28.11.1960
Neðri deild: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
Fyrirspurninr um stórnarráðstafanir
Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Ég ætla rétt að vekja athygli þess þm., sem hér talaði síðastur, á því, að hér hefur enginn milliríkjasamningur verið gerður. Það hefur verið komið sér saman um framkvæmd á þegar gerðum milliríkjasamningi, alveg á sama hátt og ríkisstj. Íslands og ríkisstj. Bandaríkjanna hafa alla tíð, síðan varnarsamningurinn var gerður, verið að koma sér saman um framkvæmd einstakra atriða þess samnings. Hér hefur því ekkert nýtt gerzt. Það hefur verið haldið áfram því starfi, sem byrjað var á, þegar varnarsamningurinn var gerður.
Að því er varðar þau ummæli mín, að ég hafi ekki talið og telji ekki hagkvæmt hagsmunum okkar ríkis að vera að ræða yfirleitt einstök atriði varnarmálanna við kommúnistaflokkinn eða Alþb., þá vil ég aðeins vekja athygli þessa hv. þm. á því, að það er nákvæmlega sama, hvaða ríkisstj. hefur verið á Íslandi, frá því að varnarsamningurinn var gerður, og meira að segja áður en hann var gerður, þau mál voru aldrei borin undir kommúnistana eða þær nefndir, sem þeir áttu sæti í. Það hafa allir flokkar verið á einu máli um, að það væri tilgangslaust og enda ekki heppilegt að hafa samstarf um þessi mál við þá. Og ég vil gjarnan minna þennan hv. þm. á, að hann studdi sjálfur ríkisstj., sem hér var í 2½ ár. Tveir af hans flokksbræðrum áttu sæti í þeirri ríkisstj. Þessari venju að hafa ekki samráð við kommúnistana um meðferð utanríkismála var ekki brugðið, á meðan sú ríkisstjórn sat. Sú ríkisstj. hafði ekki samráð eða samstarf við hans flokk um meðferð utanríkismálanna. Ég vil minna á, að vinstri stjórnin var m.a. stofnuð með það fyrir augum að láta endurskoða varnarsamninginn og vísa varnarliðinu úr landi. Frá þessu var horfið, vegna þess að þeir tveir lýðræðisflokkar, sem að vinstri stjórninni stóðu, töldu, eins og ástatt var, að það væri óskynsamlegt að halda endurskoðuninni áfram. Þessir tveir flokkar ákváðu þetta sín á milli án þess að hafa samráð við þriðja flokkinn um það, Alþb. Þetta var í samræmi við það, sem áður hafði verið gert. Þessi flokkur sætti sig algerlega við þessa málsmeðferð. Hann sat sem fastast eftir í ríkisstj., og ég hef aldrei orðið þess var, að hv. 3. þm. Reykv. eða hans flokksmenn hafi talað um, að það ætti að draga okkur Alþýðuflokks- eða Framsóknarflokksráðherrana til ábyrgðar fyrir landráð, þó að við höfum ekki talað við okkar samstarfsflokk í ríkisstj., Alþb., þegar ákvarðanirnar voru teknar 1956. Þessi hv. þm. getur því alveg sparað sér sín stóru orð um það, að ég sé að viðhafa hér einhver óvenjuleg eða ósæmileg vinnubrögð, þegar verið er að ganga frá einstökum framkvæmdaatriðum í sambandi við varnarsamninginn, án þess að það sé borið undir Alþb. eða nefndir, sem það á sæti í. Hér er verið að viðhafa nákvæmlega sömu vinnubrögð og alltaf hafa tíðkazt og það m. a. á meðan þessi hv. þm, studdi ríkisstj. Ég vil þess vegna biðja hann að spara sér öll sín stóru orð.