28.03.1961
Efri deild: 86. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1759 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

Þingsetning

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd þingdeildarmanna að þakka hæstv. forseta fyrir hans vinsamlegu orð og góðu óskir í okkar garð. Ég vil einnig tjá honum þakkir okkar fyrir forsetastörf hans í vetur, vel unnin og réttlát. Þá vil ég einnig óska honum góðrar heimkomu af þessu þingi og honum og fjölskyldu hans gleðilegrar páskahátíðar og farsæls og góðs þess sumars, sem bráðum fer í hönd. Ég bið ykkur, hv. þingdeildarmenn, að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]