28.11.1960
Neðri deild: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1635)

Fyrirspurninr um stórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Mér sýnist á þessu svari hæstv. utanrrh., að það eigi annaðhvort að leyna okkur alþm. því, sem þarna sé að gerast, eða þá hitt, sem getur verið alveg jafntrúlegt, að hæstv. ríkisstj. viti ekki sjálf, hvað þarna sé raunverulega að gerast. Við, sem höfum fylgzt með þessum málum, hinum svokölluðu varnarmálum Íslands, frá upphafi vega, átt sæti hér á Alþingi, frá því að landið var fyrst hernumið, við vitum ósköp vel, hvernig rætt hefur verið um þessi mál og hvers konar rök hafa verið flutt fram á hverjum tíma. Þegar sá samningur var rofinn, sem gerður var 1941, og Bandaríkjamenn áttu að fara héðan burt að fullu og öllu með allt sitt hafurtask, strax og stríðinu lauk, þá var það notað sem yfirvarp til þess að klófesta fyrstu herstöðvarnar, sem hér voru eftir stríð, Keflavíkurflugvöll, að það væru flugsamgöngurnar við setulið Bandaríkjanna í Þýzkalandi, sem væru svo þýðingarmiklar, m.ö.o., það var gildi Íslands sem miðstöðvar í flugsamgöngum milli Bandaríkjanna og meginlands Evrópu, sem var þarna lagt upp úr. Síðan hefur það verið svo, eins og skýrt hefur komið fram, að það hafa verið menn úr flughernum, sem hafa haft aðalstjórnina hér, að Ísland hefur verið, eftir að það gekk í Atlantshafsbandalagið og hernámið hófst að nýju opinberlega 1951, fyrst og fremst hugsað sem viss flugmiðstöð. Og í sambandi við það hafa verið öll þau önnur kerfi, sem hér hafa verið, radarkerfin og önnur slík.

Þýðir þessi breyting, sem nú hefur verið gerð, — það er von, að við spyrjum, því að við erum allir ófróðir um þessi hermál, en fyrst til er á annað borð sérstök nefnd, sem á að sjá um þessi mál, og ég efast ekki um, að hún hafi verið kölluð saman, þessi toppnefnd, sem sett var hér einu sinni í þeim efnum og átti að fylgjast með öllum slíkum samningum, þá má þó a.m.k. ætlast til þess, að slíkir menn hafi sett sig eitthvað inn í þessi mál, — þýðir þetta þá m.ö.o., að gildi Íslands sem flugstöðvar í sambandi við hernaðarkerfi Bandaríkjanna hafi gerbreytzt? Er það svo, sem við ólærðir í þessum málum höfum fengið einhvern veginn á tilfinninguna, að þær flugstöðvar, sem Bandaríkin hafi byggt í Grænlandi, hafi raunverulega tekið við þeim verkefnum, sem Bandaríkin e.t.v. upphaflega hafa hugsað sér að yrðu rækt af stöðvunum á Keflavíkurflugvelli, þannig að það, sem nú hafi gerzt, sé það, að verið sé að afskrifa meir og meir flugstöðvarnar á Íslandi sem hafandi eitthvert gildi í slíkum efnum, en þar með sé ekki verið að afskrifa Ísland sem hafandi verulegt gildi í sambandi við þetta hernaðarkerfi, heldur sé það annar þáttur viðvíkjandi Íslandi, sem nú sé tekinn upp og lögð sé höfuðáherzla á, að það sé sjóherinn?

Hæstv. utanrrh. segir, að það sé engin önnur breyting en sú, að það séu menn úr sjóhernum, sem taka við yfirstjórn, ef ég skildi það rétt, í staðinn fyrir að áður voru það menn úr flughernum. Ekki getur það verið svo hugsað hjá Bandaríkjastjórn, að menn úr sjóhernum eigi nú að fara að stjórna því, sem flugherinn hefur átt fyrst og fremst að stjórna fram að þessu, heldur hlýtur þetta að merkja það, að gildi herstöðva á Íslandi hafi breytzt svo mikið, að sjóherstöðvar á Íslandi eru orðnar miklu mikilvægari en flugherstöðvar og að flugherstöðvarnar eru máske fyrst og fremst farnar að hafa gildi sem — ef svo mætti segja — eftirlitsstöðvar, t.d. með kafbátum, en ekki lengur sem sjálfstætt kerfi í hernaði, þannig að landið sé sett þannig og flugstöðvarnar í því séu settar undir yfirstjórn sjóhersins vegna þess, að það sé orðið verkefni fyrst og fremst sjóhersins að sjá um hlutina hér á Íslandi. Ef þetta væri rétt til getið, hvað þýðir þetta þá? Þýðir þetta þá ekki alveg óhjákvæmilega, að slíkur sjóher hugsar til þess að færa sig eitthvað upp á skaftið hér viðvíkjandi slíkum breytingum?

Við, sem fylgdumst með, þegar Bandaríkin gerðu sínar fyrstu kröfur til herstöðva hér á Íslandi til 99 ára, 1. okt. 1945, vissum, að farið var fram á þrenns konar stöðvar. Það var Keflavíkurflugvöllur til hins venjulega flughers, það var Skerjafjörður fyrir sjóflugvélar, og það var Hvalfjörður fyrir flotastöð. Og við vitum, að síðan hefur verið talað um, og það munu ekki vera nema 5 ár síðan það hefur verið talað beinlínis um þann möguleika að byggja stöðvar fyrir kjarnorkuknúna kafbáta í Hvalfirði undir Þyrli. Og þegar því er allt í einu lýst yfir, að nú eigi sjóherinn að taka við yfirstjórninni á Íslandi, vegna þess auðsjáanlega, að gildi Íslands sem miðstöðvar í sambandi við sjóhernað á Atlantshafi og það, sem undir hann heyrir, hafi aukizt svo mjög, og þegar það á sama tíma gerist, að Bandaríkin fara fram á stöðvar fyrir kjarnorkuknúna kafbáta í Skotlandi, þá virðist manni ekki liggja mjög fjarri, að slík krafa kunni að koma á eftir. Og þegar það er okkar reynsla, að slíkar kröfur frá hálfu Bandaríkjanna koma venjulega fyrst fram, þegar búið er að fallast á þær, þannig að okkur alþingismönnum er stillt frammi fyrir gerðum staðreyndum og búið að semja, þá er þess vegna ekki óeðlilegt, þó að við viljum nota tækifærið til þess að spyrja, meðan hlutirnir eru ekki beinlínis skollnir yfir.

Ég vil þess vegna — einmitt vegna ókunnugleika okkar alþm. yfirleitt í þessum málum — leyfa mér að óska þess, ef hæstv. utanrrh. veit betur eða veit meira en það, sem hann sagði áðan, eða hefur hugmynd um eitthvað meira, sem hann telur sig mega segja, að hann skýri okkur frá því, því að mér sýnist þessi litla tilkynning opna það mikla og óhugnanlega möguleika, að það sé nauðsynlegt að vera þarna á verði. En ég vil jafnframt leyfa mér að spyrja um það, eins og ég gat um fyrr í þessari ræðu, hvort það sé ekki alveg ótvírætt, að áður en þessi breyting hafi verið gerð á samningnum, hafi sú nefnd, sem hæstv. utanrrh. sjálfur skipaði, þriggja manna nefnd, sem átti að vera ákaflega hátt standandi nefnd, — „high level“ held ég það hafi verið kallað á enskunni eða amerískunni, mjög hátt standandi nefnd í þessum efnum, — ég held meira að segja, að á íslenzkunni hafi það verið þýtt „mjög ábyrg nefnd í þessum efnum“, skipuð þrem mönnum, — hvort hún hafi ekki áreiðanlega verið kölluð saman og við hana hafi verið rætt um þessi mál, áður en þessi breyting hafi verið gerð: Ég sé nú hér einn hv, þm., hv.? þm. Reykv., sem á sæti í þeirri n., og vil nú leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hans, hvort hann hafi verið kallaður á fund í þessari nefnd. Og enn fremur vil ég leyfa mér að spyrja að því, hvort utanrmn. hafi verið kölluð saman og henni hafi verið tilkynnt þetta, — það er satt að segja orðið nokkuð undarlegt, ef svo skyldi vera, að hvorki þessi „high level“ nefnd, þessi sérstaka ábyrga nefnd, sem hæstv. utanrrh. skipaði til að hafa um öll svona mál að gera, — mér skildist, að það ætti eiginlega að vera allt, sem á brezkunni mundi vera kallað „top secret“, sem heyrði undir þá nefnd, — hvort hún hafi verið kölluð saman, — og hún var þó skipuð bara af ríkisstj., ekki af Alþingi, — og í öðru lagi, hvort utanrmn. hafi um þetta fjallað. Ég vil leyfa mér að vona, að við fáum upplýsingar um þetta frá þessum aðilum. Það eru það margir samkv. stjórnartilskipunum og lögum, sem eiga um þetta að fjalla, að það ætti nokkurn veginn að geta legið fyrir, hvort rætt hefur verið um þetta á þann stjórnskipulega hátt, sem gera ber.