17.02.1961
Efri deild: 62. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í C-deild Alþingistíðinda. (1777)
190. mál, síldarútvegsnefnd
Flm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Frv. þetta til laga um síldarútvegsnefnd, útflutning á síld, hagnýtingu markaða o.fl., sem hér er til umr., hef ég, ásamt hv. 3. þm. Vestf. og hv. 10. þm. Reykv., leyft er að flytja á þskj. 367.
Við hv. 3. þm. Vestf. fluttum á síðasta Alþingi frv. til laga um breyting á lögum um síldarútvegsnefnd o.fl. frá 1934. Var þar um að ræða nokkru minni breyt. á nefndum lögum en fram kemur í frv. þessu, en þó má segja, að ekki sé um neina verulega efnisbreytingu að ræða.
Núgildandi lög um síldarútvegsnefnd, útflutning á síld, hagnýtingu markaða o.fl. voru sett í desember 1934 og hafa staðið óbreytt síðan. Það gefur auga leið, að á þessu sviði sjávarútflutningsframleiðslunnar sem og öðrum hafa átt sér stað margvíslegar breytingar á undanfarandi árum, og er því eðlilegt, að lögin séu sniðin eftir því, sem við á í dag.
Þegar lögin í fyrstu voru sett, mun það aðallega hafa vakað fyrir löggjafanum, að komið yrði á traustu skipulagi, sem tryggði framleiðendum lágmarksverð fyrir saltsíldina, er staðið gæti undir framleiðslukostnaði, og enn fremur, að komið yrði í veg fyrir offramleiðslu, sem oft áður hafði leitt til þess, að mikið verðhrun átti sér stað. Gekk það stundum svo langt, að það reið síldarframleiðendum að fullu.
Þegar síldarútvegsnefnd var stofnuð, mun ætlunin hafa verið sú, að nefndin löggilti síldarútflytjendur, ákvæði tölu þeir og löggildingartíma, svo sem í lögunum segir, en hefði ekki sjálf á hendi einkasölu á saltsíldiani, þó að lögin geri einnig ráð fyrir þeim möguleika. Svo sem kunnugt er, hefur þróunin verið sú um alllangan tíma, að síldarútvegsnefndin hefur sjálf haft með söluframkvæmdina að gera, en aftur á móti löggilt söltunarstöðvar og síldarsaltendur.
Þá er í frv. þessu, svo sem í gildandi lögum, heimild til handa síldarútvegsnefnd að veita sölusamlagi saltsíldarframleiðenda eða samvinnufélagi, sem hefur yfir að ráða 75% saltsíldarframleiðslu landsmanna eða sama hundraðshluta af saltsíld, sem er verkuð með sérstakri verkunaraðferð, leyfi til sölumeðferðar og útflutnings á öllu því magni eða meira, sem það hefur til umráða.
Nú er það svo, eins og fram kemur í grg., sem frv. fylgir, að nú þegar eru starfandi sölusamlög framleiðenda í flestum aðalgreinum sjávarútvegsframleiðslunnar, að saltsíldarframleiðslunni undanskilinni og enn fremur síldar- og fiskimjölsframleiðslunni. Félög síldarsaltenda eru hins vegar tvö starfandi í landinu: Félag saltsíldarframleiðenda á Suðvesturlandi og Félag síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi. Í þess um tveim félögum eru allir saltsíldarframleiðendur, og með því að hvort félagið um sig eignist sinn fulltrúa í nefndinni, skapast þeim betri aðstaða til þess að fylgjast með og koma á framfæri tillögum og sjónarmiðum framleiðenda sjálfra, sem bezt ættu að tryggja farsæla lausn þessara mála hverju sinni.
Sú breyting, sem gerð er á 1. gr. gildandi laga, er sú ein, að nefndarmönnum fjölgar um tvo, verða nú 7 í stað 5 áður, og í stað þess að einn nefndarmanna er nú kosinn af síldarútvegsmönnum eftir reglum, sem atvmrh. setur, er nú lagt til, að sá fulltrúi verði tilnefndur af Landssambandi íslenzkra útvegsmanna. Að sá háttur var ekki á hafður þegar frá upphafi, á sama hátt og fulltrúi sjómanna var tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, stafar einvörðungu af því, að Landssamband íslenzkra útvegsmanna er yngra en löggjöfin og því ekki hægt að taka tillit til þess, þegar lögin voru samin.
2. gr. er að mestu óbreytt. Þó er fellt niður ákvæði um, að það sé á valdi síldarútvegsnefndar að úthluta skipum leyfi til að mega veiða síld til verkunar. Í þeim efnum er viðhorfið í dag gerbreytt frá því, sem áður var, og síldin verkuð og unnin á margvíslegan hátt, sem var ekki þekkt, þegar lögin voru samþykkt. t.d. er hraðfryst síld til útflutnings nú verulega stór hluti af síldaraflanum suðvestanlands.
Nokkur breyting er gerð á 3. gr. Þar er t.d. fellt niður að miða við þá síld, sem veidd er í íslenzkri landhelgi. Slíkt ákvæði verður að teljast óþarft, enda oft miklu meira af síldaraflanum veitt utan landhelgi en innan.
Þá er ákvæði um, að enginn megi bjóða síld til sölu, hvernig sem hún er verkuð, að ísaðri síld undanskilinni, nema með leyfi nefndarinvar. Þetta ákvæði er nú of þröngt, og er því bætt við, að ákvæði þessar greinar nái þó eigi til ísaðrar, frystrar og niðursoðinnar síldar og ekki heldur til síldar, sem lögð er niður í dósir eða önnur ílát, sem innihalda allt að 5 kg af síld.
4., 5. og 6. gr. eru að mestu óbreyttar. Þó er fellt niður að heimila síldarútvegsnefnd að ákveða hámarkssöltun af hverju skipi. Slíkt ákvæði er óþarft nú, þó að það hafi getað verið jafnnauðsynlegt, þegar lögin voru upphaflega sett, með tilliti til þess, hve möguleikarnir voru þá takmarkaðir um hagnýtingu síldarinnar.
7. gr. er óbreytt að því undanskildu, að fellt er niður, að banna megi veiði, sem byggt er á sömu forsendum, því að sjálfsagt væri það mjög óeðlilegt, að síldarútvegsnefndin hefði heimild til þess að banna skipum að veiða síld, þar sem, eins og ég sagði áðan, er hægt að hagnýta síldina á ýmsan annan hátt nú en áður var.
8. gr. er á sama hátt nokkuð breytt frá því, sem nú er. Sumt er fellt niður, en að öðru leyti fært til þess vegar, sem við á.
9.–12. gr. eru óbreyttar frá því, sem nú er, en ákvæði til bráðabirgða er talið eftir ástæðum eðlilegt, þar sem kjörtímabili núv. nefndarmanna lýkur hvort sem er á yfirstandandi ári.
Ég vil svo leyfa mér að vænta þess, að hv. alþm. baki máli þessu vel og greiði fyrir framgangi þess á þinginu, og tel að öðru leyti óþarft að orðlengja frekar um málið að sinni, en geri það að tillögu minni, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.