28.03.1961
Neðri deild: 87. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í C-deild Alþingistíðinda. (1794)
190. mál, síldarútvegsnefnd
Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Frv. það, sem borið var fram í Ed. á þskj. 367, frv. til laga um síldarútvegsnefnd, útflutning síldar, hagnýtingu markaða o.fl., var komið til þessarar hv. d. og var vísað til sjútvn. Sjútvn. tók málið fyrir, og eins og fram kemur í nál. á þskj. 689, varð ekki samstaða í n. um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. mælir með því, að frv. verði afgr. óbreytt, eins og það kom frá Ed.
Meginbreytingar í þessu frv. eru þær, eins og fram kemur í 1. gr., að það er fjölgað mönum í síldarútvegsnefnd, þannig að í staðinn fyrir, að þetta hefur verið hingað til 5 manna nefnd, þá er þetta gert að 7 manna nefnd og fulltrúar Félags síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi fá aðild að n. og Félag síldarsaltenda á Suðvesturlandi. Þá er og einnig gert ráð fyrir því, að í stað þess að í n. hefur verið kosinn samkv. reglugerð atvmrn. eina aðili úr hópi útvegsmanna, verði einn nm. tilnefndur af L.Í.Ú.
Ég held, að ekki sé ástæða til að rekja aðrar þær breytingar, sem á þessum lögum eru gerðar, því að flestar þeirra og ég held allar eru þess eðlis, sem segja megi, að tíminn og sú reynsla, sem fengizt hefur af framkvæmd þeirra laga, sem gilt hafa um síldarútvegsnefnd frá 29. des. 1934, hafi kennt mönnum.
Aðrir nm. tjáðu sig ekki reiðubúna til að afgr. málið og munu að sjálfsögðu skila nál. þar um. Ég tel svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um þetta, en eins og fram kemur í nál. á þskj. 689, leggur meiri hl. sjútvn. til, að frv. verði samþykkt óbreytt.