18.11.1960
Sameinað þing: 16. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Á síðasta fundi í Sþ., í gær, var lesið bréf frá hv. 4. þm. Reykn., Jóni Skaftasyni, sem fór þess á leit, að varaþm., Valtýr Guðjónsson, tæki sæti á Alþingi í fjarveru hans. Kjörbréfið hefur nú borizt. Það er gefið út af yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis til handa Valtý Guðjónssyni. Gert verður hlé, allt að 10 mínútum, á fundinum, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]