23.03.1961
Efri deild: 81. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (1781)
190. mál, síldarútvegsnefnd
Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):
Herra forseti. Sjútvn. hefur haft til athugunar frv. það, sem hér um ræðir. N. leitaði umsagnar nokkurra aðila um málið, en hafði aðeins fengið svör frá tveimur, þegar nál. voru gefin út, þ.e. frá báðum saltendafélögunum. Leggja þau bæði til, að frv. verði samþ., en Félag síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi leggur þó til, að nokkrar smávægilegar breyt. verði gerðar á frv.
Nú hafa enn fremur bætzt við umsagnir tveggja aðila til viðbótar, þ.e. Alþýðusambands Íslands, sem leggur til, að frv. verði fellt, og Landssambands íslenzkra útvegsmanna, sem mælir hins vegar með samþykkt frv.
N. gat eigi orðið sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. vill samþykkja það með tveimur smábreytingum á 3. gr. frv. og hefur leyft sér að bera fram till. um það á þskj. 541. Kemur þar fyrst til, að við leggjum til, að reykt síld verði undanskilin ákvörðun n. á sama hátt og ísuð, fryst og niðursoðin síld.
Þá leggjum við til, að í staðinn fyrir 5 kg komi 10 kg. Er sú breyting miðuð við ákvæðið í tollalöggjöf þeirra landa, sem hugsað er, að þannig verkuð síld verði helzt seld til. En þar er skv. þeim upplýsingum, sem við fengum, miðað við umræddan hámarksþunga hverrar pakkningar, að síldin sé undanþegin innflutningstolli.
Í sambandi við frv. þetta að öðru leyti vil ég vísa til þess, er ég sagði í framsögu um málið, og tel, að ekkert nýtt hafi fram komið í málinu sem rök fyrir því, að ekki sé rétt og tímabært, að málið nái nú fram að ganga.
Ég vil því vona, að hv. d. sjái sér fært að greiða fyrir afgreiðslu þess og samþ. það með þeirri breyt., sem fram kemur í nál. meiri hl. hæstv. sjútvn. á þskj. 541.