnaðarins hefur verið mjög mikil að undanförnu. Fram til þessa hefur hún þó ekki nema að nokkru leyti byggzt á ræktun. Að nokkru leyti hefur hún byggzt á aukinni beit á haga og afrétti. Nú gera kunnugir ráð fyrir því, að ofbeitt fari að verða innan skamms víða um land, ef ekki eru gerðar ráðstafanir til þess að auka gróður haglendisins með áburði eða sáningu, en tilraunir í þá átt hafa gefið hinn ánægjulegasta árangur, sem sjálfsagt er að fylgja vel eftir.

Kornræktin og sandgræðslan eru nú meðal merkustu mála landbúnaðarins, og þó að stjórnarflokkarnir hafi sett fótinn fyrir allar till. framsóknarmanna um þessi efni á þessu þingi, þá verður ekki í kringum þá staðreynd komizt, að hér eftir verður ræktun í einhverju formi að vera grundvöllur nær allrar aukningar á landbúnaðarframleiðslunni. Öld hins algera ræktunarbúskapar er hafin.

Jafnframt má gera ráð fyrir því, að þróunin stefni í þá átt, að fóðuröflunin færist að nokkru leyti í hendur framleiðslustöðva og aukin þjónusta við landbúnaðinn á ýmsum sviðum skapi honum enn bætt skilyrði til mjög verulegrar framleiðsluaukningar, þ. á m. á ýmsum sviðum, sem fram til þessa hefur ekki gefizt tóm til þess að sinna sem skyldi.

Það er enn fremur nauðsynlegt að halda áfram að byggja upp í landinu iðnað, sem hefur framleiðslu landbúnaðarins að hráefni. Það hefur margt verið vel gert í þessum efnum nú þegar. Ullariðnaðurinn er kominn á mjög góðan rekspöl, og er þegar farið að flytja út talsvert af iðnaðarvörum úr íslenzkri ull. Vandséð er líka, hvað því er til fyrirstöðu, að skinnaiðnaðurinn komist brátt á sama stig, og auðvitað er það ófært til frambúðar að flytja út meginið af gæruframleiðslu landsmanna saltað sem hráefni fyrir erlendan iðnað. Sá iðnaður getur farið fram og á að fara fram í landinu sjálfu.

Ýmis annar landbúnaðariðnaður er kominn á nokkurn rekspöl, en á þessum sviðum öllum bíða fjölmörg verkefni úrlausnar á næstu árum.

Miklu fleiri Íslendingar hafa nú atvinnu sína af iðnaði en nokkrum atvinnuvegi öðrum. Landbúnaður og sjávarútvegur framleiða matvæli, og þau eru auðvitað hin fyrsta nauðsyn hverjum manni. En eftir því sem lífskjörin batna, verða matvælin hlutfallslega minni þáttur í þörfum mannsins. Þarfirnar verða æ margþættari og síminnkandi hluti heildarkaupgetunnar kemur fram sem eftirspurn eftir matvælum. Af þessu leiðir aftur það, að síminnkandi hluta af vinnuafli þjóðarinnar þarf til þess að afla henni matar. Iðnaðurinn, þ. á m. auðvitað sjávarvöru- og landbúnaðarvöruiðnaður, verður því að taka við þeim fjölda, sem árlega bætist í hóp starfandi manna á landi hér. Íslenzkur neyzluvöruiðnaður er þegar orðinn mjög umfangsmikill, en skýrslur um framleiðslu hans og framþróun eru af nokkuð skornum skammti. Síðan 1956 hefur þó starfað nefnd að því verkefni að rannsaka þjóðhagslegt gildi þessa iðnaðar, og hefur hún nýlega sent frá sér mikla skýrslu byggða á rannsóknum, sem hún gerði 1957 og er sjór af fróðleik um margt, sem að þessum iðnaði lýtur. Enginn tími er til þess hér að rekja niðurstöður n. í einstökum atriðum, en ég vek athygli á þeim, því að þær eru mjög merkar. Ljóst er af þeim, að mikill hluti þessa iðnaðar hefur skotið sterkum rótum í þjóðfélaginu og er því hinn hagkvæmasti í hvívetna. Hlýtur niðurstaðan að styrkja mjög trú þeirra, sem bjartsýnastir eru um framtíð íslenzks neyzluvöruiðnaðar.

Náttúruauðæfi landsins, sérstaklega hverirnir og fossarnir, skapa okkur mikla möguleika til að byggja upp iðnað í landinu. Áburðarverksmiðjan og sementsverksmiðjan eru fyrstu sporin á þeirri braut. Þessi fyrirtæki skapa okkur ekki aðeins mikil framleiðsluverðmæti sjálf, heldur opna þau einnig leið fyrir iðnaðarþróun í ýmsum greinum efnaiðnaðar, sem gefa verður fullan gaum. Það væri verðugt verkefni fyrir duglega kunnáttumenn að kanna til hlítar þá möguleika, sem þessar verksmiðjur skapa fyrir iðnað í ýmsum skyldum greinum, og ég á þá ekki fyrst og fremst við það, að þessar verksmiðjur þenji sig út og víkki starfssvið sitt, heldur hitt, að þær gefi öðrum fyrirtækjum kost á að kaupa hráefnavörur, sem þær framleiða, og ýti þannig undir framtak og hugkvæmni annarra manna. En áburðar- og sementsverksmiðjurnar eru bara byrjunin á þeirri þróun, sem vafalaust á fyrr en varir eftir að leiða til nýtingar íslenzkra náttúruauðlinda.

Oft er rætt um, að hér þurfi að koma upp stóriðnaði. En gallinn á því orði er sá, að margir gera sér alls ekki ljóst, hvað þeir meina, þegar þeir nota þetta orð. Það, sem oftast er meint, þegar talað er um stóriðnað, er iðnaður, þar sem orkan og vélarnar vinna aðalhlutverkið. eins og t.d. í alúminíumvinnslu, en þar sem framlag vinnuaflsins til framleiðslunnar er aðeins brot af framleiðslukostnaðinum í samanburði við framlag fjármunanna kapítalsins. Það leikur enn á því mikill vafi, hvort slíkur fjármagnsfrekur iðnaður yrði farsælasta leiðin til nýtingar náttúruauðæfa okkar, enda eru þær rannsóknir og athuganir, sem eru nauðsynleg forsenda rökstudds álits um þetta efni, enn á byrjunarstigi. Í þessu efni hefur að vísu verið unnið gott starf, en þeir menn, sem því sinna, standa fáliðaðir gagnvart stórkostlegum verkefnum. Það má í því sambandi minna á, að hæstv. raforkumrh. upplýsti það hér á hv. Alþingi í vetur, að þær rannsóknir einar, sem nauðsynlegar væru, áður en gerð yrði heildaráætlun um virkjanir á vatnasvæði Hvítár og Þjórsár, mundu kosta 40 millj. kr. Sýnir þetta ljóslega, hversu mikla áherzlu er nauðsynlegt að leggja á rannsóknarverkefnin. Að þeim verður að vinna af öllu afli, því að þar eru því miður of mörg verk enn óunnin, og á þann hátt einan getum við verið undir það búnir að hagnýta skynsamlega okkar miklu möguleika á þessum sviðum.

Það er einn liður í sköpun framleiðsluverðmætanna, og ekki sá veigaminnsti, að afla markaða fyrir afurðirnar og þá sérstaklega útflutningsafurðirnar. Sú ríkisstj., sem nú situr, kennir stefnu sína við frelsi. Það frelsi er nú að vísu af svo kyndugri tegund, að það verður ekki nefnt nema í gæsalöppum, enda er það svo, að þrátt fyrir allt frelsisblaðrið er útflutningsverzlunin reyrð fastari fjötrum en nokkru sinni áður. Það er vissulega illa farið. Það er hugkvæmni og kjarkur einstaklinganna sem slíkra og í frjálsum félagssamtökum þeirra, sem hefur skilað okkur lengst áleiðis í þeirri framfarasókn, sem hér hefur verið háð, og við höfum sízt efni á því, að þessir eiginleikar fái ekki einnig að njóta sín í sambandi við útflutningsverzlunina.

Einmitt um þessar mundir eru þeir atburðir að gerast í nágrannalöndum okkar, sem reynzt geta örlagaríkir í markaðsmálunum í framtíðinni. Ég á þar við stofnun markaðsbandalaganna tveggja í Vestur-Evrópu. Ef við stæðum utan við þessi bandalög, mundi það stórlega torvelda okkur að hagnýta markaði þessara landa fyrir útflutningsafurðir okkar, og ef við gengjum í annað hvort þeirra, yrðu þær atvinnugreinar, sem framleiða fyrir innlendan markað, fyrir hinni alvarlegustu samkeppni hér heima fyrir. Það er fyllilega kominn tími til þess, að við gerum okkur ljóst, hvar við stöndum í þessu máli. Það verður að krefjast þess af ríkisstj., sem ein hefur aðstöðu til þess að fylgjast fyllilega með gangi þessara mála, að hún geri grein fyrir þeim áhrifum, sem þessar breytingar eru líklegar til þess að hafa á útflutningsmál okkar, og skapi þannig grundvöll fyrir heilbrigðum, opinberum umræðum um þetta umfangsmikla og afdrifaríka vandamál.

Það er sjálfsagt að geta þess, sem gert er. Hæstv. viðskmrh. hefur nokkrum sinnum rætt þessi mál í blöðum og útvarpi og þá á þann veg, að ástæða er til þess að ætla, að hann láti fylgjast vel með því, sem er að gerast erlendis í þessum efnum. En það, sem skortir, eru grg. um það, hvaða áhrif þessir atburðir hafi fyrir okkur sérstaklega, og umr. um það, á hvern veg við getum helzt notið góðs af eða a.m.k. komizt hjá skakkaföllum af þessum breytingum.

Þjóðin hefur mátt þola það að undanförnu, að ákvarðanir í stærstu málum hennar séu teknar á klíkufundum stjórnarflokkanna og dembt yfir Alþingi og þjóðina sem fullgerðum hlutum. Þetta er algerlega óviðunandi. Þjóðin verður sjálf að fá tækifæri til heilbrigðrar skoðanamótunar. Það eitt getur tryggt farsælar niðurstöður. En skilningur hv. stjórnarliða á þessu undirstöðuatriði heilbrigðs lýðræðisstjórnarfars kom glögglega í ljós í ræðum hv. þm. Matthíasar Á. Mathiesens og Birgis Finnssonar hér í gærkvöld og raunar hjá hæstv. dómsmrh. líka. Birgir Finnsson reiknaði meira að segja út í krónum og aurum, hvað málfrelsi íslenzkra alþm. kostaði um klukkutímann, eftir að fleygt hefur verið framan í þá niðurstöðum klíkufundanna. Þetta lofar engu góðu.

Góðir hlustendur. Í upphafi þessarar aldar bjuggu hér á landi innan við 80 þús. manns. Það fólk tók við lítt ræktuðu landi, sárafábreyttum atvinnutækjum og svo til engum varanlegum mannvirkjum. Af mikilli elju og fullkomnu æðruleysi tók þessi fámenni hópur að byggja upp nútímaþjóðfélag, rækta land sitt, byggja yfir sig varanleg hús og afla sér fullkominna atvinnutækja. Þessi mikla framfarasókn gekk misjafnlega vel á ýmsum tímum, en á henni varð aldrei lát. Smátt og smátt bar fórnfýsi og óbilandi trú þjóðarinnar árangur, og um miðja öldina var málum okkar þannig komið, að lífskjör okkar og lifnaðarhættir voru komnir á svipað stig og bezt gerist með öðrum þjóðum.

En íslenzku þjóðinni var það sízt að skapi að leggja þá upp laupana og láta við það sitja. Aðrar þjóðir voru þá í örri efnahagslegri framþróun, og Íslendingar vildu ekki dragast aftur úr. Þeir eygðu líka í landi sínu óþrjótandi verkefni, sem til framfara horfðu, og þess vegna var haldið áfram af þrotlausum kjarki og bjartsýni, og það er tvímælalaust vilji þjóðarinnar, að enn verði framhald á því. Kjarkleysi það og svartsýni, sem mótar lömunarstefnu núv. ríkisstj., hefur alltaf verið og er íslenzku þjóðinni framandi.

Í lok þessarar aldar tekur við landinu kynslóð, sem verður fimmfalt fjölmennari en sú, sem tók við því í upphafi hennar, og meir en helmingi fjölmennari en við erum í dag. Síaukin tækni og síbatnandi lífskjör munu gera kröfur þeirrar kynslóðar til tilverunnar margfalt meiri en þær, sem við gerum nú. Það er enginn vafi á því, að það er vilji þjóðarinnar í dag og metnaður hennar, að það verði ekki síðar sagt, að hinni miklu framfarasókn aldarinnar hafi lokið árið 1960, og það er skylda okkar við komandi kynslóðir, að við tryggjum þeim þá fjármunaarfleifð, sem nauðsynleg er til þess að skapa traustan grundvöll undir líf þeirra og starf. — Góða nótt.