15.02.1961
Sameinað þing: 39. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1747 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (FS):
Varaþingmaðurinn hefur undirritað eiðstaf. Hann tekur nú sæti á Alþingi, og býð ég hann hér með velkominn.
Þá hafa borizt hér nokkur bréf frá deildarforsetum með ósk um, að varamenn taki sæti á Alþingi. Í fyrsta lagi bréf frá forseta Nd., dags. 14. febr. 1961, á þessa leið:
„Mér hefur í dag. borizt svo hljóðandi bréf frá Gísla Jónssyni, 1. þm. Vestf.:
„Vegna setu á þingi Norðurlandaráðs verð ég hindraður frá að sitja á Alþingi næstu tvær vikur. Er það því ósk mín, herra forseti, að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurður Bjarnason ritstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Í öðru lagi bréf frá forseta sömu deildar, dagsett 14. febr., á þessa leið:
„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Sigurði Ingimundarsyni, 1. landsk. þm.:
„Þar sem ég er á förum til útlanda til að sitja á þingi Norðurlandaráðs og mun því ekki geta setið á Alþingi næstu tvær vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður minn, Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki á meðan sæti mitt á Alþingi:'
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Og enn er bréf frá forseta efri deildar, dags. 14. febr., á þessa leið:
„Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda til að sitja á þingi Norðurlandaráðs og mun því ekki geta setið á Alþingi næstu tvær vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður minn, Daníel Ágústínusson fyrrv. bæjarstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Ó. Ólafsson, forseti efri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Og að lokum er hér bréf frá forseta Nd., dags. 14. febr., á þessa leið:
„Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Einari Olgeirssyni, 3. þm. Reykv.:
„Þar sem ég er á förum til útlanda til að sitja á fundi Norðurlandaráðs og mun því ekki geta setið á þingi næstu tvær vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður minn, Margrét Sigurðardóttir húsfrú, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt“
Þessir fjórir varamenn taka nú sæti á Alþingi, enda hafa kjörbréf þeirra allra áður verið rannsökuð, og býð ég þá hér með velkomna.