29.03.1961
Sameinað þing: 63. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (1735)
Starfslok deilda
forseti (FS):
Alþingi það, sem nú er að ljúka störfum, hefur staðið skemmri tíma en oft áður. En svo sem yfirlitið ber með sér, sem ég nú las, hefur það þó haft til meðferðar ærið mörg mál og sum þeirra mjög mikilvæg og vandasöm, enda er ekki fyrir það að synja, að stundum hafi verið veðrasamt í þingsölum, en það er raunar ekki ný saga. Ég tel ekki ástæðu til að rifja upp þessi mál, þau eru öll hv. þingmönnum í fersku minni. Einungis vil ég óska þess, að þau löggjafarmál og aðrar ákvarðanir, sem Alþingi hefur afgreitt á þessu þingi, megi verða þjóðinni til heilla og farsældar, svo sem til er ætlazt. Og í nafni Alþingis óska ég ættjörð vorri og þjóð gæfu og gengis á þessu ári og á ókomnum árum.
Að lokum vil ég þakka hæstv, ríkisstj. og hv. þingmönnum fyrir góða samvinnu og umburðarlyndi við mig, og óska ég þeim góðs gengis, og þingmönnum utan af landi óska ég fararheilla heim og góðrar heimkomu.
Varaforsetum ber mér sérstaklega að þakka þeirra aðstoð. Þeir hafa gegnt störfum fyrir mig í fjarveru minni fyrri hluta vetrar nokkrar vikur og auk þess hlaupið undir bagga á öðrum tímum eftir þörfum. Skrifurum þingsins vil ég þakka þeirra aðstoð. Starfsfólki þingsins vil ég að lokum þakka fyrir ágæta samvinnu og dyggileg störf.
Um leið og ég kveð hv. þingmenn nú, er þessu þingi lýkur, óska ég þeim öllum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar páskahátíðar og farsældar á komandi sumri. Ég óska þess, að við hittumst öll heil hér á næsta þingi.