24.10.1960
Sameinað þing: 6. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (181)
1. mál, fjárlög 1961
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Síðasti hv. ræðumaður hafði áhyggjur af kjósendum Framsóknarflokksins, en mörgum mundi þó finnast, að hann ætti að hugsa um þessar mundir um sína kjósendur.
Hv. þingmaður var mjög hissa á því, að Framsfl. hefði ekki viljað samþykkja gengislækkun fyrir ríkisstjórn Ólafs Thors 1950. En málið var þannig vaxið, að Framsfl. léði alls ekki máls á gengislækkun nema eiga þátt í framkvæmd hennar sjálfur og setja þau skilyrði fyrir henni, sem nauðsynleg voru, en þau skilyrði voru þau að ganga ekki inn á samdráttarstefnu, um leið og genginu var breytt.
Útgjöldin á fjárlagafrv. því, sem hér liggur fyrir, eru 51 millj. kr. hærri en á gildandi fjárlögum, 529 millj. hærri en á fjárlögum síðasta árs og 745 millj. hærri en á fjárlögunum 1958. Þannig hafa fjárlögin hækkað um nálega 100% á tveimur árum. Inn í þetta kemur að vísu, að niðurgreiðslur utan fjárlaga 1958 námu 49 millj., og mætti segja, að sú fjárhæð ætti að dragast frá hækkuninni til samræmingar. Sé það gert, hafa fjárlögin hækkað um því nær 700 millj. á tveimur árum.
Það stingur strax í augu, að í frv. er gert ráð fyrir, að nýi innflutningssöluskatturinn, sem á að gefa í ríkissjóð 168 millj., verði látinn standa áfram. Ríkisstj. var þó óþreytandi í fyrravetur að lýsa yfir því, að þessi skattur væri aðeins til bráðabirgða og yrði ekki framlengdur, enda var þetta böggull, sem komið var með eftir að aðalefnahagsáætlun ríkisstj. var lögð fram. Hér kemur því í ljós, að farið hefur verið aftan að mönnum í fyrra í þessu, og er það í samræmi við fyrirheit stjórnarflokkanna yfirleitt og þær efndir, sem á þeim hafa orðið.
Það vekur athygli, að í þessu fjárlagafrv. er gert ráð fyrir nærri því sömu heildartekjum í ríkissjóð á næsta ári af þeim álögum, sem mokað var á almenning s.l. vetur, og á þessu ári. Þó gilda álögurnar á næsta ári fyrir allt árið. Hér eru því tekjur af þessum tollaálögum áætlaðar miklu lægri en nú. Það er sem sé gert ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í þjóðarbúskapnum og því raunar minnkandi ríkistekjum af stórhækkuðum álögum. Fátt sýnir betur búskaparlagið, sem nú er upp tekið, en einmitt þetta, Og þetta sýnir einnig, hversu mikið hald er í þeim blekkingum stjórnarflokkanna og ríkisstjórnarinnar annað veifið, að ráðstafanir þeirra eigi ekki að hafa og hafi ekki í för með sér stórfellda kjaraskerðingu fyrir almenning.
Innflutningsáætlunin fyrir árið 1960, sem núverandi tekjuáætlun var byggð á, gerir ráð fyrir minni heildarinnflutningi til landsins en var fyrir tveimur árum. Þessi átti samdrátturinn að verða þegar á þessu ári vegna kjaraskerðingar og minnkaðra framkvæmda. Og nú er sýnilegt, að það á enn að herða ólina og samdrátturinn á að verða enn meiri og kjaraskerðingin, ef ríkisstj. fær að ráða. Ég mun víkja nokkuð að þessu síðar.
Fjmrh.. talaði talsvert í fyrra um sparnaðarfyrirætlanir sínar, en menn yrðu að vera þolinmóðir þá, sparnaðurinn kæmi bráðum. Nú sjáum við, að því er enn lýst yfir í greinargerðinni, að erfitt sé að koma á aukinni hagkvæmni, eins og það er orðað, nema með löngum undirbúningi, og ekki er hin nýja stofnun til eftirlits með öllum hinum enn komin á fót, sem boðuð var í fyrra. En þó að þetta liggi nú fyrir, þá er okkur samt sem áður sagt, að þetta frv. marki tímamót. Það má til sanns vegar færa, að þetta fjárlagafrv. ásamt frumvarpinu í fyrra markar alger tímamót, þar sem fjárlögin eru á nokkrum missirum nærri því tvöfölduð, eða nákvæmlega tiltekið hækkuð um 700 millj. En það er ekki þetta, sem við er átt, heldur hitt, að þetta fjárlagafrv. marki tímamót í ráðdeild og sparnaði. Því er á loft haldið, að 10 af 14 útgjaldagreinum fjárlaganna lækki frá því í fyrra, þ.e.a.s. lækki frá þeirri methæð og langt fram yfir það, sem útgjöldin komust í fyrra við aðfarir ríkisstjórnarinnar þá.
Athugum svo ofur lítið nánar þessar greinar og í hverju lækkun þeirra á pappírnum liggur.
Vaxtaútgjöld eru áætluð 96 þús. kr. lægri, og þarf ekki langt mál um það. Skuldir þær, sem ríkissjóður stendur straum af, hafa verið að lækka stöðugt á undanförnum árum, og eru það ekki verk þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr.
9. gr.: alþingiskostnaður er áætlaður 1 millj. kr. minni en á gildandi fjárlögum. Auðvitað er þetta hrein áætlunarfjárhæð, og skal ég ekkert segja um það, hvernig þetta verður. En með þessu er þó glöggt sýnt, hvað þeir vilja. Það á að reyna að stíga enn eitt spor í áttína að því að gera Alþingi Íslendinga að málamyndaþingi, hliðstætt því, sem stigið var í fyrra, þegar alþingismenn voru sendir heim, á meðan ríkisstj. ákvarðaði, hvað gera skyldi í efnahagsmálunum. Auðvitað er ódýrara að stjórna með bráðabirgðalögum og stjórnarúrskurðum og umfangsminna að tilkynna ákvarðanir um hinar stærstu fjárveitingar t.d. í flokksveizlum stjórnarflokkanna en að ómaka sig við að leggja slík mál fyrir Alþingi og halda uppi þinghaldi. En hætt er við, að sá sparnaður, sem fást kynni með því að draga úr valdi Alþingis, gæti orðið þjóðinni dýrkeyptur. Þannig held ég að margir hugsi um þessar mundir, og óneitanlega geri ég ráð fyrir, að það sé ekki langt siðan margur andaði léttara, þegar Alþingi kom saman.
10. gr.: fjárveiting til ríkisstjórnarinnar er lækkuð um 1 millj. og 100 þús. af 42 millj., sem ráðherrann kom henni upp í í fyrra. Það, sem hér gerist, er þetta: Annað sendiráðið í París er sameinað hinu og þar með framkvæmd ráðstöfun, sem núverandi utanrrh. hefur fram að þessu komið í veg fyrir. Þessi lækkun er þó að verulegu leyti étin út með kostnaði við nýtt efnahagsmálaráðuneyti og með því áð flytja sendiherra inn í stjórnarráðið. Aðallækkunin á liðnum er svo fengin með því að lækka ýmsar áætlunartölur, eins og kostnað við þátttöku í alþjóðaráðstefnum, annan kostnað ráðuneytanna og slíka liði, alveg út í bláinn, og hefur enginn hugmynd um, hvort það verður nokkur raunveruleg lækkun eða ekki. En ekki þykir manni líklegt, að þessi stjórn verði til að draga úr utanferðakostnaði.
11. gr. lækkar um 520 þús. af þeim 105 millj., sem ráðherrann kom henni upp í í fyrra. Ýmsir liðir á greininni hækka, en lækkun kemur fyrst og fremst fram í því, að fjárveiting til eftirlits með skattaálagningu á að lækka um 2 millj. rúmlega. Ekkert liggur fyrir um, að nokkur raunverulegur sparnaður geti komið þarna til greina í reyndinni, og mundu sannast að segja margir álíta, að sízt hefði af því veitt að auka eftirlitið, um leið og hinn gífurlegi nýi söluskattur var á lagður, í stað þess að draga úr fjárveitingu til skattaeftirlitsins.
Samgöngumálagreinin lækkar um 3 millj. 800 þús. Á þeirri grein hækka ýmsir kostnaðarliðir. En það, sem fyrst og fremst veldur lækkuninni, er, að framlagið til hafnarbótasjóðs til hafnargerða er minnkað um 1 millj. 950 þús. og fjárveiting til strandferða lækkuð um 5 millj. Er ekkert um að efast, að þar er á ferð sú hugmynd að draga stórkostlega úr strandferðaþjónustunni, eins og kom greinilega fram í ræðu hæstv. fjmrh. áðan. Það er látið í veðri vaka annað veifið, að það eigi að gera skipulagsbreytingu til sparnaðar. En þess er skemmst að minnast, að þegar raforkuáætlunin var skorin niður um marga milljónatugi, var blygðunarlaust haldið fram um leið, að þar væri ekki um neitt minnkaðar framkvæmdir að ræða, sem allt reyndust hreinar rangfærslur. Síðan er því hér lýst yfir, að bláókunnugur maður frá norsku hlutafélagi hafi verið fenginn til að gera nýjar strandferðaáætlanir fyrir Íslendinga.
15. gr., til kirkjumála, lækkar um nálega 100 þús. kr. Sú lækkun er fengin með því að draga úr fjárveitingu til uppbyggingar í Skálholti, og sýnir það kotungshátt hæstv. ríkisstjórnar að draga úr þeirri fjárveitingu.
16. gr., framlag til atvinnuveganna, lækkar um 5 millj. 740 þús., og þar eru tvær „ráðdeildar“-ráðstafanir, sem skipta máli. Það á að láta bæjar- og sveitarfélög og aðra, sem þurfa á jarðbor að halda, greiða miklu meira fyrir vinnu borsins en áður hefur verið. Og þetta heitir sparnaður. Þá á að leggja 2 millj. kr. minna fram en áður til að útrýma refum og minkum, og er nú gefið í skyn, að ríkisstj. hafi fundið nýjar aðferðir til að koma þessum dýrum fyrir kattarnef. En vandlega er um það þagað, hverjar þessar nýju aðferðir séu. Eru menn að óreyndu áreiðanlega dauftrúaðir á, að hæstv. fjmrh. hafi fundið upp heppilegri aðferðir en áður til að vinna refi. Væri það alveg eftir öðru, að nú yrði dregið úr stuðningi við þá miklu herferð, sem hafin hefur verið gegn dýrbítum í landinu. En tæplega mundi hæstv. ríkisstj. telja slíkt til ráðdeildar, ef hún hefði nokkra nasasjón af því, hvílíku ógnartjóni þessar skepnur valda, ef þær fá að leika lausum hala. En kannske verður þessi lækkun bara á pappírnum, eins og svo margar hinar.
19. gr., framlag til óvissra útgjalda, virðist þó fjmrh. hafa lækkað á hné sér um 500 þús. kr., bara til að geta haft lækkunargreinarnar 10. En það er dálítið meira um þessa 19. gr. Á greininni er liður, sem nefnist „útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir“. Sá liður er settur 5 millj. En mér er kunnugt um, að fyrir liggur áætlun framleiðsluráðs um, að í útflutningsuppbætur þessar muni þurfa 21 millj. á næsta ári. Verður því ekki betur séð en þessi eini liður sé settur á annan tug millj. of lágur vísvitandi og greinin svo lækkuð í staðinn um 500 þús., svo að hún geti komið með í sýndarskrum hæstv. ráðherra. Ekki er aðstaða til að kanna á þessu stigi, hvort meira er í frumvarpinu af svona löguðum sparnaði.
20. gr. fjárlagafrv., eignahreyfingar, lækkar um rúmar 10 millj. Á þeirri grein er framlag til byggingar varðskips lækkað um 3 millj. 750 þús., og hefur ríkisstj. komizt að þeirri niðurstöðu, að það verði að taka þetta fé að láni, þar sem ekki sé hægt að verja svona stórri fjárhæð af 11/2 milljarði til að auka landhelgisgæzluna, það verði að borga þetta seinna. Það er enginn smáræðis sparnaður. Þá lækka afborganir af skuldum landssímans um 2 millj. 150 þús., og á það ekkert skylt við neinar ráðstafanir af hendi núverandi ríkisstjórnar. Loks eru fjárveitingar af ríkistekjum til uppbyggingar á landssímakerfinu, 5.5 millj., algerlega þurrkaðar út og landssímanum ætlað sjálfum að standa undir framkvæmdum sínum af eigin tekjum. En landsmenn eiga að borga brúsann jafnt eftir sem áður með hinum gífurlegu hækkunum, sem orðið hafa á öllum þjónustugjöldum landssímans. Er þetta ekki svo lítill sparnaðarsigur.
Heildarniðurstaðan á rekstrarútgjaldahlið tímamótafjárlaganna er svo sú, að hrein aukning rekstrarútgjaldanna frá því í fyrra er 61 millj., sem bætist ofan á met hæstv. fjmrh. þá, eins og margupplýst hefur verið.
Kem ég þá áð því, hvernig ástatt er nú orðið um fjárveitingar til verklegra framkvæmda.
Á árunum 1950–58 munu fjárveitingar til verklegra framkvæmda hafa numið 28.4% af útgjöldunum. Í fjárlögum þeim, sem núv. ríkisstj. stóð að fyrir yfirstandandi ár, voru verklegar framkvæmdir komnar niður í 19.7% af útgjöldunum. Og í þessu fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir, nema framlögin til verklegra framkvæmda aðeins 18.4%. Þannig hafa verklegar framkvæmdir verið stórkostlega skornar niður. Mundu framlög til þeirra þurfa að vera 150 millj. kr. hærri en þau eru nú á frv., til þess að jafnmikið af álögunum á landsmenn gengi til framfaramála og áður. Svona gífurleg breyting hefur orðið á örstuttum tíma vegna stefnubreytinga í efnahagsmálum.
Er þetta fyllilega gert af ásettu ráði og hnitmiðað til að draga úr þeim stuðningi, sem ríkisvaldið hefur veitt almenningi í landinu við uppbyggingu atvinnuveganna og sinna eigin heimila. Er nú höfuðáherzla lögð á, að á undanförnum árum hafi allt of miklu fjármagni verið beint til stuðnings einstaklingum og félögum, sem höfðu ekki nógu mikil eigin fjárráð til þess að koma á fót atvinnurekstri. Höfuðmálgagn stjórnarinnar hefur t.d. haldið því fram skýrt og skorinort, að höfuðvandkvæði sjávarútvegsins stöfuðu af því, að of mörgum mönnum, sem ekki hafi haft nægilegt eigið fé, hafi verið hjálpað til þess að komast yfir framleiðslutækin með of miklum lánum til að kaupa tækin. Er hátíðlega heitið stefnubreytingu algerri í þessu, ef þeir megi ráða. Allir vita, hvað þeir álíta um landbúnaðinn að þessu leyti.
Þarna kemur einnig fram svo skýrt sem verða má mismunur á þeim þjóðháttum, sem Framsfl. vill hlynna að, og því búskaparlagi, sem hinir vilja hafa: Annars vegar að hlynna að því, eins og gert hefur verið á undanförnum 30 árum, að sem flestir geti verið sjálfstæðir efnalega og tekið þátt í framleiðslunni og átt sín eigin heimili, þótt ekki séu nægilega fésterkir til að kljúfa nauðsynlegan stofnkostnað óstuddir. Hins vegar er sú stefna, sem nú liggur til grundvallar öllu, sem gert er, að einungis hinir fésterkustu skuli fást við þessi mál, eiga framleiðslutæki, hús og þess háttar. Allir aðrir skuli vera á þeirra vegum og ekki fá stuðning þjóðfélagsins til þess að fást við þessi verkefni, sem að þeirra skilningi eiga að vera verkefni hinna ríku.
Það er enn eitt dæmi um, hvernig þessi stefna er í framkvæmd. Á þessu fjárlagafrv. er búið að lækka framlög til atvinnuaukningar í kaupstöðum og kauptúnum raunverulega a.m.k. um helming frá því, sem þau voru fyrir tveimur árum, þegar tillit er tekið til hækkaðs kostnaðar við öflun tækja. Ekkert fjármagn hefur þó verið þýðingarmeira en þetta fyrir uppbyggingu sjávarplássanna, þar sem skortur á eigin fjármagni heima fyrir veldur svo miklum erfiðleikum við að byggja upp atvinnulífið traustlega. Þetta sker ríkisstj. niður, því að það samrýmist ekki hinni nýju stefnu, sem er að hætta að styðja þá, sem hafa ekki nægilegt eigið fé fram að leggja. En hvernig halda menn, að þetta verki á uppbyggingu atvinnulífsins við sjóinn og í sveitunum? Öll framlög til landbúnaðarmála hafa verið stórkostlega skorin niður, enda er það ein af þeim áætlunum, sem hefur verið gerð innan vébanda Sjálfstfl., að fækka í bændastétt landsins.
Þá er athyglisvert, hvernig stjórnarstefnan hefur farið með fjárveitingar til vegamála í landinu. Í flestum löndum er reynt að stilla svo til, að benzínskattur renni til vegagerða og brúagerða. En hér var í fyrra ákveðið, að 85 aurar á hverjum benzínlítra, sem voru sumpart alveg nýjar álögur og sumpart fé, sem hafði runnið í útflutningssjóð, skyldu renna í ríkissjóð. Nemur þetta 42 millj. Af þessu fé voru aðeins 7 millj. settar í vegi og brýr.
Framsóknarmenn gerðu margar tilraunir til að beina verulegum hluta af þessu fjármagni til nýrra vegagerða og brúagerða og þar á meðal til varanlegra vegagerða á fjölförnum leiðum. En allt var það árangurslaust. Með þessu lagi er vegamálum hér stefnt nálega til fullrar kyrrstöðu og þau reyrð í óleysanlegan hnút. Getur þetta alls ekki staðizt svo sem nú er nema í stuttan tíma. En einmitt þetta sýnir með öðru, í hvert óefni framfaramálum er stefnt með efnahagsmálastefnu núverandi hæstv. ríkisstj.
Um þetta fjárlagafrv. er því miður hægt að segja með fullum rétti í fáum orðum: Frumvarpið er að sjálfsögðu skilgetið afkvæmi þeirrar efnahagsmálastefnu, sem núverandi ríkisstj. hefur beitt sér fyrir, og foreldri sínu líkt. Þar ræður ekki aukin ráðdeild, en á hinn bóginn talsverð sýndarmennska. Það er stefnt að aukinni eyðslu og auknum starfrækslukostnaði í fjöldamörgum greinum, en haldið áfram að draga úr framlögum til þeirra mála, sem mesta þýðingu hafa fyrir almenning. Þetta eru hæstu og mestu eyðslufjárlög, sem fram hafa verið lögð í sögu Alþingis, og um leið minnstu framkvæmdafjárlög, sem nú um fjölda ára hafa verið fram lögð.
Ég mun þá víkja nokkuð að efnahags- og framleiðslumálum almennt. Flestum mun enn í fersku minni skemmdarverk Sjálfstfl. í stjórnarandstöðunni 1956–58. Ég hef ekki tóm til að rekja þau hér í einstökum atriðum, en ég vil minna á, að svo lágt var lagzt, að forusta flokksins gerði allt, sem hún gat, til þess að reyna að spilla fyrir málefnum landsins út á við, reyna að koma í veg fyrir, að landið gæti fengið lán til bráðnauðsynlegra, arðvænlegra framkvæmda.
Svo langt var gengið, að stjórnarandstaðan stóð ekki einu sinni með málstað Íslands í landhelgismálinu örlagaríka sumarið 1958, þegar Bretar voru að gera það upp við sig, hvort þeir skyldu leggja í að sýna Íslendingum ofbeldi eða ekki. Það ætti svo að vera framhald þessa að svíkjast að þjóðinni í landhelgismálunum með samningum við Breta um landhelgina, og atburðir síðustu daga benda til þess, að svo eigi að fara. Ekkert getur stöðvað það nema ótti við nógu skörulega mótstöðu alls almennings í landinu.
Aðfarir stjórnarandstæðinga í efnahagsmálunum á þessum árum eru mönnum einnig í fersku minni. Þegar tekizt hafði að skapa þann vanda, að samtök náðust ekki um að falla frá nægilega mörgum vísitölustigum í kaupi og afurðaverði, til þess að endarnir næðu saman, og ríkisstj. hlaut að fara frá, — þegar svo var komið, að Sjálfstæðisfl. lét sína eigin menn gera úttekt á efnahagsmálunum, varð niðurstaðan sú, að skakkinn í efnahagskerfinu svaraði til áhrifanna af dýrtíðaröldunni, sem Sjálfstfl. hafði sjálfur reist.
Þegar vinstri stjórnin fór frá, var greiðsluafgangur á ríkisbúskapnum 60–70 millj., sem hin nýja valdasamsteypa notaði með mörgu móti til að halda sér á floti yfir kosningaárið. Framleiðslan var í örum vexti, og sýnt var fram á í tillögum framsóknarmanna þá, að hægt var að leysa efnahagsmálin án þess að rýra kaupmátt launa frá því, sem hann var í febrúar og október 1958. Gjaldeyrisstaða bankanna var þá jákvæð um 80–90 millj. kr. Þegar núverandi valdasamsteypa tók við, seig strax á ógæfuhlið. Greiðsluafgangur var étinn út og gjaldeyrisstaðan orðin óhagstæð eftir árið, Allt var látið drasla, en hugsað um það eitt að ná völdunum.
Í kosningunum var því yfir lýst, að dýrtíðin væri stöðvuð og yrði svo áfram, enn fremur, að kysu menn Sjálfstfl., væri hægt að bæta lífskjörin. Strax eftir kosningar var blaðinu alveg snúið við og svikizt að mönnum með þá stefnu, sem nú er verið að framkvæma. Byrjað var allt í einu að halda því fram, að þjóðin hefði lifað stórkostlega um efni fram. En aðeins nokkrum vikum áður hafði því verið mótmælt harðlega, að nokkur ástæða væri til að efast um, að þeir gætu staðið við fyrirheit sín um stöðvun dýrtíðar og bætt lífskjör. Ríkisstj. hóf þá að flytja óhróður um efnahagsmál Íslands, og var því skrökvað, að þjóðarbúskapur Íslendinga hefði verið rekinn með stórkostlegum halla á undanförnum árum, þvert ofan í þær staðreyndir, að erlendu lánin höfðu verið notuð til arðgæfra framkvæmda, og þveröfugt við það, sem sýnt var fram á af einum kunnasta hagfræðingi landsins, að Íslendingar væru einmitt þá betur færir um að standa við skuldbindingar sínar út á við en nokkru sinni áður.
En þótt þannig væri reynt að sverta ástandið, eins og mögulegt var, og einskis svifizt, þá varð þó ekki lengra komizt en svo, að þáv. forsrh. lýsti því yfir, að skekkjan í efnahagskerfinu væri um 250 millj. kr., og fjmrh. mun hafa talað um 200—250 millj. Var þó málað eins svart og hægt var með tilliti til þess, sem ríkisstj. hafði í hyggju. Auðvelt hefði verið að finna leiðir til að jafna þann skakka, sem var í þjóðarbúskapnum, jafnvel eftir aðfarir þessarar valdasamsteypu árið 1959, með margfalt umfangsminni ráðstöfunum en þeim, sem ríkisstj. greip til. Hefur þráfaldlega verið fram á þetta sýnt, og mun ég koma að því síðar.
En ríkisstj. valdi ekki þann kost. Það var vegna þess, að nú átti, eins og hæstv. fjmrh. mun hafa orðað það í fyrra, að taka upp nýja þjóðfélagshætti. Nú átti að innleiða nýtt efnahagskerfi, efnahagskerfi stórkapítalismans, eins og hann er kenndur í bókum og framkvæmdur af ofsatrúarmönnum í þeirri grein. Slíkt gat auðvitað ekki orðið með, því að halda áfram þeirri sömu stefnu, sem fylgt hafði verið við uppbyggingu síðustu áratuga og fyrst og fremst hafði verið mótuð af Framsfl. En sú stefna var öflugur stuðningur þess opinbera við framfaraáætlanir einstaklinga og almennra félagasamtaka í landinu og einstakra byggðarlaga. Þess vegna var ekki hægt að nota hliðstæð úrræði og áður.
Af þessum ástæðum var allt gert í senn í fyrsta skipti í sögu landsins, gengið lækkað, stórfelldar nýjar álögur innleiddar, dregið mjög úr framlögum þess opinbera og stuðningi við framkvæmdir almennings í landinu, vaxtaokrið innleitt og öflugar ráðstafanir gerðar til þess að draga úr útlánum til sjálfrar framleiðslunnar og til almennings. Er svo langt gengið í þessu ofan á vaxtaokrið og hina gífurlegu dýrtíðaraukningu, sem stafar af þessum ráðstöfunum, að Seðlabankanum er bannað að lána meira út á afurðir landsmanna í krónutölu en áður, enda þótt verðlag afurðanna hafi að krónutölu hækkað verulega vegna gengislækkunarinnar og rekstrarkostnaður stórhækkað allur, og ofan á þetta er bætt, að helmingurinn af öllum nýjum sparifjárinnlögum í landinu er dreginn inn í Seðlabankann.
Sýnt var fram á í fyrra, að verðhækkunaráhrif af öllum þessum ráðstöfunum gætu aldrei orðið undir einum milljarði og 100 millj. kr. Sýnt var einnig fram á, að þetta væri með öllu óframkvæmanlegt, án þess að af því leiddi upplausn í framleiðslu- og atvinnulífi og dýrtíðarhækkun, sem yrði óstæð bæði almenningi og framleiðslufyrirtækjum. Allt er þetta nú greinilega að koma fram, aðeins nokkrum mánuðum siðar. Augljóst er, að enginn atvinnurekstur á Íslandi þolir okurvextina og lánasamdráttinn, hvað þá almenningur, sem þarf að leita lána til lífsnauðsynlegustu framkvæmda. Fjöldi manna horfir nú beint fram á að missa eigur sinar fyrir lítið vegna þeirrar lánsfjárkreppu, sem ríkisstj. framkallar með því að lækka stórkostlega afurðalán Seðlabankans, draga inn helminginn af sparifénu og draga þar til viðbótar stórfé inn í bankakerfið. Seðlabankann, með okurvöxtum af framleiðslulánunum.
Mönnum er fyrir atbeina ríkisstj. neitað um lán til að bjarga eignum sínum, þótt gulltryggingar séu í boði, á sama tíma og helmingurinn af sparifénu er dreginn inn og neitað að lána út á framleiðsluna úr Seðlabankanum, eins og gert hefur verið áratugum saman.
Það var á allra vitorði í fyrra, að ríkisstj. miðaði ráðstafanir sínar þannig, að hún ætlaðist til að fá tröllaukinn greiðslufeng hjá ríkissjóði á þessu ári, sem átti að leggjast dauður í Seðlabankann og átti þannig að hjálpa enn til að ná af mönnum fé, þ.e.a.s. minnka kaupgetuna, auka kjaraskerðinguna. Enn fremur var því treyst, að samdrátturinn og kjaraskerðingin svona stórkostleg hlyti að verða til þess, að gjaldeyrisafgangur yrði mikill áður en langt um liði. Enn er of snemmt að fullyrða nokkuð um niðurstöður í þessum greinum.
Þó er svo að sjá nú þegar, að allt komi þetta öðruvísi út og verr en ríkisstj. taldi sér trú um. Þó er erfitt að trúa því og verður ekki trúað, fyrr en það sést svart á hvítu, að enginn greiðsluafgangur verði hjá ríkissjóði þrátt fyrir þær óhemjuálögur, sem mokað var á landsmenn í fyrra, og þrátt fyrir að þær tekjur hefðu átt að gefa ríkissjóði meira en 200 millj. kr. meira en áætlað var á fjárlögunum, og það miðað við sama innflutning og var fyrir tveimur árum, 1958. Því verður þess vegna ekki trúað, fyrr en það sést svart á hvítu, að svo hörmulega sé komið, að það verði ekki greiðsluafgangur.
En það er þó sýnt nú þegar, að það hefur gleymzt að gera nógu mikið ráð fyrir þeim lamandi áhrifum, sem þvingunarráðstafanir ríkisstj. og kjaraskerðingin sjálf hljóta að hafa á framleiðslulifið og þjóðartekjurnar. Okkur er sagt, að enn verði út af þessu að lækka tekjuáætlun ríkissjóðs og fjárlaganna, þótt allar hinar gífurlegu álögur eigi að standa og meira að segja innflutningssöluskatturinn, sem lýst var yfir í fyrra að ætti að vera aðeins til bráðabirgða.
Allt er gersamlega í þoku um gjaldeyrisstöðuna, og lítið hafa bætt úr í því efni þær áróðurstölur, sem hæstv. viðskmrh. hefur látið koma fram undanfarið. Er sú talnaflækja öll hin furðulegasta. Það vita menn þó, að allt er löðrandi í vörukaupalánum, m.a. er búið að taka 433 millj. kr. lán, sem á að greiðast á þremur árum, og eru það hreinir glæfrar. Er það blekking, áð allt sé það í lagi; því að bankayfirdrættir frá í fyrravetur hafi verið greiddir að sama skapi. Verulegur hluti af þeim yfirdráttum voru árstíðaryfirdrættir á móti óvenjulegum útflutningsvörubirgðum, sem áttu að greiðast niður af andvirði þeirra birgða, þegar þær fóru úr landi, ef allt hefði verið með felldu. Það er alveg ljóst, að það eru hreinir glæfrar að taka gífurleg lán til stutts tíma til almennra vörukaupa og binda þannig gjaldeyristekjur næstu ára fyrir fram, án þess að framleiðsluaukning komi á móti.
Það er fullvíst, að ráðstafanir ríkisstj. hafa nú áhrif í þá átt að minnka gjaldeyrisöflunina, og það er kannske það alvarlegasta af þessu öllu saman, auk þess sem það leiðir af sér á næstunni alveg óhjákvæmilega áframhaldandi dýrtíðarflóð. Dýrtíðaraukningin, vaxtaokrið og lánasamdrátturinn hafa þegar lamað framleiðslustarfsemina til lands og sjávar, og dregur því í vaxandi mæli úr heildartekjum landsmanna.
Dýrtíðarflóðið skellur með slíkum þunga á almenningi til sjávar og sveita, að fyrirsjáanlega hlýtur að leiða til gagnráðstafana, hversu mikil þolinmæði sem sýnd er. Út af framleiðslunni þarf að gera nýjar ráðstafanir.
Liggur auðvitað beinast við sem fyrsta skref að afnema vaxtaokrið, eins og framsóknarmenn hafa lagt fram frv. um á Alþingi, og létta lánsfjárkreppuna. Yrði þetta til að draga nokkuð úr afleiðingum þess, sem gert hefur verið, t.d. er vaxtaliðurinn alveg gífurlegur liður í allri framleiðslu og atvinnurekstri.
Augljóst er af öllu því, sem nú liggur fyrir, að ekki er nema að litlu leyti það komið fram, sem koma hlaut vegna þeirra miklu mistaka. sem urðu s.l. vetur. Fyrstu umferð í þeirri hringrás er ekki einu sinni lokið. Stjórnarliðið getur ekki komizt hjá að viðurkenna óbeint, hvernig komið er, en er að vonum mjög í vanda. Annað veifið er látið í skína, að líklegast sé til bjargar útveginum að veita kreppulán til þess að borga með okurvexti og mæta öðrum búsifjum, sem sjávarútvegurinn fær ekki undir staðið. Um landbúnaðinn heyrist ekki talað úr herbúðum ríkisstjórnarinnar. Væri þetta gert, yrði kerfið þetta: Hert að mönnum með vaxtaokri og lánasamdrætti og dýrtíð, en síðan skrapað saman kreppulánafé til þess að greiða með okurvextina og rekstrarhallann til bráðabirgða. Ekki mundi það lengi forða strandinu. Annað veifið er á hinn bóginn talað eins og ekkert verði gert.
Fyrirsjáanlegt er, að ríkisstj. neyðist til að auka uppbótakerfið enn á ný í margvíslegum myndum, enda raunar þegar byrjað á því við upphaf síldarvertíðar á þessu sumri, þar sem byrjað var að greiða uppbætur á saltsíldina. Aftur á móti er ekki enn fullljóst, hve almennt menn verða flæmdir frá eignum sínum og staðfestu, áður en almennar ráðstafanir verða gerðar vegna framleiðslunnar til lands og sjávar. Þannig er nú þessum málum komið, þótt ekkert óvænt hafi skeð. því að vitað var, þegar gengið var frá efnahagsmálaráðstöfunum á s.l. vetri, að verðfall var orðið á síldar- og fiskimjöli og síldarolíu. Síldarafli var lélegur, en alls ekki verri en oftast áður undanfarin ár.
Tæpast er svo haldinn fundur í landinu, að ekki komi fram gagnrýni á þessar aðfarir og bent á, hvernig komið er. Er slíkt að vonum. Viðbrögð forráðamanna stjórnarflokkanna við þessu eru mjög eftir öðru. Þeir hafa látið aðalmálgagn ríkisstj. ráðast með fúkyrðum að slíkum fundahöldum og er þeim líkt við samsafn fífla, sem standa fyrir hógværum og skynsamlegum ályktunum um það, hvernig komið er málefnum framleiðslu og almennings.
Stundum berast nú þær fréttir, að enn eigi að herða samdráttinn, hann sé ekki talinn nógu mikill enn, og ætti það þá víst að gerast með því að draga enn saman lánveitingar og frysta meira af sparifé landsmanna og herða að með öðru móti. Verði nú á hinn bóginn ekki snúið við, geta þessar aðfarir ekki verið miðaðar við neitt annað en að gera nú — án tafar — þá gerbyltingu, sem fyrir vakir, með því móti að koma atvinnurekstri allra þeirra, sem styðjast ekki víð óþrjótandi auð eigin fjármagns í strand. Er þá hugsunin, að þeir, sem hafa ekki fullar hendur eigin fjár, neyðist til að láta af hendi atvinnutæki sín, íbúðir og annað nú á næstunni, og þá treyst á, að þeir, sem meira eigið fjármagn hafa, stígi fram og kaupi fyrir lítið.
Þannig á þá að bæta úr því, sem aðalmálgagn ríkisstj. telur verst hafa tekizt á undanförnum árum, en það er, að allur fjöldinn af mönnum sé kominn inn í framleiðsluna og atvinnureksturinn og hafi komizt yfir ýmsar aðrar eignir án þess að hafa nógu mikið eigið fé. Þannig er það, sem forusta Sjálfstfl., sem fram að þessu hefur gengið með grímu og þótzt fylgjandi því, að sem flestir einstaklingar gætu notið sín, ætlar að vega aftan að mönnum með því að koma hér á ríki hinna fésterkustu. En tekst þeim að grafa þannig undan efnahag manna og það heilla byggðarlaga? Það eigum við eftir að sjá. Það kemur í ljós á næstunni, næstu mánuðum, næstu missirum. Um þetta verður háð mikil baráttá, og þar dugir ekkert hik. Menn verða að snúast glöggt gegn þessu og láta það í ljós, og gæti þá komið hik og það bjargað miklu og undirbúið ósigur þessarar stefnu.
Framsfl. sagði í fyrravetur greinilega, hvernig hann vildi leysa vandann. Flokkurinn lagði höfuðáherzlu á að halda áfram og draga hvergi úr þeim stuðningi, sem veittur hefði verið á undanförnum árum til uppbyggingar framleiðslu og. atvinnulífi og þeirra framkvæmda, sem mesta þýðingu hefðu fyrir atvinnulífið og almenning. Dæmdist fjárfesting of mikil í heild, vildi flokkurinn láta velja úr þær framkvæmdir, sem helzt mættu bíða frá almennu sjónarmiði séð„ og fresta þeim. En flokkurinn hefur ætíð verið alveg andvígur þeirri leið að takmarka fjárfestingu með því að gera framkvæmdir svo dýrar og draga um leið þannig úr stuðningi við þær, að engir nema þeir, sem hafa fullar hendur eigin fjár, gætu komið sér upp sjálfstæðri framleiðslu eða þaki yfir höfuðið. Flokkurinn vildi jafna þann skakka, sem var í efnahagskerfinu, með því að hækka hóflega yfirfærslugjaldið og stíga þannig enn skref í framhaldi af því, sem gert var 1958, til þess að draga úr uppbótakerfinu, því að jafna yfirfærslugjaldið var spor áleiðis út úr uppbótakerfinu. Flokkurinn vildi skattleggja eyðsluna einnig í því sambandi, í stað þess að nú færist skattabyrði landsmanna í auknum mæli yfir á brýnustu daglegar nauðsynjar. Flokkurinn vildi halda áfram að taka erlendis lán til arðbærra framkvæmda, jafnóðum og niður væru borgaðar eldri skuldir, en forðast eyðslulántökur.
Framsóknarmenn eru sannfærðir um, að uppbyggingarstefna þeirra, sem miðuð er við að leysa sem allra flest öfl úr læðingi til aukningar framleiðslu og framleiðni og gera sem flesta efnalega sjálfstæða, mundi auka þjóðartekjurnar og bæta lífskjörin, eins og reynslan sýnir að orðið hefur síðustu áratugina. En þeir áratugir eru glæsilegasta framfaratímabilið í sögu landsins. Allt það tímabil. hefur Framsfl. verið eitt sterkasta þjóðfélagsaflið.
Núverandi stjórnarfl, sjá á hinn bóginn enga aðra leið til að keppa að jafnvægi í þjóðarbúskapnum en samdrátt, — meiri og meiri samdrátt og meiri og meiri þvingunarráðstafanir, sem kreppa að mönnum meira og meira. Ef þeir næðu jafnvægi með þessu móti um stundarsakir; en lengur yrði það aldrei, þá yrði það jafnvægi fátæktarinnar. Þessum hugsunarhætti hafnar Framsfl. algerlega. Hann er boðberi þeirrar stefnu að auka framleiðslu og framleiðni og ná jafnvægi velmegunarinnar. Það eru engir draumórar eða slagorð. Það nægir að vísa til þess, sem hér hefur skeð á síðustu áratugum.
Þeir, sem ekkert vilja nú sjá annað en hinar nýju þvingunarráðstafanir og enga möguleika aðra eygja en samdráttinn, hafa gert það að herópi sínu, að Íslendingar hafi lengi undanfarið lifað um efni fram. Hvernig fer fyrir þeim, sem lifir um efni fram? Hann verður fátækari og fátækari. Haldi menn efnum sínum — eða auki þau, lifa þeir ekki um efni fram. Hver vill bera sér það í munn, að íslenzka þjóðin sé verr efnum búin nú en hún var fyrir nokkrum árum? Áreiðanlega enginn. Efnahagur þjóðarinnar hefur batnað ár frá ári.
En þetta sýnir, að þessar staðhæfingar eru marklaus, áróður þeirra manna, sem berjast um á hæl og hnakka og vilja fá þjóðina til að sætta sig: við, að leitað sé jafnvægis fátæktarinnar. Þjóðin, hefur glögga reynslu fyrir, því, að það er ekki sú leið, sem á, að fara, heldur hin að keppa áfram, eins og gert var, þangað til blaðinu var snúið við, — keppa áfram að jafnvægi velmegunarinnar. Það er leið, sem farin hefur verið með stórkostlega glæsilegum árangri á undanförnum áratugum, og þjóðin mun ekki una við, að snúið sé til baka á þeirri braut.