28.11.1960
Neðri deild: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

Fyrirspurninr um stórnarráðstafanir

Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Út af þessari fyrirspurn vil ég aðeins endurtaka það, sem sagt er í fréttatilkynningu utanrrn., að hér eru þær breytingar einar á ferðinni, að í stað þess, að þeir menn, sem annazt hafa störf varnarliðsins á Íslandi til þessa, hafa verið úr flughernum, þá taka við þeim nú menn, sem eru úr sjóhernum. Á sjálfum varnarstöðvunum verða engar breytingar. Þeim verður ekki breytt, og þeim verður ekki fjölgað. Það, sem þarna er á ferðinni, er sem sagt eingöngu það, að starfsmennirnir verða úr sjóhernum, en hafa verið úr flughernum. Þessi breyting er afleiðing af því, að það eru starfsmenn sjóhersins, sem nú taka meiri þátt í vörnum Atlantshafssvæðisins en áður var. Þáttur flughersins minnkar. Það er ástæða breytingarinnar. — Ég sé ekki ástæðu til að fara inn á þetta frekar.